Sveitarstjórnarmál - 22.03.2007, Side 23
Fréttir
Dalvíkurbyggð
Sparisjóðurinn byggir menningarhús
Svona mun menningarhúsiö á Dalvík líta út fullbyggt. Tölvumyndin er frá Fanneyju Hauksdóttur arkitekt.
Ákveðið er að hefja byggingu menningar-
húss á Dalvík á komandi hausti og er gert
ráð fyrir að húsið verði tilbúið til notkun-
ar um mitt næsta ár. Það er Sparisjóður
Svarfdæla sem ætlar að láta byggja húsið
og færa íbúum Dalvíkurbyggðar það að
gjöf-
Tilefni gjafarinnar er að liðið ár var
það besta í sögu sparisjóðsins frá upphafi
en hagnaður hans varð tæpur milljarður
króna eftir skatta. f Ijósi svo góðrar af-
komu hefur stjórn sjósins ákveðið að
leggja til við aðalfund að sjóðurinn kosti
byggingu menningarhúss á Dalvík. Stjórn
sjóðsins hefur haft náið samráð við end-
urskoðendur og fjármálaeftirlitið við mót-
un þessarar hugmyndar og vinnslu máls-
ins enda um óvenju stóra gjöf að ræða af
hálfu stofnunar af þeirri stærð sem Spari-
sjóður Svarfdæla er.
700 fermetra hús
Menningarhúsið verður um 700 fermetrar
að gólffleti og mun rísa í miðbæ Dalvíkur
skammt frá ráðhúsi sveitarfélagsins. Spari-
sjóður Svarfdæla hefur þegar látið hanna
húsið og einnig sótt um lóð fyrir það og
umhverfisráð Dalvíkurbyggðar samþykkt
umsóknina með fyrirvara um breytingu á
deiliskipulagi. Fanney Hauksdóttir, arki-
tekt á Akureyri, er hönnuður hússins og
studdist hún m.a. við smárann í merki
sparisjóðanna við frumhönnun þess.
Fjölnotasalur verður í menningarhús-
inu sem notast mun til ráðstefnuhalds og
sýninga auk menningarviðburða af ýms-
um toga. Þá er gert ráð fyrir að útlána-
deild bókasafnsins og afgreiðsla Héraðs-
skjalasafns Dalvíkurbyggðar verði flutt í
hið nýja menningarhús auk þess að þar
verður komið fyrir upplýsingamiðstöð,
kaffihúsi og öðru sem gæða á húsið lífi
árið um kring.
Framsýni og stórhugur
Með byggingu menningarhússins mun
miðbæjarmynd Dalvíkur breytast og þétt-
ast auk þess að fá aukið vægi menningar
í samfélagi við verslun og þjónustu.
Jóhann Antonsson, stjórnarformaður
Sparisjóðs Svarfdæla, segir að stjórn
sparisjóðsins hafi ákveðið, þegar Ijóst var
á síðasta ári að afkoman yrði mjög góð,
að samfélagið nyti þess með einhverjum
hætti. Bygging menningarhúss varð fyrir
valinu, ekki hvað síst vegna þess að á
íbúaþingi, sem haldið var síðastliðið
haust, komu fram raddir um að slíkt hús
vantaði. Það má segja að þar hafi hug-
myndin kviknað.
Svanfríður Jónasdóttir, bæjarstjóri Dal-
víkurbyggðar, er afar ánægð með þetta
Ný stjórn hefur verið skipuð fyrir Bjarg-
ráðasjóð. Ríkharð Brynjólfsson, sem átti
sæti í fráfarandi stjórn, gekk úr stjórninni
en í hans stað var tilnefnd Gréta Sjöfn
Guðmundsdóttir, forseti sveitarstjórnar
Sveitarfélagsins Skagafjarðar.
Aöalmenn stjórnar
Stjórn Bjargráðasjóðs er nú þannig skipuð
að aðalmenn eru: Sesselja Árnadóttir
skrifstofustjóri, formaður og skipuð án til-
nefningar; Guðbjartur Gunnarsson bóndi,
Hjarðarfelli, Eyja- og Miklaholtshreppi,
tilnefndur af Bændasamtökum íslands;
Hörður Harðarson bóndi, Laxárdal,
Skeiða- og Gnúpverjahreppi, tilnefndur af
Bændasamtökum íslands; Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson borgarstjóri, tilnefndur af
Sambandi íslenskra sveitarfélaga; Gréta
Sjöfn Guðmundsdóttir, forseti sveitar-
stjórnar Sveitarfélagsins Skagafjarðar, til-
nefnd af Sambandi íslenskra sveitar-
félaga.
framtak sparisjóðsins sem hún telur mikil-
vægan stuðning og viðurkenningu á öfl-
ugu menningarlífi í sveitarfélaginu. Stjórn
sjóðsins og forráðamenn hans hafi lengi
komið myndarlega að bæði menningar-
og íþróttastarfi á starfssvæði sínu og
hún segist stolt af framsýni þeirra og stór-
hug.
Varamenn
Varamenn í stjórn Bjargráðsjóðs eru:
Guðrún A. Þorsteinsdóttir lögfræðingur,
varaformaður, skipuð án tilnefningar;
Svana Halldórsdóttir, Melum, Svarfaðar-
dal, tilnefnd af Bændasamtökum Islands;
Aðalsteinn Jónsson, Klausturseli, Jökuldal,
tilnefndur af Bændasamtökum Islands;
Björn Hafþór Guðmundsson, sveitarstjóri
Djúpavogshrepps, tilnefndur af Sambandi
íslenskra sveitarfélaga og Elín R. Líndal,
oddviti Húnaþings vestra, tilnefnd af Sam-
bandi íslenskra sveitarfélaga.
Almenn deild og búnaöardeild
Bjargráðasjóður byggir starfsemi sína á
lögum um Bjargráðasjóð nr. 146/1995.
Bjargráðasjóður skiptist í tvær deildir, al-
menna deild og búnaðardeild, og er hlut-
verk deildanna mismunandi. Fram-
kvæmdastjóri Bjargráðasjóðs er Þórður
Skúlason en aðalstarfsmaður sjóðsins er
Birgir L. Blöndal.
Bjargráðasjóður
Ný stjórn skipuð
tölvumiðlun H~Laun www.tm.is
23