Fréttatíminn - 31.01.2014, Síða 62
H A N D S M Í Ð A Ð Á S T A Ð N U M
L a u g a v e g i 5 2 , s í m i 5 5 2 - 0 6 2 0 , R v í k .
Demantar
Sin Fang hlaut
tvenn verðlaun
TónlisTarverðlaun Grapevine afhenT
„Hugmyndin með þessari verð-
launaafhendingu allri er að gefa
fólki klapp á bakið sem á það
vonandi skilið,“ segir Haukur S.
Magnússon, yfirritstjóri Reykjavík
Grapevine.
Tónlistarverðlaun tímaritsins
Reykjavík Grapevine voru afhent
í annað sinn um síðustu helgi.
Verðlaunað var í sex flokkum en
dómnefnd var skipuð Matthíasi
Má Magnússyni frá Rás 2, Önnu
Hildi Hildibrandsdóttur frá Nordic
Music Export og fulltrúa tónlistar-
skríbenta blaðsins, John Rogers.
Sin Fang, hljómsveit Sindra Más
Sigfússonar, þótti eiga bestu plötu
ársins, Flowers, og sömuleiðis lag
ársins, Young Boys.
Grísalappalísa var verðlaunuð
sem besta tónleikasveit landsins.
Að sögn Hauks sannaði sveitin
ágæti sitt á sviði að verðlaunaaf-
hendingunni lokinni. Eftir að hafa
leikið eigin lög fékk Grísalappalísa
sjálfan Megas á svið en við undir-
leik sveitarinnar söng Megas lögin
Björg, Ungfrú Reykjavík, Litlir sæt-
ir strákar og síðan lagið sem sveitin
er nefnd eftir, Grísalappalísa.
„Ógleymanleg stund fyrir alla við-
stadda – og sem betur fer mun hún
hafa verið tekin upp á myndband
öðrum til góða,“ segir Haukur.
Hljómsveitin múm þótti eiga
eina vanmetnustu plötu ársins
2013 og Trabant var sæmd titlinum
„Hljómsveit til að muna“. Samaris
var svo útnefnd „Hljómsveit til að
fylgjast með á komandi ári!“
Megas tróð upp með Grísalappalísu þegar tónlistarverðlaun Reykjavík Grapevine
voru afhent. Ljósmynd/Nanna Dís
Sindri Már Sigfússon átti bæði plötu
ársins og lag ársins. Hann sést hér með
ritstjórum Grapevine, Önnu Anderson
og Hauki S. Magnússyni.
Deilt um heilaga guðsmóður í bleki
Karl OTTOsen ósáTTur við húðflúr á fOrynju-flíKum
Gissur páll óperusönGvari í eurOvisiOn
Karl Ottosen Faurschou fékk sér forláta húðflúr hjá
Reykjavik Ink í fyrra. Honum brá illilega þegar hann frétti
af myndinni af Maríu mey sem hann ber á handleggnum
á flíkum frá Forynju. Hann segist hafa orðið öskureiður
enda hafi húðflúrarinn sérhannað myndina á handlegg
hans og hún sé honum mjög persónuleg.
„Myndin af Maríu mey er helguð móður minni sem ól
mig og systur mína upp ein,“ segir Karl. „Ég kæri mig
þess vegna ekki um að neinn annar beri þessa mynd.“
Ekki verður þó komið í veg fyrir það vegna þess að
töluvert hefur selst af flíkum með myndinni áprentaðri.
Karl, sem býr á Grænlandi, sendi Söru Maríu Júlíudóttur,
hönnuði hjá Forynju, harðorðan tölvupóst og segist hafa
verið dálítið dónalegur vegna þess hversu reiður hann var.
Nú er honum runnin reiðin og hann er bara leiður.
„Ég hef aldrei lent í svona áður,“ segir Sara María
sem hefur unnið mikið með Reykjavik Ink og lista-
maðurinn sem teiknaði flúrið lét hana fá myndina
út á langan kunningsskap. „Fólk hefur alltaf verið
ánægt með að sjá flúrin sín á flíkunum. Ég hef
engan áhuga á að nota myndina ef það eru einhver
leiðindi. Ég bað hann afsökunar og fullvissaði hann
um að myndin verði ekki notuð framar. Meira get
ég ekki gert og ég hélt að hann væri sáttur.“
Sara María bendir á að teikningin sé eign lista-
mannsins og hann geti ráðstafað henni að vild en
sér þyki mjög leitt að Karl taki þetta svona nærri
sér. -þþ
Karl er dapur yfir
að fólk spóki sig í
flíkum með húð-
flúrinu hans. Guðsmóðir á kjól frá Forynju.Flúrið sem Karl tileinkar móður sinni.
