Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1967, Síða 12

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1967, Síða 12
MAGNÚS ÓSKARSSON, hrl. vinnumálafulltrúi Reykjavíkurborgar: KJARA- SAMNINGAR OPINRERRA STARFS- MANNA 1967 Síðustu kjarasamningar op- inberra starfsmanna tóku gildi 1. jan. 1966 og skv. gildandi að- alreglu í lögum og reglugerð var gildistími þeirra ákveðinn tvö ár, þ. e. til ársloka 1967. í byrjun þessa árs gerðist það hins vegar, að B.S.R.B. og fjár- málaráðuneytið sömdu um að fresta um eitt ár ákvörðun um skipan ríkisstarfsmanna í launa- llokka. Verður það því í árslok 1968, sem fyrir liggur niðurstaða um þetta efni hjá ríkinu, en þeir, sem hækka í launaflokki, fá þá hækkun greidda frá 1. jan. 1968, eða eitt ár aftur í tímann. Ekki var við samkomulag þetta tekin afstaða til starfs- manna sveitarfélaga og gilti því reglug. nr. 159/1962 áfram óbreytt um meðferð kjaramála þeirra, að öðru leyti en því, að frestir til samninga og sátta færðust nokkuð til. Samkvæmt hinum breyttu reglum átti því aðeins að semja um launastiga og vinnutíma hjá ríkinu, en auk Jress um launa- flokka hjá sveitarfélögunum. Skal nú í örfáum dráttum lýst, hvernig samningar Jtessir gengu fyrir sig, að svo miklu leyti sem Jtað liggur ljóst fyrir nú, um miðjan desember. Ríkisstarfsmenn Samningar tókust ekki um launastiga eða reglur um vinnu- tíma o. fl. (launaflokkum var eins og áður segir frestað) og gekk mál ríkisstarfsmanna því til Kjaradóms. Var dómur í mál- inu kveðinn upp 30. nóv. sl. Að- alniðurstaðan varð sú, að launa- stiginn er óbreyttur, en starfsald- urshækkanir koma nokkuð fyrr en áður. Nokkrar breytingar urðu á reglum um vinnutíma og verður um það efni að vísa til dómsorðsins, sem birt hefur verið opinberlega. Reykjavíkurborg Þar fóru fram samningar við Jrrjú félög opinberra starfs- manna, Starfsmannafél. Reykja- víkurborgar, sem í eru flestir fastir borgarstarfsmenn, Hjúkr- unarfélag íslands og Lögreglu- félag Reykjavíkur. Samningar tókust við Starfs- mannafélagið og Hjúkrunarfé- lagið um launaflokka og vinnu- tímareglur, sem gilda til næstu tveggja ára, en samið var um að fara eftir Jteim launastiga, sem dæmdur yrði hjá ríkinu. Við samninganefnd Lögreglu- félagsins náðist samkomulag, sem undirritað var af aðilum með fyrirvara, en síðan felldi fé- lagsfundur lögreglumanna sam- komulagið og var þá málinu vís- að til Kjaradóms. Dómur Kjara- dóms var kveðinn upp 30. nóv. sl. og var hann á Jrá leið, að málinu var vísað frá dómi og, að Jrví er virðist, vegna þess, að ekki hafi verið gætt réttra lagareglna við uppsögn gildandi kjara- samnings, einkanlega að jrví er varðar tilkynningar til ríkis- sáttasemjara. Engin ný kjaraákvörðun hef- ur því fengizt varðandi lög- 178 SVEITARSTJÓRNARMÁL

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.