Fréttatíminn - 31.01.2014, Side 34
34 matur & vín Helgin 31. janúar-2. febrúar 2014
vín vikunnar
Pilsner Urquell
Gerð: Bjór
Tegund: Lagerbjór.
Uppruni: Tékk-
land.
Styrkleiki: 4,4%
Verð í Vínbúð-
unum: 299 kr.
(330 ml)
Umsögn: Tékkar
gerðu okkur þann
ágæta greiða
að finna upp
pilsner-bjórinn.
Pilsner Urquell er
sá upprunalegi og
stendur enn fyrir
sínu góðum 170
árum síðar. Hérna
er eilítið meiri
humlakeimur en
jafnan í lager-
bjórum sem gefur
honum karakter.
Tyskie
Gerð: Bjór
Tegund: Lagerbjór.
Uppruni: Pólland.
Styrkleiki: 5,6%
Verð í Vínbúð-
unum: 399 kr.
(500 ml)
Umsögn: Þó
nafnið beri það
með sér er Tyskie
alls ekki þýskur
heldur hreinrækt-
aður Pólverji. Og
þeim pólsku hefur
tekist vel upp með
þennan klassíska,
ljúfa og fínlega
lagerbjór.
Grolsch
Gerð: Bjór
Tegund: Lagerbjór.
Uppruni: Holland.
Styrkleiki: 5%
Verð í Vínbúð-
unum: 459 kr.
(450 ml)
Umsögn: Hollend-
ingurinn í hópnum
stendur alltaf vel
fyrir sínu. Flaskan
er sniðug og
bjórinn skemmti-
legur. Grolsch
lætur finna fyrir
sér með örlítið
meiri beiskju og
humlum en
gengur og gerist
í mildum lager-
bjórum en gerir
það á jákvæðan
hátt.
Þýskur hveitibjór á þorranum
Nú stendur þorrinn sem hæst og hvort sem fólk er mikið í súrmatnum
eður ei verður því ekki neitað að þorrastemningin er áberandi. Hvort sem
það er til að hressa upp á þorrablótið eða breyta út frá hefðbundna lager-
bjórnum þá er alls ekki svo vitlaust að prófa hveitibjór.
Þýskur hveitibjór – Hefe Weissbier – er yfir-
leitt vel freyðandi, lítið humlaður, mjúkur
og með smá ávaxtakeim. Hann er ekki
endilega sætur en vel ferskur út af ávöxt-
unum. Hveitibjór gengur vel með sýru-
ríkum mat, ferskum tómötum, ávöxtum og
salötum með vinaigrette. Þá passar hveiti-
bjórinn frábærlega með ostum, allt frá geitaosti til kotasælu. Eins getur
hann passað hreint ágætlega með mildu sushi. Franziskaner Weissbier
er gott dæmi um þýska hveitibjórinn en Franziskaner má rekja aftur til
elsta brugghúss í sögu München, stofnað árið 1363. Franziskaner Hefe-Weissbier
Gerð: Bjór
Tegund: Hveitibjór.
Uppruni: Þýskaland.
Styrkleiki: 5%
Verð í Vínbúðunum: 489 kr. (500 ml)
Höskuldur Daði Magnússon
Teitur Jónasson
ritstjorn@frettatiminn.is
Fréttatíminn mælir með
Uppskrift vikunnar
Fahitas úr flanksteik
Flestir eru nokkurn veginn
sammála um að kjötbitarnir
sem vaxa sem næst hryggnum
á hverri skepnu séu þeir bestu.
En þeir bestu henta ekki alltaf
í það sem sælkerinn er að leita
eftir. Það þarf til dæmis tals-
verða fitu og ákveðið magn af
þeim vefjum sem halda kjötinu
saman til þess að elda kjöt við
lágan hita og lengi. Lund og
fillet myndi þorna löngu áður
en hægt væri að skera kjötið í
sundur með skeið.
