Fréttatíminn - 31.01.2014, Síða 32
Kapp við kassana
V
Við þurfum öll að borða. Þess vegna
komumst við ekki hjá því að fara í mat-
vöruverslanir og ná okkur í nauðsynjar.
Misjafnt er hve mikið yndi menn hafa af
slíkum verslunarferðum en mitt er tak-
markað. Samt læt ég mig hafa það. Liðin
er tíð kaupmanna á horninu, að minnsta
kosti flestra, manna sem höfðu tíma til
að spjalla við viðskiptavinina um vöruna
eða veðrið, raða í poka og aðstoða ýmsan
máta.
Í mínu ungdæmi voru stórmarkaðir
varla til. Kaupmennirnir á horninu áttu
markaðinn. Þangað fóru mæðurnar – og
kannski feðurnir endrum og sinnum – en
börnin oft. Þá var nefnilega hægt að senda
börn út í búð. Það var yfirleitt stutt að fara
og umferð lítil. Ef hætta var á að barnið
myndi ekki allt sem kaupa átti var einfalt
að senda með því miða, jafnvel í vett-
lingnum. Kaupmaðurinn, eða starfsfólk
hans, sá þá um að tína til það sem kaupa
átti, setja í innkaupanetið fyrir barnið og
afganginn í vettlinginn. Það er að segja
ef ekki var skrifað. Kaupmennirnir buðu
upp á þá þjónustu að skrifa innkaupin hjá
fólki sem borgaði síðan mánaðarlega –
eða samdi um framlengingu ef illa stóð á.
Kaupmennirnir voru eins konar smálána-
fyrirtæki þess tíma – nema hvað þeir
slepptu okurvöxtunum. Þeir tóku alls
enga vexti. Vera kann að álagningin hafi
tekið tillit til þessarar þjónustu, á það
bárum við börnin ekki skyn.
Síðar komu til sögunnar kjörbúðir svo-
kallaðar, það er að segja sjálfsafgreiðslu-
verslanir. Kaupmennirnir afgreiddu ekki
yfir borð heldur valdi viðskiptavinurinn
vöruna sjálfur. Þetta var að erlendri fyrir-
mynd og þótti framför – og var það eflaust.
Kjörbúðirnar voru undanfari stórmarkað-
anna sem smám saman tóku markaðinn
yfir. Kaupmennirnir á horninu hurfu einn
af öðrum og nú þrauka aðeins örfáir.
Pálmi Jónsson stofnaði Hagkaup árið
1959. Í upphafi var þó ekki um stórmarkað
að ræða í þeirri mynd sem við þekkjum
í dag. Hagkaup byrjaði sem póstverslun
í gömlu fjósi við Miklatorg. Í fyrstu var
einungis á boðstólum heimilisvara og
fatnaður, matvaran bættist ekki við fyrr
en undir 1970. Hagkaupsverslun Pálma
óx og dafnaði og fleiri voru opnaðar. Aðrir
stórmarkaðir fylgdu í kjölfarið og nú ráða
þeir lögum og lofum á matvörumarkaði,
Bónus, Krónan, Nóatún, Nettó, Víðir, Sam-
kaup, Kostur, Fjarðarkaup og Iceland, auk
stöku kaupfélags sem enn lifir. Stórmörk-
uðunum fylgdi fjölbreyttara vöruúrval og
lægra verð. Verðið skiptir fjölskyldurnar
miklu og því eðlilegt að stórverslanirnar
hafi náð fjöldanum til sín. Sama gildir um
vöruúrvalið. Þar er ólíku saman að jafna,
hornkaupmaður á jarðhæð eða í kjallara í
samanburði við risaverslanir, gott ef gólf-
plássið í Hagkaupsversluninni í Smára-
lind er ekki hektari að stærð,
10 þúsund fermetrar. Áður
voru bújarðir einar taldar í
hekturum.
En þjónustan er ekki
sú sama og áður var veitt
af persónulegum hornkaupmanni, þótt
ugglaust sé hún eitthvað mismunandi
eftir verslunum. Við hjónakornin förum
oftast í Bónus þegar kemur að helgarinn-
kaupunum, eða innkaupum til vikunnar,
því gjarnan er það svo þótt skotist sé eftir
ýmsu smálegu aðra daga. Þrjár Bónus-
verslanir eru tiltölulega nálægt heimili
okkar í Kópavoginum. Stundum förum
við í stórverslun Krónunnar í sama bæjar-
félagi og Nóatún í Hamraborginni – sem
býr að góðu kjötborði. Loks skjótumst við
endrum og sinnum í Samkaup-Strax, sem
verður eiginlega að teljast hverfisverslun
okkar, þótt ekki sé um að ræða hornkaup-
mann sem spáir í veðurútlit ef náð er í
rjómapela með sunnudagspönnsunum.
