Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1967, Síða 24

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1967, Síða 24
gefa þeir það svar, að þeir vilji ekki taka upp á sig óvild eða ómak fyrir ekkert, með því þeirra skikkanir verða sumar ei mikils aktaðar, þó lög- legar sýnist.“ Við athugun á skjali þessu verður ljóst, að fyrsti hlutinn fjallar um þau verkefni, sem nú liggja flest undir hreppstjóraembættið, en hinir, að kafla númer tvö undanskildum, um verkefni, sem nú teljast í verkahring sveitarstjórnarmanna. Eftirtektarvert er, hve víða störfum hreppstjóra er ætlað að grípa inn í daglegt líf hreppsbúa, enda má segja, að þeim sé ekki aðeins ætlað að hafa yfirumsjón með búrekstri bænda, heldur skyldu þeir að auki liafa eftirlit með klæðaburði hreppsbúa og ölkaupum. Ákvæðið um umsjón með vega- og brúargerð er athyglisvert, enda ekki kunnugt urn framkvæmdir að ráði í þeim efnum á þessu tímabili. Með réttarbót frá 1294 var sýslumönnum gert að sjá um verk af þessu tagi, en líklegt má telja, að þeir haff falið lirepp- stjórum framkvæmdir innanhreppa. S VEIT ARFÉLÖG OG KIRKJA Samstarf sveitarfélaga og kirkju varð þegar í kaþólskri tíð allnáið hér á landi. Upphaf þessa samstarís má rekja til þeirrar ákvörðunar Giss- urar biskups Isleifssonar að fela hreppunum á hendur skiptingu tíundar, er hún var leidd í lög 1097. Ekki er nú fullvíst, hvaða ástæður lágu fyrir þessari skipan mála, en ætla má, að nokkru hafi valdið sú staðreynd, að hér voru til félagslegar einingar (hrepparnir), sem annast gátu verkefnið, svo og hitt, að prestar voru þá hvergi nærri jafnmikils metnir og síðar varð, enda fundust þess dæmi, að þeir væru settir á bekk með vinnumönnum. I skjali einu, tíundarstat- útu Gissurar, er ákvæði um, að fimm menn skuli taka í hrepp hverjum til að skipta tíundum og matgjöfum og taka eiða af mönnum á haust- þingi í hrepp, en þing voru hið gamla stjórnar- íorm germanskra þjóðflokka. Athyglisvert er, að hreppstjórar eða sóknarmenn, en það er hið venjulega embættisheiti þessarar stéttar í Grá- gás, eru hér ekki nefndir á nafn. Engum getum verður hér leitt að ástæðunni fyrir þessu, en látið nægja að fullyrða, að embætti tíundarskiptingar- manna hafi annaðhvort runnið saman við hrepp- stjóraembættin eða séu upphaf þeirra. Tekið skal fram, að fræðimenn greinir á um, hvort texti tíundarstatútunnar hafi varðveitzt með öllu óbrjálaður. Á hinn bóginn er fullvíst, að hrepp- stjórar önnuðust síðar um langan aldur skiptingu tíundar, en það var í ósamræmi við kirkjulög. í Svíþjóð 16) var þetta starf annaðhvort í höndum kirkjunnar sjálfrar eða hún fól bændum fram- kvæmd þess. SAMEINING HREPPA Hin fornu sveitarstjórnarlög munu ásamt stjórnskipun þjóðveldisins vera merkasta fram- lag íslendinga til félagsmála umheimsins. I Grá- gás 17) er rnælt fyrir um, að landinu skuli skipt í löghreppa, en í löghreppi byggju tuttugu bænd- ur hið fæsta, sem guldu þingl'ararkaup. Ekki er vitað um fjölda hreppa á þjóðveldisöld, en þeir voru 162, er Árni Magnússon og Páll Vídalín tóku manntal sitt árið 1703. Nú eru sumir þessara hreppa þannig í sveit settir, að ekki kemur til mála, að þar hal'i búið 20 þingfararkaupsbændur. Verður þá annaðhvort að ætla, að ekki hafi í öllum tilvikum verið farið eftir þessu ákvæði Grágásar eða, að hreppar þessir hafi myndazt við klofningu annarra stærri eftir þjóðveldisöld. Þess eru dæmi, að tveir hreppar eru ein dóm- þinghá frarn eftir öldum, en slíkt telur Ólafur Lárusson 18) bera vott um, að þeir hafi verið eitt sveitarfélag, er Jónsbók var samþykkt 1281, en þá fá hreppar fyrst þetta verksvið. Þannig voru 190 SVEITARSTJORNARMÁL

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.