Systursteikurnar „flank“
og „skirt“ er síðubitar teknir
neðarlega af nautaskrokknum
og eins ótrúlega og það hljómar
þarf annað hvort að elda þá
bita leiftursnöggt eða ótrúlega
lengi. Allt þar á milli kallar á
ólseiga steik á pari við gamalt
leðurbelti.
Flanksteikurfahitas
Marínering
1 límóna
rabbarbari 10 cm
ólífuolía ½ dl
steikarsósa 1 msk.
hvítlauksrif 2
chili 1 stk.
bjór 2.5 dl
Hvernig
Rífa börkinn af límónunni og
kreista safann úr líka. Merja og
saxa hvítlaukinn, saxa chilliið
og hafa fræin með. Blanda öllu
saman. Steikarsósan er þessi
klassíska dökka sósa. Ef ekki
er til steikarsósa er hægt að
skipta henni út fyrir helmingi
minna af Worcestershiresósu
eða jafn vel soya. Bjórinn sem
nota skal er svona sirka 2-3 dl.
Ef þú tímir meiru er fínt að láta
lítinn bauk vaða. Ekki skemmir
fyrir ef sælkerinn fær að dreypa
á bjórnum við eldamennskuna.
Það er örlítil himna á þessum
kjötbita sem þarf að fjarlægja
að mestu leyti áður en kjötið
er marínerað. Nota til þess
blandaða tækni með hníf og
eldhúspappír.
Marínera bitann í um tvo
til þrjá tíma, má vera aðeins
minna má líka vera aðeins
meira en ekki mikið þó.
Elda á grillpönnu þangað til
kjötið er „medium“ sem eru
þrjár til fjórar mínútur á hverri
hlið. Fer þó eftir stærðinni á
bitanum. Láta stykkið hvíla
aðeins eftir eldun og skera svo
þvert á rendurnar í kjötinu sem
eru augljósar á þessum bita.
Meðlæti
Bera skal fram í hveititortíum
sem hitaðar eru á grillinu til að
fá á það rendur og geyma svo í
hreinu viskustykki til að halda
mjúkum. Meðlæti getur verið,
grilluð paprika, grillaður rauð-
laukur, sýrður rjómi, guacamole
og blanda af rauð-og hvítkáli
sem hefur verið látið standa í
safa úr einni límónu og tveimur
skeiðum af agavesýrópi í um
klukkustund. Svo er klassísk
salsasósa alltaf í lagi með líka.
Bíldshöfða 18 - 110 Reykjavík - sími: 557 9510 - www.patti.is
Opið virka daga kl. 10-18
laugard. 11-16
AFSLÁTTUR AF
VÖLDUM VÖRUM
Allt a
ð
Rúm
frá 99.000
Tungusófar frá 125.900 kr
Hornsófar frá 129.900 kr
Sófasett frá 199.900 kr
Stólar
frá15.900
verð áður 35.900
Sjónvarpskápur
55.900
Skenkur
77.000
Sjónvarpsskápar
frá 33.500
Barskápur
89.000
Vín sófasett 3+1+1 verð 290.320 áður
362.900
Mósel hornsófi verð 287.900 áður 359
.900
70%
SÍÐUSTU DAGAR
ÚTSÖLUNNAR
Saku Rock
Gerð: Bjór.
Tegund: Lagerbjór.
Uppruni: Eistland.
Styrkleiki: 5,3%
Verð í Vínbúðunum:
318 kr. (500 ml)
Umsögn: Eistneski
rokkarinn Rock er
upplagður í maríner-
inguna, ekki síst af
því það er gott að
sötra hann meðfram
eldamennskunni.
Þó við Íslendingar höfum tekið árstíðabjórum fagnandi og séum sífellt að víkka
út sjóndeildarhringinn þá er langmest drukkið af lagerbjór hér. Mikilvægt er
þó að festast ekki í sömu hjólförunum, að kippa ekki alltaf sama bjórnum með
sér af gömlum vana. Fólk ætti að skoða úrvalið vel og vera óhrætt við að prófa
sig áfram með eitthvað nýtt. Hér eru þrír lagerbjórar sem vert er að gefa gaum
næst þegar kemur að áfyllingu.