Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1967, Síða 8

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1967, Síða 8
Framkvæmdii' á vegum sveit- arfélagsins hafa verið svipaðar í Borgarnesi og í öðrum hliðstæð- um byggðarlögum. Vatnsveita, skólpveita, rafveita, gatnagerð og hafnargerð — auk skólabygg- inga eru helztu verkefnin. Þess- ar framkvæmdir hafa verið dýr- Halldór E. Sigurösson, sveitarstjóri. ar og erfiðar í framkvæmd, sér- staklega vatnsveitan, sem sótt er yfir Borgarfjörð í Hafnarfjall, skólpveita og gatnagerð í klett- óttu landslagi með djúpum Mýr- arsundum á milli. Þrátt fyrir Jiað hefur Jjó miðað í rétta átt, og er hluti af aðalgötu kaup- túnsins nú gerður úr stein- steypu. Borgarnes er eitt af Jæim fáu kauptúnum, sem vaxið hafa á íslandi, án þess að sjávarútveg- ur væri undirstöðuatvinnuvegur Jjess. Að vísu tóku Borgnesingar jiátt í Jjeim atvinnurekstri um skeið, þótt það sé nú liðið und- ir lok og hafi ekki haft afger- andi þýðingu fyrir vöxt byggð- arlagsins. Afkoma Borgarness hefur byggzt á verzlun, sam- göngum, Jjjónustu og iðnaði. Borgarnes er svo lánsamt að vera hluti af fögru og farsælu byggðarlagi, sem Borgarfjarðar- hérað er. Samstarf héraðsins og kauptúnsins hefur verið gott og hagsmunir beggja farið saman. Borgnesingum liefur tekizt vel með rekstur þeirra atvinnu- greina, er afkoma kauptúnsins hvílir á. Þar er nii eitt af stærstu verzlunarhúsum lands- ins. Þar er fullkomnasta og stærsta sláturliús á íslandi, hvort tveggja í eigu Kaupfélags Borg- firðinga. Þar er eitt stærsta bif- reiðaverkstæði á landinu, a. m. k. utan Reykjavíkur, sem er Bif- reiða- og trésmiðja Borgarness h.f:, og þar er rekið myndarlegt hótel. Auk þess er peningastofn- un héraðsmanna, Sparisjóður Mýrasýslu, traust stofnun í fall- egu eigin húsnæði. Borgnesingar áttu kirkjusókn að Borg, Jsar til árið 1959, að kirkja var vígð í Borgarnesi. Hefur sérstaklega vel tekizt með gerð og staðsetningu kirkjunn- ar, og er liún þannig höfundi sínum, Halldóri H. Jónssyni, arkitekt, til sóma. Þá skal þess getið, að ein mesta prýði kauptúnsins er garður sá, sem kenndur er við fyrsta landnámsmanninn, Skallagrím, og staðsettur er í miðju kauptúninu við aðalgöt- una. Garður þessi er verk, sem Kvenfélag Borgarness hefur leyst af hendi, og frú Geirlaug Jónsdóttir haft forustu þar um. Garður þessi er ekki eingöngu bæjarprýði, heldur og einnig þess valdandi, að útisamkomur eins og hátíðahöld 17. júní geta farið fram með hefðarbrag. Saga Borgarness, er hér heíur lítilsháttar verið drepið á, er saga kauptúns, sem hefur vaxið með jafnri þróun, kauptúns, sem hefur haft náið samstarf við hérað það, sem það tilheyr- ir, kauptúns, sem hefur byggt vöxt sinn á félagslegri samstöðu fólksins og framsýni forustu- og athafnamanna, sem þar hafa átt langa starfssögu. Borgarnes er kauptún, Jiar sem forsjónin lagði íbúunum til fallegt bæjarstæði, hvort sem litið er til Klettaborganna í nes- inu sjálfu, eða fram um hérað allt til jökla og heiða, yfir til Hafnarfjalls og Skarðsheiðar, vestur til Snæfellsnessfjallgarðs eða út fjörðinn til Faxaflóa, kauptún, þar sem íbúum hefur tekizt furðu vel að mæta þessari fegurð með verkum sínum og umgengni. Á tímum umrótar og margs konar breytinga í Jijóðlífinu geta ólíklegustu hlutir gerzt, svo að spádómar um framtíð- ina geta orðið haldlitlir. Þó finnst mér, að saga Borgarness og staða þess í jDjóðfélaginu nú gefi góðar vonir um framtíð Jress. Þá skoðun læt ég jafn- framt í Ijósi, að staða íslands og íslenzku Jjjóðarinnar verði Jjá á annan veg, en við nútíma- fólk óskum, ef Jrað er ekki sæmi- lega tryggt. 174 SVEITABSTJÓRNARMÁL

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.