Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1967, Blaðsíða 14

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1967, Blaðsíða 14
og tóku þá dómendur allir þátt í efnislegri afgreiðslu málsins. Með dóminum var breytt skipan all-margra starfsheita í launaflokka og virðist því valda viðmiðun við aðra kaupstaði, þótt slíkur samanburður verði oft að teljast vafasamur. Akranes, Vestmannaeyjar Á Akranesi felldu bæjarstarfs- menn með atkvæðagreiðslu að segja upp gildandi kjarasamn- ingi og í Vestmannaeyjum var samningnum heldur ekki sagt upp. Samkvæmt 8. gr. reglug. um kjarasamninga starfsmanna sveitarfélaga framlengist kjara- samningur um eitt ár í senn, ef honum er ekki sagt upp. Gilda því óbreyttir samningar á þess- um stöðum til ársloka 1968, ef fylgt verður framangreindu reglugerðarákvæði. Akureyri Samningum var þar sagt upp, en nýir samningar höfðu ekki komizt á, þegar frestir til að semja runnu út. Málinu var þó ekki vísað til Kjaradóms, ogmun það hafa stafað af því, að aðilar töldu sig liafa góða möguleika á að semja. Þegar þetta er ritað, er samningum ekki lokið, en samkomulagsgrundvöllur talinn vera fyrir hendi. Ljóst er, að meðferð máls þessa hefur ekki að öllu leyti verið í samræmi við reglugerð um kjarasamninga starfsmanna og mun nú t. d. of seint að leita úrskurðar Kjaradóms, ef svo færi, að samningar tækjust ekki. * ☆ Þetta stutta yfirlit er tekið saman í fréttaskyni að beiðni Sambands fsl. sveitarfélaga. Hér er því ekki vettvangur til að ræða meðferð kjaramála sveitar- félaganna almennt eða draga ályktanir út frá þeirri reynslu, sem fengizt hefur. Óhætt mun þó að fullyrða, að undangengnir samningar hafa sannað, að gild- andi reglur um þetta efni eru gallaðar og ekki nægilega sniðn- ar við þarfir sveitarfélaganna. Sveitarfélögin verða að fá að- stöðu til að hafa áhrif á setn- ingu nýrra reglna og eitt af því, sem breyta þarf, er að skapa þeim möguleika til miklu nán- ara samstarfs um kjarasamninga. Að lokum er rétt að benda á, að í hinum nýju dómum Kjara- dóms virðist felast vísbending um það, að nauðsynlegt sé að huga vandlega að lagareglum um meðferð kjarasamninga, svo aðilar verði ekki fyrir máls- spjöllum af formsástæðum. RAÐSTEFNA UM HEILBRIGÐISMÁL HALDIN Á HUSAVÍK Stjórn sjúkrahússins á Húsa- vík og Húsavíkurkaupstaður hafa ákveðið að efna til ráð- stefnu um heilbrigðismál. Verð- ur ráðstefnan haldin á Húsavík laugardaginn 13. janúar n.k. Á dagskrá ráðstefnunnar verður skipulag læknisþjónustu á Norð-Austurlandi, heilsu- verndarstöð á Húsavík, sjúkra- húsbygging á Húsavík, rekstur sjúkrahússins þar og málefni sjúkrasamlaganna. Framsöguerindi verða flutt um hvern dagskrárlið, en síðan fara fram frjálsar umræður. Á ráðstefnunni er ætlunin að ræða þau vandamál, sem við er að glíma í heilbrigðismálum á Norð-Austurlandi, gera tillögur um lausn þeirra og reyna að ná samkomulagi innan landshlut- ans um ýmsar endurbætur á skipulagi lækna- og heilbrigðis- þjónustu. Er til ráðstefnunnar boðið öllum oddvitum í Þing- eyjarsýslum austan Vaðlaheiðar, sjúkrasamlagsformönnum og læknum. Einnig hefur heilbrigðismála- ráðherra verið boðið á fundinn. Þess skal getið, að nú mun vera læknislaust á svæðinu frá Húsavík til Egilsstaða. 180 SVEITARSTJÓRNARMÁL

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.