Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1967, Page 35

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1967, Page 35
að í undirbúningi er stofnun lækna- stöðvar á Fljótsdalshéraði. En fundurinn bendir á, að engin fullnægjandi löggjöf um slíkar stofnanir er til, en án slíkrar lög- gjafar verði þeim varla komið á fót. Fundurinn beinir þeim tilmæl- um til þingmanna kjördæmisins, að þeir flytji á næsta Alþingi tillögu til þingsályktunar um að heilbrigð- ismálaráðherra verði falið að láta semja og leggja fyrir Alþingi frum- varp til laga um læknamiðstöðvar. I frumvarpi þessu verði m. a. kveðið á um starfssvið þessara stofnana og fjárhagsgrundvöll þeirra. II. Stefna ber að því, að a. m. k. eitt sjúkrahús í fjórðungnum fái komið á þriggja deilda skiptingu, þ. e. handlækninga-, lyflækninga- og röntgendeildum. Vegna rnikils stofn- og rekstrarkostnaðar telur fundurinn, að þetta mál verði ekki leyst af einu sveitarfélagi. Eigi sveit- arfélögin í kjördæminu að leysa þetta mál, verða þau að sameinast um lausn þess, en eðlilegast telur fundurinn, að slík sjúkrahús verði að öllu leyti kostuð af ríkinu. III. Teknar verði upp lækninga- ferðir sérfræðinga um landið eftir því sem fært þykir, með svipuðum liætti og nú á sér stað um ferðir augnlækna. ELLI- OG HJÚKRUNAR- HEIMILI Á EGILSSTÖÐUM. IV. Fundurinn fagnar því, að samkomulag hefur tekizt með mörg- um hreppum um byggingu og rekst- ur elli- og hjúkrunarheimilis á Eg- ilsstöðum og hvetur önnur sveitar- félög til þess að fara að dæmi þeirra. Eundurinn telur óréttmætt að stofn- og rekstrarkostnaður hvíli á sveitar- félögunum einum. Beinir fundurinn þeini tilmælum til þingmanna kjördæmisins, að þeir flytji á næsta Alþingi frum- varp til laga þess efnis, að ríkis- sjóður taki hlutfallslega jafn mik- inn Jtátt í stofn- og reksturskostnaði elliheimila eins og honum ber að greiða til sjúkrahúsa. V. Fundurinn telur, að tann- læknaþjónusta í fjórðungnum sé óviðunandi og álítur, að ekki megi dragast að bæta þar úr. Hvetur fundurinn sveitarfélögin til þess að Garöar Guðnason, oddviti. taka þetta mál til meðferðar og sameinast um lausn þess eftir því, sem aðstæður leyfa. L AGARFOSSVIRK JUN. Um raforkumál var gerð svo- felld ályktun: „Aðalfundur Sambands sveitar- félaga í Austurlandskjördæmi, hald- inn að Höfn í Hornafirði 16.-17- september telur, með hliðsjón af þeim athugunum, sem fyrir liggja, að raforkumálum Austurlands sé bezt borgið með virkjun í Lagar- fossi og beinir þeirri áskorun til ríkisstjórnarinnar, að unnið verði að því máli þannig, að sú virkjun geti komið í notkun eigi síðar en á árinu 1970. Ennfremur verði flýtt, svo sem auðið er, lagningu á dreifi- línum og samtengingu svæða á Austurlandi og gerðar um það end- anlegar áætlanir. Þá verði einnig athugað, hvort lausn á raforkumál- um Austur-Skaftfellinga verði ekki bezt borgið með virkjun Srnyrla- bjargaár, unz af samtengingu gæti orðið. Þá felur fundurinn stjórn sam- bandsins að kjósa þriggja manna raforkumálanefnd þegar Laxár- nefnd verður lögð niður, ef þurfa þykir, og skal hún starfa fram að næsta aðalfundi." SAMVINNA SVEITARFÉ- LAGA UM TÆKNISTÖRF. Loks gerði fundurinn svo- fellda ályktun: „Fundurinn skorar á væntanlega stjórn sambandsins að athuga mögu- leika á að koma á fót samvinnu sveitarfélaga um tæknistörf, t. d. með stofnun verkfræðiskrifstofu, og felur stjórninni að beita sér fyrir slíkri samvinnu, ef fært þykir." Reynir Zoega, verkstjóri. RÁÐINN STARFSMAÐUR. í áliti fjárhagsnefndar fund- arins kom m. a. fram, að ár- gjald sveitarfélaga á Austur- landi til sambandsins fyrir árið 1968 verði 0,5% af álögðum út- svörum og aðstöðugjöldum á ár- SVEITARSTJÓRNARMÁL 201

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.