Sveitarstjórnarmál - 22.03.2007, Page 8
Fréttir
Staðardagskrá 21
Samningar ti
Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra og
Halldór Halldórsson, formaður stjórnar
Sambands íslenskra sveitarfélaga, hafa
gengið frá endurnýjun samkomulags um
samstarf um gerð Staðardagskrár 21 í ís-
lenskum sveitarfélögum. Jón Sigurðsson
iðnaðarráðherra og Jónína Bjartmarz um-
hverfisráðherra hafa auk þess undirritað
samkomulag um sérstakt átak í tengslum
við byggðaáætlun til að styðja við inn-
leiðingu Staðardagskrár 21 í fámennum
sveitarfélögum á landsbyggðinni.
Samkvæmt samkomulagi umhverfis-
ráðherra og Sambands íslenskra sveitarfé-
laga verður unnið í sameiningu að því að
efla sjálfbæra þróun í íslenskum sveitarfé-
lögum. Umhverfisráðuneytið mun leggja
fram þrjár milljónir króna á ári til verkefn-
isins og Samband íslenskra sveitarfélaga
I 2009
tvær milljónir með fyrirvara um fjárveit-
ingar Alþingis og samþykkt árlegrar fjár-
hagsáætlunar Sambands íslenskra sveitar-
félaga.
Samningurinn gildir frá og með árinu
2007 til ársloka 2009 og kemur í stað
eldri samnings sem rann út um síðustu
áramót. Samkomulag iðnaðarráðherra og
umhverfisráðherra er í meginatriðum
samhljóða sambærilegu samkomulagi
sem tengdist fyrri byggðaáætlun og gilti
fyrir tímabilið 2003 til 2005. Samkvæmt
því munu þessi tvö ráðuneyti beita sér
fyrir því að sjö milljónir króna verði ár-
lega til ráðstöfunar vegna þessa átaks og
greiðist sú upphæð til helminga af hvoru
ráðuneyti um sig. Þetta samkomulag
gildir einnig frá og með árinu 2007 til
ársloka 2009.
Akureyrarílugvöllur.
Akureyrarkaupstaður
Lengingu flugbrautar og
Vaðlaheiðargöngum fagnað
Bæjarstjóm Akureyrarkaupstaðar fagnar
áætlun um lengingu flugbrautar ásamt
öðrum endurbótum á Akureyrarflugvelli
sem kveðið er á um í tillögu til þings-
ályktunar um fjögurra ára samgönguáætl-
un fyrir árin 2007 til 2010. í ályktun bæj-
arstjórnar kemur fram að lenging flug-
brautar Akureyrarflugvallar hafi lengi ver-
ið baráttumál bæjarstjórnar og að fram-
kvæmdin skipti höfuðmáli fyrir fólk og
fyrirtæki á Akureyri og á Norðausturlandi.
I ályktun sinni leggur bæjarstjórnin
áherslu á að þessum framkvæmdum verði
hraðað eins og kostur er og ítrekar vilja
sinn til þess að koma að flýtifjármögnun
megi það verða til þess að hraða verkinu.
Bæjarstjórnin bendir einnig á að göng f
gegnum Vaðlaheiði séu mikilvæg sam-
göngubót fyrir alla íbúa á Norðaustur-
landi og að þjóðhagsleg hagkvæmni
ganganna sé óumdeild. Bæjarstjórnin
fagnar því að Vaðlaheiðargöng skuli nú
vera á dagskrá samkvæmt samgönguáætl-
un en leggur áherslu á nauðsyn þess að
skýrar verði kveðið að orði um nauðsyn-
lega þátttöku ríkisins í verkinu en gert sé í
áætluninni.
Ragnhildur Helga Jónsdóttir.
Staðardagskrá 21
Ragnhildur á
ferð og flugi
Ragnhildur Helga Jónsdóttir hjá Staðar-
dagskrá 21 hefur víða verið á ferðinni
að undanförnu og haldið kynningar-
fundi í sveitarfélögum þar sem verið er
að hefjast handa við gerð Staðardag-
skrár 21.
Fyrir nokkru fór hún til Austurlands
þar sem hún átti fundi með forsvars-
mönnum Seyðisfjarðarkaupstaðar,
Fljótsdalshéraðs, Fljótsdalshrepps og
Vopnafjarðarhrepps.
Áður hafði hún átt fund með sveitar-
stjórnarfólki í Hörgárbyggð í Eyjafirði.
Ragnhildur hefur einnig nýlega farið til
Hólmavíkur þar sem verið er að hefja
undirbúning að Staðardagskrá 21 fyrir
hið nýja sveitarfélag Strandabyggð. Þá
var haldin kynningarfundur um Staða-
dagskrá 21 í Skeiða- og Gnúpverja-
hreppi fyrir skömmu.
Svo virðist sem ákveðin vakning hafi
orðið að undanförnu á meðal sveitar-
stjórna og umhverfisnefnda sveitarfé-
iaga á umhverfismálum og þvf að nýta
það ráðgjafastarf sem Staðardagskrá 21
veitir sveitarfélögum þeim að kostnað-
arlausu.
SFS
8
0 TÖLVUMIÐLUN
www.tm.is