Sveitarstjórnarmál

Ukioqatigiit

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1960, Qupperneq 31

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1960, Qupperneq 31
SVEITARSTJÓRNARMÁL 27 Breytingar á almannatryggingalögum. Stjórnarfrumvarp lagt fram á Alþingi. Félagsmálaráðherra hefur nýlega lagt fram á Alþingi frumvarp um breytingar á almannatryggingalögunum. 1 frumvarpi þessu, sem fram er komið vegna þess, að núgildandi skerðingarákvæði gilda aðeins til ársloka 1960, er gert ráð fyrir breyting- um á ákvæðum laganna um ellilífeyri og barnalífeyri, en að öðru leyti er aðeins um að ræða orðalagsbreytingar eða sjálf- sagðar afleiðingar af niðurfellingu skerð- ingarinnár. Meginbreytingin er sú, að girnilegra verður framvegis en hingað til að fresta töku ellilífeyris. Árleg hækkun vegna frest- unar verður meiri, og við fráfall þess, sem frestað helur líl'eyristöku, getur eftirlifandi maki auk þess notið góðs af frestuninni. 1 breytingunum á barnalífeyrisákvæðun- um felst, að barnalífeyrir er færður í flokk með heimildarbótum, ef móðirin er örorku- lífeyrisþegi eða annaðhvort foreldra ellilíf- eyrisþegi. Frumvarpið er samið af nefnd þeirri, sem vinnur að heildarendurskoðun á almanna- tryggingalögunum og getið var um í síð- asta hefti. 1 greinargerð með frumvarpinu segir svo m. a.: „1 nefndinni hafa verið rædd ýmis ákvæði almannatryggingalaga, sem hún telur þurfa athugunar við. Með tilliti til þess, að ákvæði 22. gr. laganna um skerðingu lífeyris vegna annarra tekna lífeyrisþega gilda aðeins til ársloka 1960, hefur hún hins vegar orðið sammála um að láta lagabreytingar þær, sem hún telur rétt að gera og eru í beinu sambandi við niðurfellingu skerðingar- ákvæðanna, sitja í fyrirrúmi, en halda síð- an áfram staríi sínu að öðru leyti. Er efni írumvarps þessa í samræmi við það. Gert hefur verið ráð fyrir afnámi skerð- ingarákvæða við samningu fjárhagsáætlun- ar Tryggingastofnunar ríkisins og fjárlaga- frumvarps fyrir árið 1961. Þetta frumvarp lrefur ekki í för með sér breytingar á þeim áætlunum.“ Um breytingarnar á ákvæðum laganna urn ellilífeyri segir svo í greinargerðinni: „Mikill fjöldi gamals fólks lieldur áfram íullu starfi eftir 67 ára aldur. Hingað til liafa skerðingarákvæðin komið í veg fyrir að þetta fólk nyti lífeyris, en óvíst er, hve margir liefðu ella frestað töku hans. Ekki er æskilegt, að ellilífeyrisákvæðin dragi úr starfsvilja, og jafnframt er rétt að stuðla að því, að menn sjái sér hag í að fresta töku lífeyris, þar til störfum er hætt. í því skyni er hér gert ráð fyrir mun meiri hækk- un en áður, þegar frestun á sér stað, og enn fremur er það nýmæli, að framvegis nýtur eftirlifandi maki að hálfu þeirrar hækkunar, sem maður liefur unnið sér rétt til með frestun, áður en liann andast. Fram til ársloka 1955 nam árleg liækkun ellilífeyris vegna frestunar 5% af almenn- um lífeyri og gat mest numið 40% eftir 8 ára frestun. Árið 1956 var liundraðshlut- um þessum breytt í 7]/2% og 60%, en verði frumvarp þetta að lögum, verður liægt að ná allt að 67% liækkun eftir 5 ára frestun auk þeirra hlunninda, sem maki getur öðl- azt rétt á samkvæmt framansögðu. Um áhrif umræddra breytinga á útgjöld lífeyr-

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.