Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1960, Blaðsíða 30

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1960, Blaðsíða 30
26 SVEITARSTJÓRNARMÁL Um lyfjagreiðslur sjúkratrygginga. Framhald af bls. 21. Meðal þeirra er liið næstum illræmda meprobamat. Notkun þessa lyfs er gott dæmi þess, að íleira en greiðsluhættir sam- laga getur ráðið eftirspurninni. K. O. Möll- er uplýsir, að neyzla á lyfi þessu í Danmörku þar sem samlög greiða það aðeins í undan- tekningartilfellum, hafi numið 62 millj. töflum árið 1958, þ. e. a. s. 15.5 stk. á íbúa. 1 nóvember 1959 greiddi S.R. fyrir 52 þús. töflur og ef áætlað er, að 5% í viðbót hal'i verið keypt án þátttöku S.R. þá er ársneyzl- an tæp 10 stk. á íbúa. Enda þótt neyzla sé óhugnanlega mikil, þá gjetum við ekki kennt það þátttöku samlagsins nema að litlu leyti, ef við höfum samanburðinn við Danmörku í huga. Þessari greinargerð um nokkur þeirra vandamála, sem lyfjatryggingin hefur í för með sér, er ekki ætlað að gera upp á milli þeirra lausna, sem valdar hafa verið. Ljóst virðist, að engin þeirra liafi gefið árangur, sem kalla megi fullnægjandi, þegar í huga er haft að kjarni vandans er ekki fyrst og l’remst misnotkun manna á tryggingunni, heldur miklu fremur misnotkun lyfjanna, sem lyfjatryggingin að vísu ýtir undir, þó að með ólíku móti geti verið, eftir því hvaða fyrirkomulag er valið. Sé Jaað rétt, sem ég hef haldið fram, að ofnotkun lyfja eigi ekki nema að litlu leyti rót sína að rekja til til- vistar trygginganna, heldur eigi sér dýpri rætur, ]>á er ljóst að vandinn verður ekki leystur með breytingum á greiðslureglum Jaeirra. — Að vísu er hægt að færa niður út- gjöldin með niðurskurði á greiðslunum, og getur ])að visstdega átt rétt á sér ,en telja má víst að niðurskurðurinn yrði að vera mjög mikill (e. t. v. eins og í Noregi?) til þess að valda verulegri minnkun lyljaneyzl- unnar. Mjög náin samvinna við læknana er að mínu áliti það eina, sem getur geíið vonir um slíkan árangur. — Þekktur sér- fræðingur í lyflækningum, sem mikinn áhuga hefur á þessum efnum, hefur í þessu sambandi sagt við mig: Gefið okkur meira öryggi, fjárhagslegt öryggi gagnvart viðbrögðum hinna tryggðu og faglegt ör- yggi, með því að gera mögulegt að gefa starfandi læknum kost á námskeiðum til að halda við þekkingu sinni og fylgjast með nýjungum, — jafnvel með þátttöku- skyldu fyrir samlagslækna — þá skal lyfja- kostnaðurinn lækka. — Þessi hugmynd um áframhaldandi þjálfun með tilstyrk trygg- inganna er mjög athyglisverð. En hvað ör- yggi gegn viðbrögðum hinna tryggðu snert- ir, þá er þar í sannleika vandratað meðal- liófið. — Hins vegar verður að játa, að æski- leg íhaldssemi lækna á lyfjagjafir er líkleg til að verka á tekjur lækna í lækkunarátt, þegar til lengdar lætur. — Þetta vekur um- hugsun um möguleika að tryggja læknum, beint eða óbeint, uppbót fyrir slíkan tekju- missi. — Um fleiri ráðstafanir er að velja, sem í öðrum löndum virðast hafa gefið nokkurn árangur. Þar sem vitað er, að sam- vinna lækna og samlaga í þessu efni, hefur verið sérlega náin í Kaupmannahöfn, er það eftirtektarvert, að lyfjakostnaður sam- laganna þar er lágur í samanburði við það sem gerist í öðrum landshlutum.

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.