Það er í sjálfu sér ágætt að raða í inn-
kaupakerruna í stórmarkaðnum og gefa
sér þann tíma sem þarf. Fyrir liggur að
kaupa þarf venjulegar nauðsynjar, fisk og
kjöt eftir atvikum, kartöflur, kál og annað
grænmeti, mjólk, brauð, álegg, auk annars
smálegs. Síðan eru það freistingar sem
reyna verður að standast, ísar og ostakök-
ur, svo ekki sé minnst á slikkeríið sem við
blasir, súkkulaðidraumar, lakkrísar, buff
og bolsíur.
Hasarinn byrjar hins vegar – og það
heldur betur – þegar nær dregur af-
greiðslukössunum. Undir kvöld á
föstudögum er helmingur þjóðarinnar
samankominn í stórmörkuðunum. Bið-
raðirnar eru því langar við kassana. Erfitt
getur verið að hitta á rétta röð. Næstu
raðir ganga yfirleitt hraðar en sú sem
við veljum. Skjóti maður sér yfir í þá röð
bregst það ekki að gamla röðin tekur kipp
og gengur mun hraðar. Loks kemur þó að
okkur og þá er betra að vera tvö við verkið
því hamagangurinn er ógnvekjandi. Unga
fólkið á kössunum djöflar vörunum í gegn
á ógnarhraða, eiginlega áður en það er
búið að afgreiða næsta mann á undan sem
veit hvorki hvort hann á að halda áfram
að raða í pokana eða setja kortið í posann.
Vörum hans er síðan þrýst til hliðar með
slá og okkar gómaðar með leifturhraða og
rennt í gegn við hlið þess sem á undan er,
sveittur með vörurnar óklárar og kortið
milli handanna. Eiginkona mín reynir á
sama tíma að koma varningnum okkar
fyrir í pokum eða töskum á meðan ég næli
í kortið, stimpla inn pin-númerið og kvitta.
Áður en að því kemur er starfsmaðurinn á
kassanum byrjaður að renna vörum kúnn-
ans fyrir aftan í gegn, enn á hljóðhraða.
Fyrir hefur komið að ég hef skotist einn
í helgarinnkaupin og þarf bæði að raða í
poka og borga. Þá trufla ég alla í senn, við-
skiptavininn á undan og eftir, auk kassa-
starfsmannsins.
Ég veit að biðraðirnar eru langar og
flestir vilja komast sem fyrst úr þeim.
Samt held ég að öllum liði ögn skár, við-
skiptavinunum og kassastarfsfólkinu, ef
aðeins einn væri afgreiddur í einu, í stað
þriggja.
Við kassa stórmarkaðanna ræðir enginn
veðrið og enn síður daginn og veginn – og
þangað sendir enginn barn með miða í
vettlingi.
Jónas
Haraldsson
jonas@
frettatiminn.is
HELGARPISTILL
Te
ik
ni
ng
/H
ar
i
• 20.1 pixla Exmor myndflaga
• Full HD video1920x1080/50
• 18-55mm linsa fylgir, útskiptanleg linsa
Tilboð 69.590.- Verð áður 79.990.-
• Intel Pentium örgjörvi
• 15,5” Flat LED skjár
• 4GB innra minni, 500GB diskur
Tilboð 93.490.- Verð áður 109.990.-
öflug og TrausT
á frábæru verði
SVF1521A6EW
frábær ferðafélagi
á góðu verði
ILCE3000KB
93.490.-
sParaðu 16.500.-
69.590.-
sParaðu 10.400.-
• 300W 32 bita magnari
• 1 hátalari og þráðlaust bassabox
• Bluetooth tengimöguleiki
Tilboð 63.990.- Verð áður 79.990.-
• Full HD 1920 x1080 punktar
• 200 Hz X-Reality myndvinnslukerfi
• Nettengjanlegt og innbyggt WiFi
Tilboð 159.990.- Verð áður 199.990.-
sony Center
verslun Nýherja borgartúni 37 / 569 7700
verslun Nýherja Kaupangi akureyri / 569 7645
framúrsKaraNdi myNdgæði
42” Led sjónvarp KDL42W653
heimabíó með þráðlausum bassaháTalara
HTCT260H
5 ára ábyrgð fylgir öllum sjóNvörPum
www.sonycenter.is
159.990.-
sParaðu 40.000.-
63.990.-
sParaðu 16.000.-
miKill afsl
áTTur
af sýnishor
num
og síðustu
eintökum!
32 viðhorf Helgin 31. janúar–2. febrúar 2014