Fréttatíminn


Fréttatíminn - 31.01.2014, Síða 36

Fréttatíminn - 31.01.2014, Síða 36
36 vetrarfjör Helgin 31. janúar–2. febrúar 2014  Éljagangur allt fyrir áhugafólk um útivist  skíðakennsla í bláfjöllum KOMDU MEÐ OKKUR! ÖNNUMST ALLT FRÁ INNANBÆJARSKUTLI TIL KREFJANDI HÁLENDISFERÐA Trex - Hópferðamiðstöðin er eitt stærsta rútufyrirtæki landsins með áratuga reynslu í þjónustu við hópa. Höfum rútur af öllum stærðum og gerðum, vel búnar til aksturs sumar sem vetur og með öryggisbeltum. Ferðaskrifstofan okkar aðstoðar við skipulagningu ferða fyrir stóra jafnt sem smáa hópa. Hesthálsi 10- 110 Reykjavík sími: 587 6000 info@trex.is www.trex.is Éljagangur og fjör á Akureyri Allt áhugafólk um útivist ætti að finna eitthvað við sitt hæfi á vetrar- og útivist- arhátíðinni Éljagangi sem fram fer á Akur- eyri helgina 13. til 16. febrúar næstkomandi. Fjölbreytt menningar- dagskrá verður einnig í boði og kósý-kvöld í sundlauginni þar sem leikin verður slök- unartónlist og nuddarar bjóða upp á herðanudd. f jölbreytt og skemmtileg dag-skrá verður á vetrar- og úti-vistarhátíðinni Éljagangi sem haldin verður í fjórða sinn á Akur- eyri helgina 13. til 16. febrúar þar sem gestir geta valið um snjóþrúgu- göngu, troðaraferðir, vélsleða- og hestaferðir og þyrluskíðaferðir svo fátt eitt sé nefnt. Að sögn Maríu Hel- enu Tryggvadóttur, verkefnisstjóra hjá Akureyrarstofu, hefur hátíðin verið vel sótt undanfarin ár svo búist er við mörgum gestum og miklu lífi og fjöri í bænum þessa helgi. „Í boði verður allt það helsta í vetrarútivist í dag. Ekkert kostar inn á stóru við- burðina eins og til dæmis á sleða- spyrnuna og brettamótin en svo eru aðrir viðburðir sem ferðaþjónustuað- ilar bjóða upp á og fólk greiðir sér- staklega fyrir,“ segir hún. Á föstudagskvöldinu verður brettakeppni á Ráðhústorginu þar sem brettakappar frá Akureyri og víðar sýna listir sínar. Á laugardeg- inum stendur Brettadeild SKA svo fyrir snjóbrettamóti í Hlíðarfjalli. Shell V-POWER sleðaspyrnan verð- ur á laugardagskvöldinu í Hlíðar- fjalli. „Snjósleðaspyrnan hefur verið mjög vinsæl og dregið að sér marga áhorfendur. Hún fer fram í flóðlýs- ingu eftir að skíðasvæðinu hefur verið lokað. Þetta er útsláttarkeppni þar sem sá sem er á kraftmesta sleð- anum stendur uppi sem sigurveg- ari,“ segir María. Á Éljagangi verður haldið nám- skeið fyrir þá sem hafa áhuga á að taka þátt í keppninni um Hraðasta mann Íslands sem fram fer í Hlíðar- fjalli í mars. Sportið heitir Speed Skiing á ensku og er hraðasta óvél- knúna íþrótt í heimi og snýst um að fara á sem mestum hraða niður bratta brekku þar sem hraðinn er mældur á 100 metra löngum kafla. Vasaljósaganga verður á fimmtu- dagskvöldinu þar sem þátttakendur fara 3,5 km hring. Búið verður að slökkva á öllum ljósum svo fólk þarf að treysta á ljósabúnað sinn til að lýsa sér veginn um brautina og veitt verða verðlaun fyrir frumleg- asta ljósabúnaðinn. Fyrir gönguna verður haldið gönguskíðanámskeið, þátttakendum að kostnaðarlausu. Sundlaug Akureyrar verður opin alla helgina og á föstudagskvöld- inu frá klukkan 17 til 21 verður þar Kósý-kvöld þar sem slökunartónlist hljómar á laugarsvæðinu og nudd- arar bjóða upp á herðanudd. Á kósý- kvöldinu verður sundlaugargestum boðið upp á kakó og kaffi áður en heim er haldið. „Svo verður líka mikið um að vera hjá okkur í menn- ingunni og spennandi viðburðir hjá leikfélaginu og á tónleika- og skemmtistöðum,“ segir María. Skipuleggjendur Éljagangs eru Vetraríþróttamiðstöð Íslands, Hlíðarfjall, Akureyrarstofa, KKA og Blek. Nánari upplýsingar um dagskrá hátíðarinnar má nálgast á vefnum eljagangur.is. Brettakappar sýna listir sínar á Ráðhústorginu á Éljagangi. Ljósmynd/Auðunn Níelsson Shell V-POWER sleðaspyrnan fer fram laugardagskvöldið 15. febrúar. Keppnin er með út- sláttarsniði þar sem kraftmesti sleðinn sigrar. Sleðaspyrnan hefur notið mikilla vinsælda undanfarin ár og dregið að sér fjölda áhorfenda. Ljósmynd/Auðunn Níelsson Í vetur er boðið upp á skíðakennslu fyrir byrjendur og lengra komna í brekkunum í Bláfjöllum. Á mánu- dögum, miðvikudögum og fimmtu- dögum frá klukkan 19 til 21 er boðið upp á byrjendakennslu fyrir full- orðna. Allar helgar er svo námskeið sem kallast Skíðaskóli Bláfjalla frá klukkan 11 til 15 og er það fyrir alla aldurshópa. Verð fyrir hvert skipti er 6.000 krónur og er hádegisverður innifalinn. Fyrir þá sem vilja læra á snjóbretti eru sérstök námskeið allar helgar frá 10.30 til 14.30. Áhugasam- ir geta skráð sig á námskeiðin þar til klukkan 21 kvöldið áður. Við kaðallyftuna við Bláfjalla- skála er boðið upp á skíðakennslu fyrir alla sem vilja en þá er kenn- ari í brekkunni sem veitir kennslu í grunntækni. Ekki er um einka- kennslu að ræða og ekki farið djúpt í hlutina. Einnig er hægt að panta einkatíma hjá skíða- og brettakennurum og henta tímarnir bæði byrjendum og lengra komnum. Nánari upplýsingar um námskeiðin og einkatímana má nálgast á heimasíðu Skíðasvæðanna skidasvaedi.is Skíða- og brettaskóli Skíðakennsla verður fyrir byrjendur og lengra komna í Bláfjöllum í vetur. Í vasaljósagöng- unni eru veitt verðlaun fyrir frumlegasta ljósa- búnaðinn. Fyrir gönguna verður haldið gönguskíð- anámskeið, þátttakendum að kostnaðarlausu.

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.