Fréttatíminn - 31.01.2014, Side 48
Helgin 31. janúar–2. febrúar 201448 tíska
Tíska sýning særósar MisTar
Danstískusýning haldin
af einskærri gleði
Særós Mist var aðeins 15 ára þegar hún hélt sína fyrstu sýningu fyrir sjö árum. Nú er hún að ljúka
grunnnámi í klæðskurði og stefnir á að láta drauminn rætast og nema fatahönnum í Danmörku.
Í nýjustu línu hennar eru flíkur sem leyfa kvenlíkamanum að njóta sín og nú verður sýningin með
nýju sniði þar sem hún blandar dansi og tísku saman.
É g er búin að vera sjálf mikið í dansi og á þessa vinkonu, Rósu Rún, sem er dans-
höfundur. Hugmyndin kom því
að tískusýningar geta oft verið
svolítið óspennandi. Mig langaði
að krydda þetta aðeins og gera
þetta meira en bara tískusýningu,
fyrir utan það að dansinn er mjög
sterkur í mér,“ segir Særós Mist
Hrannarsdóttir, verðandi fata-
hönnuður, sem er að klára grunn-
nám í klæðskurði við Hönnunar
og handverksskólann í Reykjavík
og stefnir á nám í fatahönnun í
Danmörku á árinu.
„Ég fæ bara svo mikið út úr því
að útbúa sýninguna þó að það verði
ekki endilega beint framhald þá
finnst mér það líka bara allt í lagi
því að það er nóg fyrir mig að láta
þann draum rætast. Ef maður fær
viðbrögð þá er það líka mjög gam-
an. Þetta er tilraun sem er líka gerð
fyrir gleðina. Við verðum með þrjá
dansara og svo blöndum við þessu
saman en fókusinn er á tískusýn-
inguna,“ segir Særós Mist.
„Ég er mjög ánægð með námið.
Þetta er tveggja ára nám þar
sem maður lærir grunnatriðin
og er mjög tæknilegt. Ég hef líka
verið að gera mikið sjálf meðfram
náminu því að mig langaði að geta
gert mína vöru sjálf. Þetta er gott
nám sem grunnur áður en ég fer í
fatahönnunina sjálfa,“ segir Særós.
Hún var aðeins 15 ára þegar
hún hélt sýna fyrstu tískusýningu.
„Það var gert af einskærri ástríðu
og löngun og þannig er það líka
núna. Mér finnst svo gaman að
halda sýningar og skapa mínar
eigin línur en þetta er brjálæðisleg
vinna þegar maður stendur einn í
þessu,“ segir Særós Mist. Eftir sína
fyrstu sýningu seldi Særós línuna
sína í verslun sem hét Fígúra á
Skólavörðustígnum. Særós nýtur
þess að hanna á konur og hún fær
oft innblástur frá vinkonum sínum
og frá klassískri og rómantískri
tísku fyrri tíma. „Ég er mikið að
hanna samfestinga sem mér finnst
mjög skemmtilegar flíkur. Í línunni
eru líka kjólar, buxur og fágaðar
og flottar skyrtur sem mér finnst
alveg ótrúlega skemmtilegar. Ég
vil hanna föt sem konum líður vel í
og leyfa líkamanum að njóta sín. Í
þessari línu nota ég mikið siffon og
frekar matta áferð sem og stíf efni,“
segir Særós Mist. Tískusýningin
sem ber heitið „Collection Ladies“
er dagskrárliður á Vetrarhátíð í
Reykjavík og verður haldin í Menn-
ingarhúsinu Molanum að Hábraut
2 í Kópavogi þann 7. febrúar næst-
komandi og opnar húsið klukkan
18.30.
María Elísabet Pallé
maria@frettatiminn.is
Úr nýjustu línu „Collection Ladies“.
Laugavegi 178
Sími 551-3366
www.misty.is
OPIÐ:
Mán. - fös. 10 - 18,
Laugardaga 10 - 14
Dásamlega
fallegt !
Teg ELODIE
bh í 32-40 D,
DD,E,F,FF,G skálum
á kr. 10.990,-
buxur í S,M,L,XL
á kr. 5.550,-
Opnunartími: Virka daga kl. 11-18 Laugard. kl. 11-16
Laugavegi 178 ( Bolholtsmegin ) l S. 555 1516 l Kíktu á síðuna okkar
Þær eru komnar
Ítalskar buxur
á 11.900 kr.
Háar í mittið
Stretch.
Str. 34 - 46/48.
Við gerum tilboð fyrir stærri þorrablót
Nánar á noatun.is
H a m r a b o r g – N ó a t ú n 1 7 – H r i n g b r a u t – A u s t u r v e r – G r a f a r h o l t