ó perusöngvarinn Gissur Páll Gissurarson er ýmsu vanur þegar söng-
ur er annars vegar en hann er þó
á framandi slóðum þegar hann
stígur á stokk í Söngvakeppninni
2014 og syngur Von eftir Jóhann
Helgason.
„Þetta er spennandi verk-
efni og ég held að þetta verði
bara fínt og skemmtilegt,“ segir
óperusöngvarinn hress í bragði
og bætir við að þetta sé tvímæla-
laust allt öðruvísi en það sem
hann er vanur að fást við. „En
þetta er nú bara svona. Fiðlu-
leikarinn spilar á fiðlu og fiðlar
í því sem hann er beðinn um og
ég syng í því sem ég er beðinn
um. Það er í raun ekki jafn langt
þarna á milli og margir halda
þegar veruleiki okkar söngvara
á Íslandi er hafður í huga. Ég
syng jafnhendis gömul Euro-
vision-lög og Abba-lög alveg eins
og Heyr mína bæn og svo þetta
alveg klassíska. Þannig að þetta
er fjölbreytt,“ segir Gissur Páll
sem er alvanur því að syngja
við útfarir, brúðkaup og önnur
slík tækifæri. „Stundum bregst
manni svo bogalistinn eins og
til dæmis þegar maður reynir að
syngja Johnny Cash-lög.“
Gissur Páll segir að Jóhann
Helgason, höfundur lags og
texta, hafi einfaldlega haft sam-
band við sig og beðið hann um
að vera með. „Jói Helga hringdi
í mig og sagði mér að hann hefði
samið lag sem honum fannst að
röddin mín ætti að vera í. Þetta
er svona falleg „crossover“ -ball-
aða.
Hann samdi Söknuð, sem Villi
Vill gerði náttúrlega ódauðlegt.
Það er einmitt svona lag sem
ég syng mjög oft við útfarir og
er dálítið þægilegt lag til söngs
fyrir mig. Þar þarf enga mála-
miðlun. Jói Helga er náttúrlega
konungur laglínunnar.“
Gissur Páll áttaði sig ekki á
því í upphafi að til stæði að senda
lagið til keppni. „Það var ein-
hver misskilningur og ég fattaði
ekki alveg strax að þetta væri
Eurovision-lag og maður er nú
ekkert beinlínis að trana sér
fram í slíkt. Svo gerðum við lagið
og ég komst að því að þetta væri
framlag í Söngvakeppnina. Ég
var ekkert að stressa mig yfir
því enda vissi ég að margir tækju
þátt og var ekkert sérlega von-
góður. Og nú er þetta orðið úr
og þá verður maður bara að taka
þetta alla leið og hafa gaman af
því.“
Og Gissur Páll er að sjálf-
sögðu til í að fylgja laginu alla
leið í Eurovision keppnina í
Danmörku í maí. „Það væri líka
skemmtilegt ef við færum þang-
að. Þá er þetta orðið fullorðins
eins og við segjum. Í þessu verk-
efni, eins og lang flestum verk-
efnum, hef ég að leiðarljósi að ég
mæti, syng og vona að fólkinu
líki vel og svo kemur restin bara
eins og verða vill.“
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Óperusöngv-
arinn Gissur
Páll Gissurar-
son stígur
inn í fremur
framandi að-
stæður þegar
hann syngur
lagið Von,
eftir Jóhann
Helgason,
í Söngva-
keppninni
2014. Hann
áttaði sig ekki
strax á því
að hann væri
að fara með
lagið í keppn-
ina en mætir
fjallbrattur
til leiks og er
alveg tilbúinn
til þess að
fara með
lagið alla leið
í Eurovision-
keppnina í
Danmörku í
vor.
Óperusöngv-
arinn Gissur Páll
Gissurarson hálf-
partinn slysaðist
í Söngvakeppnina
2014 með lag
eftir meistara mel-
ódíunnar, Jóhann
Helgason.
Mynd/Hari
Jafnvígur á
Abba og óperur
Ég fattaði ekki
alveg strax
að þetta væri
Eurovision-lag.
62 dægurmál Helgin 31. janúar–2. febrúar 2014