Fréttatíminn


Fréttatíminn - 31.01.2014, Síða 40

Fréttatíminn - 31.01.2014, Síða 40
40 vetrarfjör Helgin 31. janúar–2. febrúar 2014 Vetrar- og útivistarhátíð á Akureyri 13.-16. febrúar /eljagangurwww.eljagangur.is Lj ós m yn d: © A xe l Þ ór ha lls so n Fylgstu með Él jagangi á sjónvarpsstö ðinni N4! skíði - bretti - ískross - sleðar þyrluskíði - sleðaspyrna - ístölt gönguskíði - fjallganga - brettamót námskeið - sýningar - m enning ... og hellingur í viðbót! Skoðaðu dagskrá og viðbu rði á Útivist allt árið Laugavegi 178. Sími 562 1000. www.utivist.is Skálafell opnar á morgun Skíðasvæðið Skálafelli opnar á morgun, laugardag, og verður opið þar allar helgar fram yfir páska frá klukkan 10 til 17. Öllum börnum sem fædd eru árið 2005 og búa innan þeirra sveitarfélaga sem standa að skíðasvæðunum stendur til boða að fá fría áfyllingu á vetrarkortið sitt. Kortið sjálft kostar 1.000 krónur en þegar því er skilað eru 500 krónur endurgreiddar. Sveitarfélögin sem standa að skíðasvæðum höfuð- borgarsvæðisins eru Reykjavík, Sel- tjarnarnes, Garðabær, Mosfellsbær, Kópavogur og Hafnarfjörður. Í Skálafelli eru fjórar skíðalyftur, 1.200 metra stólalyfta, tvær sam- síða diskalyftur og ein byrjendalyfta. Á svæðinu er mjög góð aðstaða bæði fyrir skíða- og snjóbrettafólk. Þegar aðstæður leyfa eru troðnar göngubrautir austur af skíðasvæð- inu og eru vegalendir og landslag þeirra mismunandi. Snjóhúsaferð og ljósaganga Ferðafélag barnanna stendur fyrir snjó- húsaferð og ljósagöngu föstudaginn 14. febrúar þar sem kennt verður að búa til alvöru snjó- hús. Í ferðinni er ætlun- in að finna gott gil, fullt af snjó og gera ýmsar snjóhúsatilraunir. Eftir það setja allir á sig höfuðljós og skoða hinn magnaða Eldborgargíg í myrkri. Lagt verður af stað á einkabílum frá skrifstofu FÍ, Mörkinni 6, klukkan 15. Ferðin tekur þrjá til fjóra tíma og er mælt með því að allir mæti með skóflur og ljós. Nánari upp- lýsingar má nálgast á síðunni ferdafelag- barnanna.is Hæsti gos- brunnur heims, Jet d’eau, spýtir Genfarvatni 140 metra upp í loftið og setur því óneitanlega svip á borgina.  Genf IcelandaIr hefur fluG tIl borGarInnar Fína borgin við vatnið Þ að er löng hefð fyrir því að stilla til friðar í Genf. Það eru þó ekki íbúarnir sem láta svona illa enda er borgin vanalega í einu af efstu sætunum yfir lífvænleg- ustu þéttbýli jarðar. Kristján Sigur- jónsson heimsótti borgina. Við bakka Genfarvatns standa reisulegar byggingar sem hýsa fimm stjörnu hótel, frægar úrabúðir og fína veitingastaði. Í hæðunum fyrir ofan eru svo dýrustu villur álfunnar. Vatn- ið sjálft er þó leikvöllur allra borgar- búa. Á sumrin svamla þar allir sam- an og á veturna hittist fólk af öllum stéttum í gufubaðinu á La Buvette des Bain, bryggjunni sem gengur út í vatnið. Þaðan er líka fallegt útsýni til fjalla en allir tindar sem sjást frá Genf, þar á meðal Mont Blanc, eru hinum megin við landamærin. Ókeypis samgöngur Þrátt fyrir ríkidæmið þá getur venjulegt fólk notið lífsins í þessari fallegu borg þar sem 0,2 prósent íbúanna eiga Ferrari, Porsche eða Rolls Royce. Það kostar til að mynda minna að setjast á útikaffihús á Bo- urg-de-Four í gamla bænum en við Gammel Strand í Köben eða Gamla Stan í Stokkhólmi. Aðgangur að nýlistinni á Mamco safninu kostar minna en í Hafnarhúsinu og í Genf fá allir hótelgestir passa sem gildir í sporvagna, strætó og bátana sem skutla fólki yfir vatnið. Lestin til og frá flugvellinum er einnig í boði borg- arstjórnar. Það væri óskandi að fleiri sveitarfélög tækju upp þennan sið. Gjörólíkir nágrannar Íbúar Genfar urðu um langt skeið að lifa gleðisnauðu lífi að hætti Kalv- ínista. Fólkið gat þó komist út fyrir múranna af og til og þá var haldið í nærliggjandi þorp þar sem lífsins lystisemda var notið óhóflega áður en grár hversdagsleikinn í Genf tók við á ný. Þó lokaðar búðir og veitinga- staðir á sunnudögum séu sennilega það eina sem eftir er af ströngum lífsreglum Kalvínista þá nýtur ná- grannasveitarfélagið Carouge enn mikilla vinsælda meðal borgarbúa sem vilja skipta um umhverfi. Þekkt- ustu arkitektar Ítala voru fengnir til að reisa þennan kaþólska bæ í lok átj- ándu aldar og tekur aðeins nokkrar mínútur að taka sporvagn þangað frá miðborg Genfar. Sá stutti útúrdúr er tímans virði. Icelandair hefur flug til Genfar í sumar og þá gefst íslenskum ferða- mönnum betra aðgengi að heima- borg Rauða krossins, Genfarsátt- málans og Sameinuðu þjóðanna. Svissneskar og franskar nærsveitir þessarar glæsilegu borgar eru ekki síður spennandi og er jafnvel hægt að gera þeim góð skil í dagsferðum. Þá nýtist lestarpassinn sem gestir borgarinnar fá vel því hann gildir í sumum tilfellum þegar komið er út fyrir borgarmörkin. Á ferðavefnum Túristi.is má lesa meira tengt ferðalögum til Genfar og gera verðsamanburð á hótelum borgarinnar. Kristján Sigurjónsson kristjan@turisti.is Dómkirkjan er miðpunktur gamla bæjarins í Genf og úr öðrum turninum er besta útsýnið yfir borgina.

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.