Sveitarstjórnarmál - 22.03.2007, Síða 18
Byggðarannsóknir
Stærsti þéttbvllsstaöur ihéraöi sem verslun ogþjónusta er sótt til — hlutfallstölur
Úrval ræður fatakaupum
Samkvæmt könnun Bjarna er nokkur munur
á hvar fatnaður er keyptur eftir könnunar-
svæðum og stærð þjónustukjarna. Hann
segir að Vestmannaeyingar, Akurnesingar og
A.-Skaftfellingar kaupi hlutfallslega mest í
næsta byggðakjarna í héraði. Borgfirðingar,
fólk á sunnanverðum Vestfjörðum, N.-Þing-
eyingar og íbúar í uppsveitum Arnessýslu
og Rangárvallasýslu kaupi hlutfalIslega
minnst í næsta þéttbýliskjarna. Þá segir
hann að framboð og úrval fatnaðar ráði
hugsanlega meiru um þetta en vegalengdir
þar sem gera verði ráð fyrir að framboð sé
takmarkaðra í þessum byggðarlögum.
Styrkleiki Akureyrarkaupstaðar sem
landshlutamiðstöðvar komi aftur á móti
glögglega fram í því að Eyfirðingar, Þingey-
ingar og Skagfirðingar kaupi hIutfalIslega mest af fatnaði í næstu
landshlutamiðstöð. Á sama hátt sé hlutur ísafjarðar sterkur á
norðanverðum Vestfjörðum. Þá komi fram að fólk á Suðurlandi
fari fremur til Reykjavíkur en Árborgar til að kaupa fatnað og
Vestlendingar fari einnig fremur til Reykjavíkur en Borgarness.
Yngra fólk og fólk sem er í hærri tekjuflokkum fer hlutfallslega
meira til Reykjavíkur til að kaupa fatnað en aðrir. Þá kemur fram
að karlar fara heldur meira til höfuðborgarsvæðisins til að kaupa
fatnað en konur, eða 58% á móti 55%, sem getur legið í því að
minna úrval af sparifatnaði sé fyrir karla á landsbyggðinni en af
kvenfatnaði eða að karlarnir séu kröfuharðari hvað fatnað varðar
en konur.
Borgarfjorður Borqarnes 89% Akranes 5%
Snsfeflsnes Stykkishólmur Reykjavk I
50% Snæfellsbær 22% Borgarnes 12% Akranes 10% 6%
Dalir Búðardalur 56% Borgarnes 29%
Sunnanverdir Vestfirðir Patreksfjörður
ísafprður 74% 29% Reykjavik5%
Mordanverdir Vestfirdir ísafprður 96Sfi
Strandirog Húnaþing Hvammstangi Akureyri I
Blönduós 22% Hólmavik20% Borgarnes 18% 12% 8%
SkagafjÖráur Sauðarkrókur
Akureyri 56% 49%
Eyjafjördur og S-Þing Akureyri 92% Húsavik 6%
N-Þing Akureyri 46% Egilsstaðir 31% Húsavik 16%
Akranesog nigrenni Akranes 44% Borgarnes 34% Reykjavik22%
Austurland Egilsstaðir 92% Fjarðabyggð 8%
A-Skaftafellssýsla H öfn 45% Egilsstaðir 36% Árborg 14% Reykjavík 5%
Árborg og nágrenni Arborg/Selfoss
93%
Uppsveitir Árness. Og Árborg/Selfoss
Rangárv.s. 80% Hella 7% Hvolsvöllur5%
V-Skaftafellssýsla Árborg/selfoss Kirkjubæjarkl
63% 20% Vik 10% Reykjavík 6%
Vestmannaeyjar Arborg/Selfoss Vestmannaeyjar
49% 9%
Það kemur greinilega fram á myndritinu að þeir fimm þéttbýlisstaðir, sem valdir voru sem landshlutakjarn-
ar í könnuninni, voru réttilega valdir því að um og yfir 90% fólks í næstu byggðarlögum sóttu fyrst og
fremst þjónustu þangað. Árborg er það öflugur kjarni að V.-Skaftfellingar sækja töluvert þangað eftir þjón-
ustu. Þeir landshlutar sem ekki eru með afgerandi öflugar héraðsmiðstöðvar eru Vesturland, sunnanverðir
Vestfirðir, Strandir, Húnaþing og Skaftafellssýslur.
ísafjörður, Akureyri, Árborg og Borgarnes
„Greinilegt er að ísafjörður, Akureyri, Árborg og Borgarnes eru
öflugustu þjónustukjarnarnir. Egilsstaðir fá heldur færri heim-
sóknir enda liggja nærri Egilsstöðum nokkrir stórir þéttbýliskjarn-
ar eins og Reyðarfjörður, Neskaupstaður og Seyðisfjörður sem
draga einnig til sín fólk úr nærliggjandi byggðarlögum. Sunnan-
verðir Vestfirðir og Norðurland vestra eru ekki með afgerandi
Meiri og fjölbreyttari verslun er það sem langflestir nefna eða rúm 70%, sér-
staklega lágvöruverðsverslun. Önnur atriði sem margir nefna er sérfræðiþjón-
usta og betri læknisþjónusta. Almennt er óskað eftir fjölbreyttari þjónustu og
atvinnutækifærum.
héraðsmiðstöð og Vestmannaeyingar þurfa að sækja flesta þjón-
ustu innanbæjar," segir Bjarni þegar hann er beðinn um að draga
niðurstöður könnunarinnar saman í nokkur orð.
Vesturbyggð
Framhaldsskóladeild á Patreksfirði
Undirbúningur að stofnun nýrrar fram-
haldsskóladeildar á Patreksfirði er hafinn
og á deildin að taka til starfa á komandi
hausti.
Framhaldsskóladeildin verður hluti af
Framhaldsskóla Snæfellsness og verður
staðsett í húsnæði Grunnskólans á Pat-
reksfirði. Gert er ráð fyrir að húsnæðið
verði tilbúið í júlí samkvæmt fréttum
svæðisútvarps Vestfjarða. Framhaldsskóla-
deildin á Patreksfirði mun skipta verulegu
máli fyrir íbúa Vesturbyggðar sem hafa
mátt senda ungmenni til annarra byggðar-
laga til náms þegar grunnskóla lýkur.
Fríða Matthíasdóttir verður deildarstjóri
framhaldsskóladeildarinnar á Patreks-
firði.
Grant Thornton %
SFS
18
TÖLVUMIÐLUN
www.tm.is