Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1967, Side 37

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1967, Side 37
TIL ATHUGUNAR VIÐ SAMNINGU FJÁRHAGSÁÆTLUNAR FYRIR 1968 Við samningu fjárhagsáætlunar fyrir árið 1968 eru nokkur atriði sameiginleg flestum eða cillum sveit- arfélögum, svo sem framlag úr Jöfn- unarsjóði sveitarfélaga og útgjökl til almannatrygginga, sem vitneskja þarf að vera um, áður en gerð fjár- hagsáætlunar liefst. Þykir því rétt að gera hér stuttlega grein fyrir þeim breytingum, sem vænta má að verði á þessum liðum fjárhagsáætl- unar vegna gengisbreytingarinnar í nóventbermánuði og fyrirhugaðrar hækkunar á bóturn almannatrygg- inganna. Þá verður einnig sagt frá framlagi úr vegasjóði til þéttbýlis- sveitarfélaga. FRAMLAG FRÁ JÖFNUNARSJÓÐI. Tekjur Jöfnunarsjóðs sveitarfé- laga eru 5% af aðflutningsgjöldum og 20% af innheimtum söluskatti. A nýsamþykktum fjárlögum fyrir árið 1968 eru tekjur þessar áætlað- ar kr. 117.800 þús. af söluskatti og 96.350 þús. af aðflutningsgjöldum. Ennfremur koma í Jöfnunarsjóð s/ hlutar landsútsvara. Er sú fjárhæð áætluð 39 milljónir króna, en 1/ hluti landsútsvara rennur til sveit- arfélaga, þar sem landsútsvörin falla til. Samtals eru þessar tekjur Jöfnunarsjóðs kr. 253.150 þús. Áður en til skiptingar kemur milli sveitarfélaga, dragast frá tekj- unt Jöfnunarsjóðs kr. 15 millj. til Lánasjóðs sveitarfélaga. Þá er heini- ilt að halda eftir allt að 3% eða 7.6 millj. króna vegna aukaframlaga til sveitarfélaga, og 0.5% af tekjum sjóðsins renna til Sambands ís- lenzkra sveitarfélaga. Dragast því< frá tæpar 24 millj. króna, en til skipta milli sveitarfélaga koma lið- lega 229 millj. króna. Miðað við áætlaða íbúatölu hinn 1. des. s.l. koma á íbúa kr. 1146 árið 1968. Hér er að sjálfsögðu um áætlun- artölur að ræða. Þó virðist mega áætla á fjárhagsáætlun fyrir árið 1968 kr. 1100 til 1150 krónur á íbúa eftir því, hve varlega menn vilja áætla tekjur. ÞÉTTBÝLISFÉ VEGASJÓÐS. Framlag úr vegasjóði til sveitar- félaga með 300 íbúa eða fleiri i þéttbýli, skv. 32. gr. vegalaga, verð- ur á árinu 1968 kr. 230 á íbúa. Fjár- hæðin miðast við vegaáætlun fyrir árið og breytist því ekki. Þjóðvega- fé til kaupstaða og kauptúna skipt- ist eins og Jöfnunarsjóðsframlagið ntiðað við íbúatölu hinn 1. des. ár- ið á undan. Það kemur til útborg- unar til þeirra sveitarfélaga, sem hafa með höndum gerð gatna úr varanlegu efni eða undirbúa slíka gatnagerð, svo sem nánar er til- greint í reglugerð um ríkisframlag til þjóðvega í kaupstöðum og kaup- túnum nr. 257, 1964, en reglugerð- in var birt í 3. hefti Sveitarstjórnar- mála 1966. Fjárhagsáætlun um gatnagerðarframkvæmdir ber að gera fyrirfram, og er háð samþykki vegamálastjóra. LAUN OG REKSTURS- KOSTNAÐUR. Launastigi fastra starfsmanna sveitarfélaga er birtur á bls. 179 i þessu hefti. Við afgreiðslu fjárlaga var gert ráð fyrir 3.39% hækkun launa á árinu. Viðhald var liækkað um 10% og önnur rekstrarútgjöld um 20%, og er þá ekki gert ráð fyrir, að vinnulaun séu meðtalin í þeim, heldur kaup rekstrarvara að ntestu leyti. FRAMLAG TIL ALMANNATRYGGINGA. Sveitarfélögum er á árinu 1967 gert að greiða vegna lífeyristrygg- inga samtals 158.4 millj. króna. Hliðstæð fjárhæð er áætluð árið 1968 175.1 millj. króna. Hækkun frá yfirstandandi ári nemur 10.5%. Hér er um meðaltalshækkun að ræða, en hækkun verður eðlilega nokkuð misjöfn hjá einstökum sveitarfélögum. Framlagið fer eftir 27. gr. laga um almannatryggingar nr. 40, 1963. Innan hvers sýslufélags skiptist framlag til trygginganna að 1/3 hluta eftir hreinum tekjum ein- staklinga og félaga í sveitarfélaginu árið áður, að i/3 í hlutfalli við fast- eignamat allra eigna og að /3 í hlut- falli við fjölda íbúa á aldrinum 16— 67 ára í sveitarfélaginu. Skipting milli kaupstaða og sýslufélaga er á þann veg, að 2/ hlutum er skipt niður í beinu hlutfalli við saman- lögð útgjöld lífeyristrygginganna ár- ið á undan, 2/ hlutum í hlutfalli við hreinar tekjur einstaklinga og fé- laga og að i/s hluta í hlutfalli við tölu íbúa á aldrinum 16—67 ára. Hvort áætla ber frantlagið árið 1968 undir eða yfir meðaltalshækkuninni 10.5% er komið undir þeim breyt- ingum, sem orðið hafa á framan- greindum þáttum í sveitarfélaginu á yfirstandandi ári frá árinu á undan. SVEXTARSTJÓRNARMÁL 203

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.