Sveitarstjórnarmál - 01.12.1967, Blaðsíða 13
reglumenn hjá Reykjavíkur-
borg, og verður í svipinn að líta
svo á, að gildandi kjaraákvæði
framlengist sjálfkrafa um eitt
ár frá 1. jan. n.k. Ef um semdist
milli aðila, gætu þeir gert nýjan
kjarasamning, en ekki virðist
kleift að leggja málið fyrir
Kjaradóm aftur, nema með
reglugerðarbreytingum.
Hafnarfjörður, Kópavogur,
Keflavík
Viðkomandi starfsmannafélög
í þessum kaupstöðum sögðu upp
samningum, en í lok þess frests,
sem ætlaður var til sátta, höfðu
nýir samningar ekki komizt á,
og boðaði ríkissáttasemjari þá
til fundar með samninganefnd-
um allra ofangreindra aðila í
Alþingishúsinu í Reykjavík.
Nóttina áður höfðu samning-
ar verið undirritaðir hjá Reykja-
víkurborg, og voru þeir hafðir
til hliðsjónar við samningsgerð-
ina. Tókust samningar við
starfsmenn allra kaupstaðanna
og voru undirritaðir aðfaranótt
1. nóv. s.l. Yfirleitt voru gild-
andi samningar framlengdir
með minni háttar breytingum á
launaflokkum og vinnutíma-
reglum breytt til samræmis við
Reykjavíkurborg. Samið var um
að fara eftir launastiga ríkis-
starfsmanna.
Isafjörður
Samningum var þar ekki lok-
ið á tilskildum tíma og var mál-
inu vísað til Kjaradóms. Áður
en til dóms kom, höfðu aðilar
náð samkomulagi um nýjan
kjarasamning, er mjög var á
sömu lund og hjá áður greind-
um kaupstöðum. Var þá kjara-
dómsmálið fellt niður með sam-
eiginlegri yfirlýsingu fyrir dóm-
inum, eða eins konar réttarsátt.
Siglufjörður
Samningar tókust þar ekki og
gekk málið til Kjaradóms. Dóm-
ur var kveðinn upp í því 30.
nóv., og er hann á ýmsan hátt
athyglisverður. Dómendur
greindi á um það, hvort vísa
skyldi málinu frá, og skiluðu
tveir dómenda sératkvæði og
lögðu til, að það yrði gert, þar
sem sátta hefði ekki verið leitað
á réttan hátt. Meiri hluti dóms-
ins vildi hins vegar dæma málið
efnislega og réði sú niðurstaða,
LAUNIN
frá 1. desember 1967
Breyting hefur orðið á launum starfsmanna sveitar-
félaga, sem taka laun samkvæmt launaskrá sambands-
ins, sem hefur sömu flokkaskipan og launastigi ríkis-
starfsmanna. Frá og með 1. desember s. 1. ber að
reikna 19.16% verðlagsuppbót á grunnlaun, og fer
launastiginn hér á eftir:
Launa- Byrjunar- Eftir Eftir Eftir Eftir Eftir
flokkur laun 1 ár 3 ár 6 ár 10 ár 15 ár
i. 7.023
2. 7.315
3. 7.638
4. 7.943 8.383 8.718 9.069 9.437 9.818
5. 8.266 8.718 9.069 9.437 9.818 10.197
6. 8.602 9.069 9.437 9.818 10.197 10.608
7. 8.895 9.392 9.770 10.148 10.556 10.978
8. 9.171 9.530 9.905 10.310 10.712 11.145
9. 9.436 9.807 10.208 10.608 11.037 11.479
10. 9.710 10.107 10.503 10.927 11.365 11.817
11. 10.107 10.503 10.927 11.365 11.817 12.297
12. 10.503 10.927 11.365 11.817 12.297 12.779
13. 10.927 11.365 11.817 12.297 12.779 13.301
14. 11.365 11.817 12.297 12.779 13.301 13.824
15. 11.817 12.297 12.779 13.301 13.824 14.375
16. 12.297 12.779 13.301 13.824 14.375 14.955
17. 12.779 13.301 13.824 14.375 14.955 15.549
18. 13.301 13.824 14.375 14.955 15.549 16.171
19. 14.036 14.798 15.619 16.482 17.387 17.387
20. 14.798 15.619 16.482 17.387 18.347 18.347
21. 15.619 16.482 17.387 18.347 19.352 19.352
22. 17.387 18.347 19.352 19.352 20.412 20.412
23. 19.352 19.352 20.412 20.412 21.543 21.543
24. 20.412 20.412 21.543 21.543 22.715 22.715
25. 21.543 21.543 22.715 22.715 23.973 23.973
26. 23.973 23.973 23.973 23.973 25.288 25.288
27. 26.673 26.673 26.673 26.673 26.673 26.673
28. 28.143 28.143 28.143 28.143 28.143 28.143
179
SVEITARSTJÓRNARMÁL