Sveitarstjórnarmál

Ukioqatigiit

Sveitarstjórnarmál - 01.04.1981, Qupperneq 29

Sveitarstjórnarmál - 01.04.1981, Qupperneq 29
HAUKUR BENEDIKTSSON, frkvstj. Borgarspítalans og form. Landssambands sjúkrahúsa: HVER Á AÐ REKA SJÚKRAHÚSIN? Erindi, flutt á fjármálaráðstefnunni 18. nóvember 1980 Það hefur orðið að samkomulagi, að ég ræði hér um sjúkrahúsreksturinn i landinu, stöðu hans, fjár- mál og fjármögnun, út frá sjónarmiðum Landssam- bands sjúkrahúsa, en ég gegni formannsstarfi í þeim félagsskap. Landssamband sjúkrahúsa Ég tel rétt að gera hér örstutta grein fyrir Lands- sambandi sjúkrahúsa, sem er sennilega lítt þekkt utan þess tiltölulega fámenna hóps sveitarstjórnar- manna og forstöðumanna, sem standa fyrir sjúkra- húsrekstri. Mér telst svo til, að það séu aðeins 16— 18 af 224 sveitarfélögum í landinu, sem standa fyrir sjúkrahúsrekstri. I þessum fáu sveitarfélögum býr þó langt yfir helmingur landsmanna, svo málið teygir sig víðar en í fljótu bragði virðist. Landssamband sjúkrahúsa á sínar rætur í því, að sjúkrahúsrekstur sveitarfélaga var kominn í algjöra sjálfheldu í lok 6. áratugarins. Ríkið lék þá þann ljóta leik að halda niðri daggjaldi Landspítalans til þess að spara sér útgjöld, en það hafði þau áhrif, að sjúkrahús sveitarfélaganna voru með allt að 40% halla á sínum rekstri og sátu uppi með hann, jafnvel þótt hann væri að miklu leyti tilkominn vegna sjúklinga frá öðrum sveitarfélögum. Það var Björgvin heitinn Sæmundsson, þá bæjar- stjóri á Akranesi, sem beitti sér fyrir stofnun lands- sambandsins í nóvember árið 1962 og var formaður til 1971, þegar hann fluttist til Kópavogs, sem ekki á við þessi vandamál að stríða, en þá tók undirritaður við formennsku og hefur sinnt henni síðan. Björgvin hóf harða baráttu við heilbrigðisstjórn- ina og fjármálaráðuneyti vegna hins gífurlega rekstrarhalla sjúkrahúsanna. Árangur þessa amsturs varð sá, að sambandið fékk fulltrúa i nefnd, sem endurskoðaði sjúkrahúsalögin, og kom þar á ýmsum leiðréttingum, sem ella hefðu ekki fengizt, svo sem hækkun á hlutdeild ríkis í byggingarkostnaði úr 40 í 60% og að ríkisstyrkur til rekstrar var ekki lengur bundinn í lögum. Heimild fékkst til að taka sérstakt gjald af utanhéraðssjúkl- ingum, þannig að kostnaður sjúkrahúseiganda af utanhéraðsmönnum minnkaði að miklum mun. Eg rek ekki sögu landssambandsins meir að þessu sinni, en nefni þessi dæmi aðeins til að gefa örlitla hug- mynd um þann vanda, sem við var að glíma þá, en starfsemi sambandsins hefur alla tíð að langmestu leyti snúizt um fjárhagsvandamál sjúkrastofnana. Önnur mikilvæg málefni, svo sem menntunarmál forstöðufólks og skipulagsmál hafa setið á hakanum, þótt þeim hafi að nokkru verið sinnt með fræðslu- fundum af ýmsu tagi. Fjármögnun sjúkrastofnana Stjórnin átti fulltrúa í nefnd, sem heilbrigðis- ráðuneyti setti á stofn til að gera tillögur um fram- SVEITARSTJÓRNARMÁL
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.