Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.04.1981, Síða 26

Sveitarstjórnarmál - 01.04.1981, Síða 26
Ný gjaldskrá Rafmagnsveitna ríkisins Á ráðstefnuna komu tveir emb- ættismenn Rafmagnsveitna ríkisins, Stefán Arngrímsson, yfireftirlits- maður, og Snorri F. Wending, inn- heimtustjóri, og útlistuðu þær breyt- ingar, sem orðið hefðu með nýrri gjaldskrá Rafmagnsveitna ríkisins, sem öðlaðist gildi nýlega, einkum að því er sveitarfélög varðar. Aftar í þessu tölublaði birtist grein eftir Stefán Amgrimsson um sama efni. Fjórir umræöuhópar Að loknum sameiginlegum fund- arstörfum í Súlnasal Hótel Sögu skiptust þátttakendur í þrjá um- ræðuhópa, sem störfuðu samtímis, og nokkru síðar tók til starfa fjórði hópurinn. Fyrsti hópurinn ræddi um nýtingu tölvu við vinnslu ýmiss konar gagna, við launaútreikninga og gerð orku- reikninga. Logi Kristjánsson, bæjar- stjóri, og Garðar Sigurgeirsson, við- skiptafræðingur, stýrðu umræðum í þeim hópi. Annar umræðuhópurinn fjallaði um gerð fjárhagsáœtlana hinna fámennari hreppa, niðurstöður ársreikninga þeirra og uppsetningu þeirra. Birgir L. Blöndal, aðalbókari, starfaði með þeim hópi, en ölvir Karlsson stýrði umræðum. 1 þessum hópi voru einnig kynntar og ræddar nánar breytingar á gjaldskrá Rafmagnsveitna ríkisins, sem kynntar höfðu verið fyrr á ráð- stefnunni. Þriðji hópurinn fjallaði um heilbrigðispjónusluna og þátt sveitar- félaganna í fjármögnun hennar, bæði sjúkrahúsa og heilsugæzlustöðva, og ennfremur var mikið rætt um fyrir- komulag á rekstri sjúkrabifreiða. Magnús E. Guðjónsson, fram- kvæmdastjóri, stjórnaði umræðum í hópnum. Fjórði hópurinn fjallaði loks um húsnœðismál. Á fundinn komu Ólafur Jónsson, formaður stjómar Hús- næðisstofnunar rikisins, og Sigurður E. Guðmundsson, framkvæmdastjóri hennar, og svöruðu firnamörgum fyrirspurnum fundarmanna. Fjölmargir þátttakendur voru í hverjum þessara fjögurra umræðu- hópa, svo heita mátti, að um sjálf- stæðar ráðstefnur væri að ræða. Um það var rætt bæði í þriðja hópi og í þeim fjórða, að full ástæða væri til að efna til fundar með fulltrúum þeirra sveitarfélaga, sem annast rekstur heilsugæzlustöðva, um ýmis sérmál þeirra og með álíka hætti yrði efnt til fundar með hinum nýju stjórnum verkamannabústaða, er þær hefðu hafið störf á þessu ári, og yrðu þá kynntar nánar reglugerðir um framkvæmd laganna um Hús- næðisstofnun rikisins, er þær hefðu verið settar. Sveitarstjórar tveggja grannhreppa, Tryggvi Árnason í Nesjahreppi, lengst til vinstri og Sigurður Hjaltason á Höfn í Hornafirði; aftan við hann sést Alfreð Jónsson í Grímsey, Kristján Magnússon í Vopnafirði og í fjarska Guðríður Guð- mundsdóttir, oddviti í Skeggjastaðahreppi. Guðmundur Níelsson, bæjarritarl á Húsavík; Lárus Ægir Guðmundsson, sveit- arstjóri á Skagaströnd; Askell Einarsson, framkvstj. Fjórðungssambands Norð- lendinga og Sveinn R. Eiðsson, sveitarstjóri á Raufarhöfn. Gunnar G. Vigfússon tók myndirnar á ráðstefnunni. SVEITARSTJÓRNARMÁL

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.