Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.10.2013, Síða 40

Sveitarstjórnarmál - 01.10.2013, Síða 40
Reykjavíkurborg Um þriðjungur athugasemda um Vatnsmýrina Tæplega 200 aðilar gerðu athugasemdir við tillögu að hinu aðalskipulagi Reykjavíkur sem var í auglýsingu frá 9. ágúst til 20. september 2013. Um þriðjungur athugasemda, eða tæp- lega 70 aðila, varðar skipulag Vatnsmýrar en aðrar athugasemdir fjalla meðal annars um þéttingu byggðar í Ártúnsholti, breytingar skipulags í Úlfarsárdal, reiðleiðir og landnotk- un Keldna. Átta umsagnir bárust einnig frá opinberum aðilum. Einstaklingar, fyrirtæki, íbúasamtök, félagasamtök og hópar sem stóðu að undirskriftasöfnunum sendu athuga- semdir. Eftir er að vinna úr þessum athuga- semdum og því óvíst hvort aðalskipulagshug- myndin muni taka breytingum og þá hverj- um. Ljóst er þó að hér eru ýmis nýmæli á ferð og spurning hvort þau einskorðist við höfuðborgina í framtíðinni eða hvort aðrar bæjar- og sveitarstjórnir muni horfa til þeirra við skipulagsgerð. Mjög gróin úthverfamenning er i Reykjavik en nú er spurning hvort borgarbúar vilja fara að horfa meira inn á við. I könnunum sem gerðar hafa verið kemur i Ijós að margir vilja fremur búa miðsvæðis. Hér er unnið að frágangi útivistarsvæðis i Breiðhotti. um 20 þúsund Reykvíkingar studdu flugvöllinn Alls skrifuðu rúmlega 69 þúsund manns undir stuðning við áfram- haldi flugstarfsemi í Vatnsmýrinni á vefnum lending.is og á undirskrifta- listum um land allt. Af þeim eru rúmlega 20.000 búsettir í Reykjavík. í áskorun undirskriftasöfnunar- innar segir að lagst sé gegn þeim áformum að flugvallarstarfsemi víki úr Vatnsmýrinni og skorað er á Reykjavíkurborg og Alþingi að tryggja öllum landsmönnum óskerta flugstarfsemi í Vatnsmýri til fram- tíðar. Undirskriftirnar verða tekn- ar til skoðunar við áframhaldandi vinnu við aðalskipulag Reykjavíkur- borgar á næstunni. Séð yfir hiuta flugvallarsvæðisins i Vatnsmýrinni. Fremst á myndinni er Hótel Reykjavík Natura og skrif- stofubygging lcelandair en fjær má sjá afgreiðslustöð og flugflota innanlandsflugsins. 40 ----- <%>

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.