Sveitarstjórnarmál - 01.04.1981, Side 62
ónæmisprófanir er rúmlega helmingur af kostnaði
við kaup á bóluefni. Aðgerðin var greidd af rann-
sóknarfé Veirurannsóknarstofnunar Háskólans og
verður ekki endurtekin, án aukins fjárstuðnings til
stofnunarinnar. í öðrum héruðum hafa alls nokkur
hundruð börn verið bólusett, og má kenna það að
nokkru leyti, að bóluefni kostar nú nær 2300 krónur
fyrir hvern einstakling.
Árið 1978 lagði landlæknir til, að ríkissjóður
greiddi ónæmisaðgerðir að fullu. Samkvæmt lögum
um ónæmisaðgerðir hefur Alþingi samþykkt, að svo
verði gert.
Eftirmáli
Frekar um kosti bólusetningar gegn
rauðum hundum
1) Augljóst er, að bólusetning kemur í veg fyrir
Congenital rubella og forðar því frá vanskapnaði og
óhamingju.
2) Hafa ber í huga hinn mikla kostnað, er þjóð-
félagið þarf að standa skil á vegna sjúkrahúsvist-
unar, trygginga, uppeldis og kennslu 37 barna, er
fæddust árið 1964 með Congenital rubella.
Eftirfarandi reiknisdæmi lýsir þessu nánar:
Samkvæmt upplýsingum Sævars Halldórssonar,
læknis, og Brands Jónssonar, skólastjóra Heyrnleys-
ingjaskólans, má áætla, að faraldur, er gekk árið
1964, hafi árlega í för með sér kostnað fyrir ríkissjóð
eins og fram kemur á töflu III hér á síðunni.
Kostnaðurvið bólusetningu
Kostnaður við bólusetningu 2000 barna (eins ár-
gangs stúlkna) er 2.800.000 gkr.
TAFLA III
Árlegur kostnaður ríkissjóös vegna 37
barna, sem fæddust með Congenital
rubella árið 1964
Námsdvöl í Heyrnleysingja-
skóla kostn. fyrir 37 börn á ári
miðað við skólaárið 1979—
1980 ................ um 120 millj. gkr.
Kostnaður er því um 120 millj. gkr. á ári í beinum
fjárútlátum. Hér er ekki tekin með margs konar sér-
þjálfun.
Skipulögð bólusetningarherferð meðal kvenna,
sem ekki hafa ónæmi gegn rauðum hundum, hófst
sumarið 1979 og fékkst sérstök fjárveiting frá Alþingi
til þessa verkefnis. I kjölfar þessara aðgerða fylgdi
mjög aukið upplýsingastreymi um hættur af rauð-
um hundum. Svæsinn rauðu hunda faraldur gekk
hér á landi 1978—1979. Við athugun IV2 ári eftír að
faraldri lauk, hefur fundizt eitt barn með merki um
congenital rubella, en um 90 konur, sem reyndust
sýktar af rauðum hundum fyrstu 3 mánuðum með-
göngutímans, gengust undir fóstureyðingu. Með
kerfisbundinni bólusetningu og mælingum er unnt
að koma í veg fyrir fósturskemmdir af þessum sökum
í framtíðinni. Beinn kostnaður við framangreinda
bólusetningarherferð var um gkr. 40 millj.
Rauðir hundar
1964
1972-1973
Fjöldi skráðra
tilfella
3763
2776
Fjöldi vanskapaðra
barna
37
6
1976-1977 ....................
1978—1979 6568 1
mótefnamæling
og bólusetning —
aukið fyrir-
byggjandi starf
SORPTUNNULEIGA
í REYKJAVÍK
Sorptunnuleiga hjá Reykjavíkurborg hefur verið
hækkuð milli ára og er á yfirstandandi ári 40 krónur fyrir
hverja tunnu. Gjaldið er tilgreint á fasteignagjaldaseðli og
innheimt með íasteignagjöldum. Tæknideild borgarinnar
heldur skrá yfir þá fasteignaeigendur, sem fá tunnur, og er
álagningarskrá samin eftir henni. Fyrirtæki og stofnanir,
sem nota fleiri en eina tunnu, greiða 40 kr. fyrir hverja
þeirra.
SVEITARSTJÓRNARMÁL