Sveitarstjórnarmál - 01.12.1967, Blaðsíða 33
íulltrúar velflestra sveitarfélag-
anna svo og alþingismenn kjör-
dæmisins.
II. fundur 28. apríl, um at-
vinnumál Austurlands. Fundur-
inn var haldinn með atvinnu-
rekendum, og var sett á lagg-
irnar sameiginleg nefnd sveitar-
stjórna og atvinnurekenda til að
kanna viðhorf í atvinnumálum.
III. fundur 17. júlí, einnig um
atvinnumál. Að fundinum stóðu
líka félag síldarsaltenda og Síld-
arverksmiðjusamtökin í Austur-
og Norðurlandi. Var á fundin-
um rætt um fjárhagsörðugleika
atvinnufyrirtækja og sveitarfé-
laga á Austurlandi á síðast liðnu
sumri.
IV. fundur 30. júlí, um sam-
göngumál Austurlands. Á fund-
inum voru Jónas Haralz, for-
stjórij Efnahagsstofnunarinnar
og Brynjólfur Ingólfsson, ráðu-
neytisstjóri í samgöngumála-
ráðuneytinu, en þeir ferðuðust
þá um Austurland og kynntu sér
vega- og samgöngumál.
ERINDI
Á FUNDINUM.
Á aðalfundinum voru flutt
þrjú erindi:
Magnús E. Guðjónsson, fram-
kvæmdastjóri, flutti erindi um
Lánasjóð sveitarfélaga. Torfi
Ásgeirsson, skrifstofustjóri,
Efnahagsstofnuninni, flutti er-
indi um áætlunargerð sveitar-
félaga. Reynir Zoega, vélsmíða-
meistari, Neskaupstað, flutti er-
indi um raforkumál Austur-
lands, en hann á sæti í Laxár-
nefnd, sem nú athugar lausn á
raforkuþörf Norður- og Austur-
lands.
Ennfremur fluttu ávörp á
fundinum alþingismennirnir
Eysteinn Jónsson og Lúðvík Jós-
epsson, og Jónas Pétursson lagði
fram til athugunar frumvarp til
laga um skipan prestakalla og
kristnisjóð. Alþingismönnum
Austurlands, sem ekki voru full-
trúar sveitarfélaga, var boðið að
koma til fundarins.
SJÖ STARFS-
NEFNDIR.
Kosnar voru starfsnefndir til
að fjalla á fundinum um ein-
stök hagsmunamál Austfirðinga.
Nefndir þessar voru mennta-
málanefnd, samgöngumála-
nefnd, sem fjallaði um lög sam-
bandsins á fundinum, en síðan
var kosin þriggja manna nefnd,
til að endurskoða lög sambands-
ins milli aðalfunda.
Gerðar voru umfangsnriklar
ályktanir um atvinnumál Aust-
fjarða, menntamál, sanrgöngu-
mál og laxastiga í Lagarfljóti, og
þykir rétt að birta hér hluta
þeirra ályktana, einkum þær,
sem sveitarstjórnir varðar beint.
SAMRÆMING
í SKÓLAMÁLUM.
Um menntamál var samþykkt
svofelld ályktun:
„ASalfundur Sambands sveitar-
félaga f Austurlandskjördæmi, liald-
inn að Höfn í Hornafirði dagana
16. og 17. september 1967, lítur
svo á, að hraða beri samræmingu
og uppbyggingu skólamála á Aust-
urlandi.
I því sambandi leggur fundur-
inn áherzlu á eftirfarandi atriði:
I. að námi á barnafræðslu- og
unglingastigi verði lokið heima í
skólahéruðunum. Þar sem á skortir
möguleika til framkvæmda 1 þeim
efnum, verði að því stefnt, að tvö
að fleiri nærliggjandi sveitarfélög
Bjarrii ÞórÖarson, bœjarstjóri.
SVEITARSTJÓRNARMÁL
199