Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 22.03.2007, Page 33

Sveitarstjórnarmál - 22.03.2007, Page 33
Skólamál Fyrsta starfsárið er mikilvægt námsár María Steingrímsdóttir, lektor við Kennarddeild Háskólans á Akureyri, skrifar. Grein þessi er byggð á erindi sem flutt var á málstofu á vegum Sambands íslenskra sveit- arfélaga 6. mars sl. og fjallaði um rannsókn sem ég gerði skólaárið 2003 til 2004 á fyrsta starfsári ný brautskráðra grunnskóla- kennara til að varpa Ijósi á reynslu og upp- lifun þeirra af fyrsta starfsári í íslensku skólaumhverfi. Stærri hluti uppeldishlutverks Starf kennara hefur breyst mjög hin síðari ár. Þeir þurfa að vera tilbúnir til að takast á við síbreytilegt samfélag og krafa er gerð til þeirra um að sinna nemendum á mun víð- tækari hátt en áður var. Ætlast er til þess að kennarar finni leiðir til að laga námið að mismunandi þörfum nemenda. Tæknivæð- ing og aukið foreldrasamstarf hafa einnig breytt starfsumhverfi kennara og gert það fjölþættara og flóknara en áður var. Skólamálaumræðan í þjóðfélaginu hefur einnig snúist um auknar kröfur á hendur skólunum og þeim sem þar starfa. Þær fela meðal annars í sér þrýsting um að þeir taki að sér stærri hluta af því uppeldishlutverki sem heimilin gegndu að mestu leyti áður á sama tíma og foreldrar og forráðamenn hafa vaxandi áhrif á skólastarf og menntun barna sinna. Það er því mikil og krefjandi vinna sem bíður kennara sem eru að fóta sig á nýjum starfsvettvangi. Strax frá fyrsta starfsdegi er þeim falin full ábyrgð á vinnu og velferð nemenda sinna í skólanum. Þrátt fyrir að hafa þriggja ára kennaramenntun að baki gengur þeim misvel að fást við þessa ábyrgð og margþætt og flókið starf. Ljóst er að það er margt sem felst í kennarastarfinu sem alls ekki er hægt að kenna í kennaranáminu en verður að lærast á vettvangi. Meginniðurstöður rannsóknarinnar benda til að þegar form- legu kennaranámi Ijúki horfi nýir kennarar björtum augum á komandi starf. Margir þeirra hafa metnaðarfullar hugmyndir um á hvern hátt þeir vilja sinna því og á hvað þeir vilja leggja áherslu. Góður undirbúningur er samt ekki nóg. Fram kemur að nýi kennarinn þarfnast handleiðslu ráðunautar sem hann getur leitað til með spurningar um fagleg sem hagnýt atriði. Lítill munur á móttökum nýliða og eldri starfsmanna í rannsókninni kemur fram að formlegar móttökur nýliða í skól- unum voru harla litlar og ómarkvissar og halda lítið sem ekkert utan um nýja starfsmanninn. Svo virðist sem lítill munur sé á móttökum nýliða og eldri starfsmanna þegar skólar hefjast að hausti. Enn fremur komu fram sterkar vísbendingar um að nýir kenn- arar fái ekki þann stuðning sem þeir telja sig þurfa til þess að finna til öryggis, að þeir geti náð árangri í starfi og fái tækifæri til að nýta þekkingu sína úr náminu. Afleiðingar þessa eru þær að nýliðum er hætt við að lenda í erfiðleikum sem hægt væri að koma að mestu í veg fyrir með góðri innleiðingu í starfið og góðum stuðningi. Ef þeir fá stuðn- ing við að aðlagast er líklegt að þeir nái meiri árangri, verði öruggari og skapi með sér jákvætt viðhorf sem svo leiðir til meiri starfsþroska og fagvitundar. Sé litið til þeirrar ábyrgðar sem nýliðum er falin og þeirrar tilhneigingar að líta á þá sem fullgilda starfsmenn strax í upphafi er umhugsunarvert að ekki skuli ætlaður tími til aðlögunar og markvissrar leiðsagnar. Það eru ekki aðeins skólastjórnendur sem ætlast til að nýliðar standist þetta álag heldur hafa nemendur og foreldrar sömu væntingar til þeirra og reyndari kennara. Það hlýtur þvf að vera mikilvægt að styðja þá þannig að þeim sé gert kleift að standa undir þeim kröfum sem til þeirra eru gerðar. Niðurstöður úr rannsókninni eru mjög sambærilegar við er- lendar rannsóknir sem sýna fram á að fái nýir kennarar ekki góð- an stuðning í upphafi sé hætta á að þeir gefist upp, þrói með sér aðferðir til að lifa af álagið, starfsþróun verði lítil sem engin og oft leiði það til neikvæðni (Feiman-Nemser 2003). í þessu sam- bandi má minna á að í rannsókn Önnu Þóru Baldursdóttur (2000) á kulnun grunnskólakennara kemur fram að kennarar á fyrsta starfsári sýna sterk einkenni kulnunar. Það telur hún að rekja megi til lítils stuðnings í upphafi kennsluferils. Miðað við vísbendingar sem fást úr þessari rannsókn og er- iendum rannsóknum tel ég að nokkur atriði sé brýnt að laga og nefni hér nokkur úrræði sem gætu stutt markvissari móttöku og leiðsögn með nýjum kennurum og þar með stuðlað að meiri fag- mennsku í skólastarfi. Skipuleggja þarf móttökur nýrra kennara vel Skipuleggja þarf móttökur nýrra kennara vel og gera þær mark- vissar frá hendi hvers skóla og skólayfirvalda í hverju skólaum- dæmi, þótt formlega séu litlar kröfur um það í lögum og reglu- gerðum. Þetta þarf að gera á þann hátt að nýliðinn upplifi sig ekki í einan á báti fyrstu daga og vikur í starfi. Allir nýliðar ættu að fá sinn leiðsagnarkennara strax þegar mætt er til starfa. Vanda þarf val leiðsagnarkennara, þeir þurfa að þekkja hlut- verk sitt og fá um það fræðslu á hvern hátt þeir geti best leiðsagt nýliðum. Tryggja þarf að skipulag leiðsagnar sé þannig að leiðsagnar- kennara gefist tími og tækifæri til að sinna þeim verkefnum sem Ö tölvumiðlun H-Laun www.tm.is 33

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.