Sveitarstjórnarmál - 22.03.2007, Blaðsíða 6
Fréttir
Skólamál
Samkomulag um tilhögun kjaramála
30.000 króna eingreiðsla hinn 1. maí
2007 fyrir fullt kennarastarf og hækkun
launa kennara frá og með janúar sl. um
2,25% verður óbreytt. í stað 2,25%
launahækkunar 1. janúar 2008 verður
hækkunin 3,0%, auk þess sem allir kenn-
arar og skólastjórnendur hækka um einn
launaflokk 1. mars 2008. Þetta er kjarn-
inn í nýgerðu samkomulagi kennara og
launanefndar sveitarfélaga.
í samkomulaginu er einnig tekið fram
að samningsaðilar munu ekki segja kjara-
samningnum upp á samningstímabilinu
og gildir núverandi kjarasamningur til 31.
maí 2008. Með þessu samkomulagi er
Ijóst að friður muni ríkja um skólastarf í
grunnskólum landsins út næsta skólaár.
Áætlun um aðgerðir í skólamálum
í samkomulaginu er einnig að finna nýja
áætlun um aðgerðir í skólamálum. Áætl-
unin er tímasett og byggist á því að skóla-
málanefnd Sambands íslenskra sveitarfé-
laga hefji nú þegar vinnu við mótun fram-
tíðarsýnar í málefnum grunnskólans, sem
unnin verði í samvinnu við fulltrúa KÍ og
fleiri. Þá mun kjarasvið sambandsins
hefja greiningar- og samanburðarvinnu á
kjörum grunnskólakennara og skólastjórn-
enda til undirbúnings næstu kjarasamn-
ingsgerð og mun sú vinna fara fram í
samstarfi við fulltrúa KÍ.
í upphafi ársins 2008 er gert ráð fyrir
að hefja kjaraviðræður vegna nýs kjara-
samnings og verður stefnt að því að und-
irrita hann í maí 2008. Þá skal liggja fyrir
sameiginlegt mat á áhrifum núverandi
kjarasamnings á skólastarfið og nákvæm-
ar upplýsingar um kjör kennara, auk sam-
anburðar á kjörum þeirra við sambærileg-
ar starfsstéttir og launaþróun undanfarin
ár.
Vestfirðir
Bæjarstjórar fagna Skarfaskersleið
Halldór Halldórsson, bæjarstjóri ísafjarð-
arbæjar og Grímur Atlason, bæjarstjóri í
Bolungarvíkurkaupstað, hafa sent frá sér
sameiginlega ályktun þar sem fagnað er
þeirri ákvörðun samgönguráðherra að
ráðast í gerð jarðganga milli Bolungarvík-
ur og ísafjarðar um svonefnda Skarfa-
skersleið sem liggur frá Ósi við Bolungar-
vík að Skarfaskeri í Hnífsdal.
Aukið umferðaröryggi og
tenging svæða
í ályktun bæjarstjóranna kemur fram að
Óshlíðargöng muni leysa af hólmi núver-
andi veg um Óshlíð þar sem vegfarend-
um hafi ætíð staðið ógn af snjóflóðum,
Halldór Halldórs-
son, bæjarstjóri ísa-
fjarðarkaupstaðar.
aurskriðum og grjóthruni.
Göngin muni koma til
með að auka umferðarör-
yggi milli tveggja stærstu
þéttbýliskjarnanna áVest-
fjörðum og einnig
leggja grunn að öflugra
samstarfi einstaklinga,
fyrirtækja og stofnana á norðanverðum
Vestfjörðum. Með þessari samgöngubót
verði sveitarfélögin tvö að einu atvinnu-
og þjónustusvæði. Bæjarstjórnirnar lýsa
einnig yfir ánægju með að framkvæmdir
skuli hafnar við þverun Mjóafjarðar og
Reykjarfjarðar við ísafjarðardjúp. Vega-
gerð um Arnkötludal verður boðin út á
næstunni og með því sjá
íbúar á norðanverðum
Vestfjörðum loks fram á
að leiðin inn á hringveg
eitt verði öll bundin slit-
lagi. Bæjarstjórnirnar
fagna því einnig að í
tillögu til þingsályktunar
um samgönguáætlun á
Alþingi sé gert ráð fyrir að hafist verði
handa við gerð jarðganga milli Dýrafjarð-
ar og Arnarfjarðar í beinu framhaldi af
Óshlíðargöngum og árétta mikilvægi þess
að tengja suður- og norðursvæði Vest-
fjarða með öruggum heilsárssam-
göngum.
Grímur Atlason,
bæjarstjóri í
Bolungarvíkur-
kaupstað.
Tólf þúsundasti íbúi Reykjanesbæjar
íbúar Reykjanesbæjar urðu 12.000 þann
14. mars sl. þegar hjónunum Óla Þór
Magnússyni og Önnu Sigríði Jóhannes-
dóttur fæddust myndarlegar tvíburadætur
á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Af því
tilefni færði Árni Sigfússon bæjarstjóri
íbúum nr. 11.999 og 12.000 gjafabréf til
greiðslu skólagjalda á 1. ári til náms í al-
þjóðlegum háskóla sem starfræktur verð-
ur við alþjóðaflugvölinn í Keflavík, en
daginn eftir, 15. mars, vareinmitt undir-
rituð viljayfirlýsing milli Reykjanesbæjar,
Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar og Há-
skóla íslands í samstarfi við fjölda fyrir-
tækja um stofnun félags til háskólarekst-
urs á KeflavíkurfIugvelIi.
SFS
e
TÖLVUMIÐLUN
www.tm.is