Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.04.1981, Page 37

Sveitarstjórnarmál - 01.04.1981, Page 37
GUÐJÓN INGVI STEFÁNSSON framkvæmdastjóri: REKSTUR HEILSUGÆZLUSTÖÐVA Á árinu 1980 var búizt við, að varið yrði af opin- beru fé um 85 milljörðum króna til heilbrigðismála. Hlutur ríkissjóðs af þessu fjármagni er yfirgnæfandi, en framlög sveitarfélaga hafa þó farið verulega vax- andi á síðustu árum. Sem hlutfall af þjóðarfram- leiðslu er ætlað, að þessi útgjöld nemi 7— 8%. Til samanburðar má geta þess, að heildarútgjöld til heilbrigðismála voru iiðlega 3% af þjóðarframleiðslu fyrir um 20 árum. Markmið og skipulag Með vísun til þessara upplýsinga og mikilvægis þessa málaflokks þykir mér rétt að fara, áður en lengra er haldið, nokkrum orðum um skipulag þessarar starfsemi, en tilgangurinn er skilgreindur svo í lögum um heilbrigðisþjónustu, að allir lands- menn skuli eiga kost á fullkomnustu heilbrigðis- þjónustu. sem á hverjum tíma eru tök á að veita til verndar andlegri. likamlegri og félagslegri heil- brigði. Lögin, sem e.u nr. 57/1978, eru i fjórum köflum, og fjalla þeir um yfirstjórn, um læknishéruð og heil- brigðismálaráð, um heilsugæzlu og um sjúkrahús, auk fáeinna nlmennra ákvæða. Ég mun hér á eftir einkum i.ria um þann þátt, sem lýtur að heilsugæzlu. I þessum lögum er farið inn á stefnumótun, sem mjög snertir annan málaflokk, sem efst er á baugi um þessar mundir, en það er stjórnsýslukerfi sveitarfélaganna. í 14. grein laganna er þannig lög- boðið samstarf sveitarfélaga um rekstur 73 heilsu- gæzlustöðva í 27 umdæmum í landinu, en þau eiga síðan að hafa formlegt samstarf í heilbrigðismála- ráðum átta læknishéraða. Fyrir hverja H 1 og H 2 heilsugæzlustöð kjósa sveitarstjórnir tvo fulltrúa og starfsfólkið einn fulltrúa i stjórn hlutaðeigandi stöðvar. Þegar stöð er i starfstengslum við sjúkrahús, fer sjúkrahússtjórn með stjórn allrar stofnunarinnar. Þetta ákvæði, ásamt ákvæðum 12. greinar laganna, um að heilsugæzlustöð skuli vera í starfstengslum við sjúkrahús, getur orðið til þess, að sveitarfélög eigi ekki aðild að stjórn heilsugæzlustöðvar á sínu svæði, ef það stendur ekki að því sjúkrahúsi, sem fyrir er. Stjórn Sjúkrahúss Selfoss og heilsugæzlustöðvar þar fyrir átta sveitarfélög í umdæminu er þannig kosin af þremur sýslunefndum á Suðurlandi og aðrar sveitarstjórnir en Selfosskaupstaður eiga enga aðild að kosningu stjórnarinnar. Eins og fyrr sagði, er kveðið á um samstarf sveitarfélaga um stjórn og rekstur heilsugæzlustöðv- ar í lögum um heilbrigðisþjónustu. Nánari ákvæði um þetta samstarf, t. d. um fulltrúafundi sveitarfé- laga, skiptingu rekstrarkostnaðar o. fl. er ekki að finna i lögunum, en á hinn bóginn er gert ráð fyrir, að ráðherra setji reglugerð með nánari ákvæðum um tilhögun heilsugæzlu á hverjum stað. Tvær slíkar reglugerðir hafa verið settar, nr. 505 frá árinu 1979, fyrir Sjúkrahús Selfoss og heilsugæzlustöð Selfoss, og SVEITARSTJÓRNARMÁL

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.