Sveitarstjórnarmál - 01.12.1967, Síða 16
dóttursonur ábóta. Dálæti ábóta á Þórði gekk svo
langt, að hann í'ór með honum í bónorðsför og
bað honum til lianda auðugrar stúlku, dóttur sr.
Þórðar Einarssonar í Hítardal. Mun þetta hafa
gerzt laust fyrir 1550, en það ár er Þórður setztur
að í Þingnesi í Borgarfirði, enda biskupar þá
Jón Arason þar tvö barna hans. Varð Þórð-
ur þó fljótlega hallur undir siðaskiptamenn,
enda fyrst efldur til metorða úr þeirri átt. Borgar-
fjarðarsýslu hlaut hann eftir Odd Gottskálks-
son og síðar Þverárþing vestan Hvítár (Mýra-
sýslu). Að auki halði hann á hendi prófastsstörf
í Borgarfjarðarsýslu, unz veraldlegum valds-
mönnum var bannað að vasast í slíku 1574. Þess
skal getið, að síðari hluta ævinnar naut Þórður
nokkurrar aðstoðar sonar síns, Gísla, við sýslu-
mannsstörfin. Gísli þessi varð síðar lögmaður
og kemur nokkuð við þessa sögu.
Eftir lát Páls Vigfússonar var Þórður einn af
þremur mönnum, sem komu til greina við lög-
mannskjör. Hlaut hann kosningu, en ekki verður
nú séð, að hann hafi leitað á henni konungsstað-
festingar. Efldist Þórður mjög að auði og áhrif-
um, er árin liðu. Hann var og yfirleitt í góðu
vinfengi við hirðstjórana, ef deilurnar við Jóhann
Bockholt eru undanskildar. Deilum þessum lauk
með algerum sigri Þórðar. Lögmannsdæminu
sagði Þórður af sér við lát embættisbróðurins
1606, en sjálfur andast hann árið 1609.
JÓN JÓNSSON
FRÁ SVALBARÐI
Kemur þá röðin að Jóni Jónssyni írá Svalbarði,
en hann þótti í flestu fyrir þeim lögmönnunum.
Jón er fæddur árið 1536. Hann stundaði nám
hjá sr. Birni Markússyni, sem hélt Möðruvalla-
klaustur um miðja 16. öld, en ekki er nú vitað,
hvernig þeirri menntun var háttað, en víst er,
að lögmaður var mjög vel að sér um lögfræðileg
og söguleg efni. Safnaði hann m. a. talsverðu af
Guðbrandur biskup Þorláksson, aðal andstœðingur
Jóns lögmanns og um leið Uelzti stuðningsmaður konungs-
valds af innlcndum mönnum á þessurn ttma.
Talið er, að málverk þetta af Guðbrandi sé elzta andlits-
mynd, sem til cr af íslendingi.
182
SVEITARSTJÓRNARMÁL