Sveitarstjórnarmál - 01.03.2012, Qupperneq 20
Grindavíkurbœr
Aðiliað jarðvarmaklasanum
GRindavíkurbær hefur, fyrst sveitar-
félaga á íslandi, gerst aðili að íslenska
jarðvarmaklasanum. í fyrra var stofnað til
formlegs samstarfs innan jarðvarmageirans á
íslandi og jafnframt gefin út skýrslan „Virðis-
auki í jarðvarma" sem fjallar um greiningu
og samstarfsmótun íslenska jarðvarma-
klasans. Höfundar skýrslunnar eru Hákon
Gunnarsson og Þóra Margrét Þorgeirsdóttir
hjá Gekon en prófessor Michael Porter og
samstarsfmaður hans, dr. Christian Ketels,
rita formála. Skýrslan byggir m.a. á kort-
lagningu klasans sem kynnt var á ráðstefn-
unni lceland Geothermal 2010 þar sem dr.
Porter var aðalræðumaður en hann er mikill
áhugamaður um íslenskan jarðvarma.
Aðilar að samstarfinu í íslenska jarð-
varmaklasanum eru núna orðnir 68 talsins.
Vinnan hverfist kringum 10 samstarfsverk-
efni af ólíkum toga. Þar má nefna nýsköp-
unarverkefni, menntun, markaðsmál jarð-
varmans, gagnaöflun, fjármögnun, stjórnun
klasans og svo mætti áfram telja. Grinda-
víkurbær hefur hug á að leggja til vinnu við
skilgreiningu á starfsskilyrðum jarðvarma-
greinarinnar gagnvart sveitarfélögum. Auk
þess hafa bæjaryfirvöld áhuga á að koma að
uppbyggingu Auðlindagarðsins á Reykjanesi
sem er eitt af viðfangsefnum klasasamstarfs-
ins.
Frumkvöðlastarf Grindvíkinga
Grindvíkingar voru frumkvöðlar í nýtingu
jarðvarma á íslandi með byggingu jarðorku-
versins ( Svartsengi. Frá þeim tíma hefur
jarðorkan verið nýtt til ýmissa hluta, allt frá
húshitun til fiskeldis og ferðaþjónustu. Bláa
lónið er gott dæmi um notkun jarðvarma til
uppbyggingar í ferðaþjónustu.
„Megintilgangur þess að Grindavíkurbær
gerist aðili að íslenska jarðvarmaklasanum er
að komast í beint sambandi við hags-
munaaðila og rannsóknaiðnaðinn. Það gefur
okkur tækifæri til þess að kynnast því sem
hægt er að nýta og aukin tækifæri til þess að
fá sprotafyrirtæki í þessum geira hingað til
bæjarins. Það er von okkar að bærinn nái að
marka sér þá stöðu að þegar fólk hugsar um
sjávarútveg og jarðvarma sé Grindavík það
fyrsta sem þeim dettur í hug," segir Guð-
mundur Pálsson, formaður bæjarráðs Grinda-
víkurbæjar.
20 ------
<%>