Sveitarstjórnarmál

Ukioqatigiit

Sveitarstjórnarmál - 22.03.2007, Qupperneq 19

Sveitarstjórnarmál - 22.03.2007, Qupperneq 19
Fréttir stöðu atvinnumála ísafjarðarbær Áhyggjur af Bæjarstjórn ísafjarðarbæjar hefur lýst áhyggjum af stöðu atvinnumála eftir að ákveðið var að loka starfsstöð Marels á ísafirði frá og með 1. september. Um 25 manns starfa hjá starfsstöðinni og missa þar með vinnu sfna að óbreyttu. Bæjar- stjórnin hefur einnig lýst því yfir að unnið verði að sameiginlegu átaki ríkis, sveitar- félaga og fyrirtækja um að efla atvinnulíf og byggð á Vestfjörðum. I bókun bæjarstjórnar kemur fram að með lokum starfsstöðvar Marels sé vegið að undirstöðu atvinnulífs á staðnum og Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar hefur skor- að á þingmenn að beita sér fyrir auknum fjárveitingum til endurnýjunar tengivega í sveitarfélaginu. Sveitarstjórnin hefur einnig bent á að um árabil hafi hún vakið athygli þingmanna Norðausturkjördæmis, fjárlaganefndar Alþingis og samgönguráðs á nauðsyn þess að tryggja endurnýjun tengivega og brúa í sveitarfélaginu. I ályktun sveitarstjórnarinnar kemur fram að í tillögu til þingsályktunar um fjögurra ára samgönguáætlun fyrir árin 2007 til 2010 gæti enn sömu tregðu stjórnvalda til að viðurkenna þörf á end- urnýjun þessa hluta vegakerfisins með Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir mennta- málaráðherra opnaði Álfa- og tröllasafnið í Menningarverstöðinni á Stokkseyri 17. febrúar sl. að viðstöddu fjölmenni. Álfa- og tröllasafnið eða lcelandic Wonders er tileinkað álfum, tröllum og norðurljósum. Safnið er á neðstu hæðinni í Menningar- húsinu á Stokkseyri sem gert var upp úr fiskverkunarhúsi. Á efri hæðinni er Draugasetrið en þetta nýja safn er í eigu sömu aðila og hannað og unnið af sömu aðilum og stóðu að þvf safni. Álfa- og tröllasafnið er í um 1.200 fermetra hús- næði. Safn þetta á sér enga hiiðstæðu hér á landi. Hönnun þess og uppsetning byggir á því að gestir ganga inn í heim álfa og uppbyggingu iðnaðar á sviði hátækni greitt þungt högg. í rúma þrjá áratugi hafa verið unnið að þróun og framleiðslu á raf- eindabúnaði og margþætt þekking og reynsla orðið til á þvf sviði. Með ákvörð- un sinni hafi forráðamenn Marels brugðist vonum og trausti Isfirðinga og allt tal um samfélagslega ábyrgð séu orðin tóm. I bókuninni kemur fram að bæjarstjórn ísafjarðarbæjar heitir nú á stjórnvöld að koma þegar í stað til liðs við íbúa ísa- fjarðarbæjar og annarra sveitarfélaga á Vestfjörðum við að efla nýsköpun og auknum fjárveitingum. Stórframkvæmdir á stofnvegakerfinu nýtist þeim dreifðu byggðum sem búa við lélega og ófull- nægjandi tengivegi aðeins með takmörk- uðum hætti. Sveitarstjórnin bendir á að í þingsálykt- uninni sé gert ráð fyrir 1.523 milljónum króna til framkvæmda á tengivegum í Norðausturkjördæmi á fjögurra ára tíma- bili. Þótt um verulega krónutöluhækkun sé að ræða miðað við síðustu fjögur ár sé raunvirði fjárveitingarinnar alls ekki það sem upphæðin gefi til kynna vegna mik- illa verðhækkana. huldufólks og skyggnast inn f líf þeirra. Einnig fara þeir í gegnum stóran tröllahelli og sjá heimkynni trölla með eigin augum. Hápunktur skoðunarferðar um safnið verður trúlega heimsókn í 200 fermetra rými þar sem verður um 5 til 10 stiga frost, - sannkallað íslenskt vetrarríki. Þar er m.a. að finna ísklumpa úr Vatnajökli, ísveggi og ísbar í einu horni salarins. Þá verða Norðurljósin sýnd í allri sinni dýrð. Um 200 fermetra minjagripaverslun er í safninu þar sem hægt er að fá ýmsan varning sem tengist álfum, tröllum, draugum og norðurljósum, svo sem ullar- vörur, sem unnar eru af álfum og huldu- fólki. rannsóknir sem veitt geti nýjum verkefn- um og atvinnufyrirtækjum brautargengi. í bókuninni segir einnig að algera hugar- farsbreytingu þurfi til og einnig pólitíska samstöðu hjá ráðamönnum landsins til þess að snúa við óheillaþróun undanfar- inna ára. Fjallabyggð Alþingi auglýsir eftir starfsfólki Skrifstofa Alþingis hefur auglýst eftir tveimur starfsmönnum í Ólafsfirði í Fjallabyggð. í auglýsingunni kemur fram að leitað sé að tveimur starfsmönnum til vinnu við fjarvinnslu þingsins í Ólafs- firði. Einnig kemur fram að um sé að ræða störf að tímabundnu verkefni á vegum Alþingis sem felist í því að skanna eldri árganga Alþingistíðinda og gera textann birtingar- og leitarhæfan á vef þingsins. Gerðar eru kröfur um kunnáttu í al- mennri tölvu- og ritvinnslu auk yfirlest- urs og frágangs á texta til birtingar á vef Alþingis. Beðið er um gott vald á ís- lenskri tungu og sveigjanleika og hæfni í mannlegum samskiptum. Nokkuð hefur færst í vöxt að opin- berar stofnanir með aðsetur í höfuð- borginni sækist eftir starfskröftum úti á landi, einkum til starfa við fjarvinnslu, þar sem netnotkun skiptir öllu máli. Þótt ekki sé um mörg störf að ræða í hverju tilviki geta þau skipt máli og aukið fjölbreytni í fámennum samfélögum sem byggja á einhæfu og jafnvel ótraustu at- vinnulífi. Eyjafjarðarsveit Áskorun um tengivegi Sveitarfélagið Árborg Einstakt safn opnað

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.