Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 22.03.2007, Page 13

Sveitarstjórnarmál - 22.03.2007, Page 13
Höfuðborgarsvæðið Vilja vegaframkvæmdir fyrir 55 milljarða Stjórn samtaka sveitarfélaga á höfuðborg- arsvæðinu (SSH) vill að 22 milljörðum króna verði varið til samgöngumála fram til ársins 2010. Stjórnin vill einnig að um 1 7 milljörðum verði varið til sama mála- flokks á árunum 2011 til 2014 og um 1 6 milljörðum á árunum 2015 til 2018. Alls verði því varið um 55 milljörðum króna til vegaframkvæmda á þessu svæði á þeim tíma sem nýleg þingsályktunartil- laga til samgönguáætlunar tekur til. Umferð yfir flutningsgetu innan fimm til tíu ára Stjórn SSH telur að ef þingsályktunartil- lagan komi óbreytt til framkvæmda stefni í mikið óefni í umferðarmálum á höfuð- borgarsvæðinu og hefur farið þess á leit við Alþingi að hún verið tekin til endur- skoðunar. Samkvæmt spám er gert ráð fyrir að umferð á helstu stofnleiðum fari yfir flutningsgetu þeirra innan 5 til 10 ára með tilheyrandi töfum, aukinni slysa- hættu og skertum lífsgæðum. í ályktun stjórnarinnar er vísað til nýlegrar úttektar bæjarverkfræðinga sveitarfélaganna og í samræmi við hana er lagt til að farið Byggt hefur verið yfir Kópavogsgjána þar sem umferðaræð úr höfuðborginni til Hafnarfjarðar og Suðurnesja liggur í gegnum Kópavogsbæ. verði í vegaframkvæmdir fyrir þessa upp- hæð. Til viðbótar þessu telur stjórn SSH, sem samanstendur af bæjarstjórum á svæðinu, að um tvo milljarða skorti til þess að Ijúka framkvæmdum sem þegar eru hafnar. Mislæg gatnamótá Kringlumýr- arbraut og Öskjuhlíðargöng Stjórn SSH leggur til að umfangsmestu framkvæmdirnar á tímabilinu frá 2007 til 2010 verði við mislæg gatnamót Miklu- brautar og Kringlumýrarbrautar, veg- stokkar á Miklubraut á milli Snorrabrautar og Kringlumýrarbrautar, á Hafnarfjarðar- vegi við Vífilsstaðaveg og á Mýrargötu í Reykjavík. Einnig að gerður verði vegur ofan byggða í Hafnarfirði á milli Kald- árselsvegar og Krísuvíkurvegar og haldið áfram með breikkun Vesturlandsvegar til norðurs. Þá vill stjórnin að hafist verði handa við lagningu Sundabrautar á þess- um tíma. Á árunum frá 2011 til 2014 vill stjórn SSH að hafin verði gerð Hlíðar- fótar- eða Öskjuhlíðarganga, auk veg- stokks og mislægra gatnamóta á Reykja- nesbraut í Hafnarfirði á milli Álftanesveg- ar og Lækjargötu, auk þess sem áfram verði unnið við lagningu Sundabrautar. Stjórnin leggur til að alls verði varið tæp- um 17 milljörðum króna til framkvæmda á svæðinu á þessum árum. Kópavogsgöng fyrir 2018 Á síðasta tímabili þeirrar samgönguáætl- unar sem kynnt hefur verið, þ.e. á árinu 2015 til 201 8, leggur stjórn SSH til að farið verði í framkvæmdir fyrir um 16 milljarða króna. Er þar um að ræða frek- ari endurbætur á helstu stofnleiðum ásamt gerð Kópavogsganga. Tekið er fram að fjármögnun Sundabrautar er utan þessa ramma. Kaffivélar sem auðvelda þér lífið Merrild kaffikerfi býður heildarlausn fyrir fyrirtæki, veitingahús og stofnanir í kaffiþjónustu MmÆ 133 LlgJ Kostirnir eru fjölmargir: Gæóakaffi Mikil framleiðslugeta og hraðvirkni (kaffi á 2 sekúndum, súkkulaði á 8 sekúndum) Margskonar drykkir Venjulegt kaffi, espresso, café créme, súkkulaði, tevatn og önnur kaffibrigði Ávallt nýlagað Auðveld í notkun Ekkert fer til spillis Hreinlæti í hávegum haft Þrif og viðhald í lágmarki Mikið rekstraröryggi Orkusparnaður H'líl'l Piazza d'Oro 50 Alsjálfvirk espresso kaffivél sem malar og lagar hvern bolla fyrir sig. Hentar litlum veitingahúsum, pöbbum og fyrirtækjum. Fjórar stillingar fyrir bolla, stútur til að flóa mjólk og er með hita plötu til að halda bollum heitum. Boðið verður uppá tvær tegundir af kaffibaunum I eins kg. pokum Forza og Estremo. Espressovélin er með 2,5 I vatnsgeymir og getur framleitt 20 til 40 bolla á klukkustund eftir hvaða drykkur er framleiddur KAFFIKERFI Gæði og Magn Bolli af nýlöguðu kaffi á 17. sekúndum . Auðveld í meðförum Ekkert fer til spillis Sérstakur krani fyrir tevatn DANlEL ÓLAFSSON EHF. SKÚTUVOGI 3 • 104 REYKJAVlK • SÍMI: 580 6600 • BRÉFASlMI: 580 6666 Netfang: gardar@danol.is - Heimaslöa: www.danol.l8

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.