Fréttatíminn


Fréttatíminn - 31.01.2014, Qupperneq 38

Fréttatíminn - 31.01.2014, Qupperneq 38
38 vetrarfjör Helgin 31. janúar–2. febrúar 2014 PIPA R \ TBW A • SÍA • 140296 Brekkurnar bíða Nánari upplýsingar á skidasvaedi.is Næstkomandi laugardag verður opnað í Skálafelli. Opið verður um helgar frá kl. 10–17 fram yfir páska. Sígildir trésleðar frá Bæjaralandi Reiðhjólaverzlunin Berlín við Snorrabraut sérhæfir sig í sígildum reiðhjólum og reið- hjólafatnaði en þar er líka að finna sígilda trésleða sem handsmíðaðir eru hjá Sirch í Bæjaralandi. Alexander Schepsky, fram- kvæmdastjóri verslunarinnar, segist alltaf hlakka til þess á hverju ári að renna sér á trésleða í Ártúnsbrekkunni með börnun- um sínum. „Síðasta vetur þegar við fórum þangað enduðum við öll á einum trésleða, fjögur börn og ég. Við náðum góðum hraða og það var svakalega skemmtilegt og eins og í rússíbana,“ segir hann. Alexander segir trésleðana frá Bæjara- landi hafa marga kosti en þeir eru ýmist smíðaðir úr beyki eða aski og því mjög endingargóðir. „Lengdin á sleðunum er frá því að vera 60 sentimetrar upp í 110 og þeir eru ýmist eins, tveggja eða þriggja manna,“ segir hann. Ýmsir aukahlutir fyrir sleðana eru fáanlegir í Berlín, eins og til dæmis bak fyrir lítil börn svo þau detti síður af. Fyrir þá sem kjósa enn þægilegra sæti er hægt að fá sleða með tausæti. Trésleðarnir í Berlín eru framleiddir hjá Sirch í Bæjaralandi. Hægt er að setja bak á þá svo lítil börn detti síður af. Sleðarnir eru ýmist eins, tveggja eða þriggja manna. Ljósmynd/Hari H já skautasvellinu í Eg-ilshöll er boðið upp á ýmis tilboð fyrir stóra og smáa hópa og er vinsælt að halda upp á barnaafmæli á skautasvellinu. Nú er boðið upp á skemmtilega nýjung sem er hópefli fyrir fyrirtæki. „Hópeflið er í samstarfi við Iceland Activities sem hefur margra ára reynslu af slíku. Þá tekur starfsfólk Iceland Activities á móti hópnum sem keppir saman í íshokkí eða krullu. Fólk fær þá lánaðan galla hjá okkur og þetta hefur verið mjög skemmtilegt,“ segir Egill Jóhannes Gomez Axelsson hjá skautasvellinu í Egilshöll. Við skautasvellið er veislusalur svo fyrirtækjahóp- arnir geta haldið góða veislu eftir leikinn og hvílt lúin bein. Barnaafmæli á skautum Á skautasvellinu er hægt að halda upp á barnaafmæli og segir Egill það mjög vinsælt. „Þá skauta börnin yfirleitt í um klukkutíma og fá sér svo pítsu. Foreldrar geta svo kom- ið með afmælisköku. Veislan endar yfirleitt á því að börnin skauta aftur í hálftíma,“ segir Egill. Sérstakt afmælistil- boð er núna og kostar þá 1.500 krónur fyrir hvern gest. Innifalið er aðgangseyrir á svellið, skautar, tvær pítsusneiðar og gos. Tilboð fyrir stóra og smáa hópa Stórir og smáir hóp- ar geta tekið sig saman og skemmt sér á skautum og séu fleiri en tuttugu í hópnum kostar aðeins 800 krónur á mann og er leiga á skautum og hjálmi þá innifalin. Af- slátturinn miðast við að greitt sé fyrir allan hópinn í einu. Að sögn Egils er mikið um að starfsmannfélög komi á skauta. „Hóparnir hafa verið allt frá því að vera fámennir upp í að telja 400 manns. Þeir hópar sem það kjósa geta svo endað skautaferðina á pítsuveislu hérna hjá okkur.“ Bókunarsími fyrir hópa er 664-9606. Opnunartímar Opið er fyrir almenning á skautasvellinu í Egilshöll alla virka daga frá klukkan 13.00 til 14.45 og miðviku- daga og föstudaga frá 17.00 til 19.00. Um helgar er opið frá 13.00 til 16.00. Fyrir þá sem koma með sína eigin skauta kostar 600 krónur inn fyrir börn en 850 krónur fyrir fullorðna. 400 krónur kostar að leigja skauta. Fjöl- skyldutilboð er fyrir fjóra en þá kostar 3.000 krónur með Hópefli í íshokkí og krullu KYNNING Skautasvellið í Egils- höll í Grafarvogi er opið almenningi alla daga vikunnar. Þar er hægt að halda upp á barnaafmæli og er sérstakt tilboð fyrir hópa sem starfsmannafélög hafa verið dugleg að nýta sér. Nýjasta nýtt hjá skautasvell- inu í Egilshöll er hópefli fyrir fyrir- tækjatækjahópa í samstarfi við Iceland Activities þar sem fólk skemmtir sér í íshokkí eða kynnist hinni stórskemmti- legu íþrótt – krullu. Á skautasvellinu í Egilshöll er hægt að halda upp á barnaafmæli eða bjóða starfsmannahópum að renna sér saman. Bókunarsíminn er 664-9606. skautum. Nánari upp- lýsingar má nálgast á síðunni egilshollin.is/ skautasvellEgill Jóhannes Gomez Axelsson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.