Vikublaðið Gestur - 18.12.1955, Blaðsíða 17

Vikublaðið Gestur - 18.12.1955, Blaðsíða 17
G E S T U R 17 / hann, lyftið ásjónum ykkar til hans og opnið munninn upp á gátt. En hvað gerir djöfullinn? Hann opnar sitt .. . lætur .. . detta, og þið gleypið ... með beztu lyst!“ Nei, ég þori ekki að skrifa orðin, sem ég notaði, án þess ég roðnaði þá stundina, í eyrum papúans verður menningarfágun- in oft harla bragðlaus. Við urðum því að temja okkur sér- stakan talsmáta. í ræðum okkar og prédikunum urðum við að temja okkur vettvang frumstæðra gáfna, barnslegs hugarfars, eðlilegrar skáldrænu og ruddalegs raunveruleika, sem veitt gæti einhverja innsýn í þann boðskap, sem við fluttum, og vildum reyna að gera skiljanlegan. Ég er sannfærður um, að Heilagur Franz frá Assissi myndi hafa verið afbragðs ræðumaður fyrir frumstætt fólk, hann, sem uppgötvað hafði anda hinnar ,glötuðu paradísar og fékk dýrin til þess að hlýða á sig. Við megum ekki gleyma sögunni um einn lærisvein hans, sem djöfullinn ásótti. Hann spurði þvr kenniföðurinn, hvað til bragðs skyldi taka. „Segðu þeim illa, að hann skuli opna munninn upp á gátt!“ „Hvers vegna?“ „Til þess að Iþú getir . .. í hálsinn á honum!“ Nei, á prenti er ómögulegt að láta orðin fylgja, en frammi fyrir papúunum mínum bliknaði ég ekki meðan ég lét móðan mása. „Ykkar á meðal eru illir menn. Ég þekki þá ekki. Ef til vill hef ég séð andlit þeirra oft, en þeir skammast sín frammi fyrir mér. Þeir segjast ekki vera þjónar djöfulsins. Þeir eru lygarar! Ykkur segja þeir, að þið eigið að kasta trú ykkar á góðan guð og taka aftur upp illa siði heiðninnar. Þeir ógna ykkur með galdramætti sínum. Og þið eruð hræddir. Ég skil ykkur. En ég segi ykkur öllum það, að ég skal flakka frá einu þorpinu til annars, og skilja ekkert eftir, hvort heldur er í fjöllunum eða dalnum. Ég verð í hverju þorpi einn dag og eina nótt, ég flyt messu, og ég stefni gegn djöflinum heilögum Mikael til þess að afmá af jörðinni öll verk hins vonda, burt úr hjörtum ykkar, burt úr híbýlum ykkar .. . Ef galdramönnunum heppnast að drepa mig á ferðalagi mínu, þá það .. . þá er ég ekki sannur Útsendari guðs, þá hef ég rangt fyrir mér, en þeir rétt. En ef þeim heppnast ekki að drepa mig, þá eru það þeir, sem hafa rangt fyrir sér, og þá megið þið aldrei framar Ijá orðuni þeirra eyru ... Ég hef lokið máli mínu. Farið nú leiðar ykkar. Á morgun við sólarupprás skulu allir frá Kodighé og Uidé mæta hjá mér til skrifta og heilagrar messu . . .“. Framhald í nœsta blaði. Vegalagning og hrossalækningar Sæludagar og svaðilfarir neinist æfintýraleg bók. sem ný- komin er á markaðinn. Höfundur hennar er svissneskur ferða- langur, Hans De Meiss-Teuffen.Þýðinguna gerði Hersteinn Páls- son, og segist höfundi svo frá: um, var úrklippa úr dagblaði. Þar stóð: Okusveitir lögreglunnar í æðis- gengnum eltingarleik! Hættulegur bílþjófur handtekinn! Á 100 km. hraða gegnum umferða- flækjur! Eltingarleiknum lýkur í Regents- stræti. Æðisgengnasti eltingarleikur, sem lögreglan liefur átt í, átti sér stað í gær, og horfðu hundruð manna á. Einn eft- irlitsvagna Scotland Yard, sem var staddur á Ytri-Circle við Regent-garð, fékk skipun um að elta gul-svartan tveggja manna léttvagn, sem brunaði á ofsahraða eftir York Gate eftir að hafa ekið um Harley-stræti, Devonshire-stræti og Marylebone-aðalstræti. Jafnskjótt og ökumaðurinn sá, að eftirförin var hafin, jók hann hraðann að miklum mun“. Þessu fylgdi nákvæm lýsing af öllum at- burðum, sem leiddu til handtöku Mick. í miðri greininni var mynd af Hall lög- regluforingja. Þegar blaðamaðurinn hafði lýst hrifningu sinni yfir frammistöðu Murphy, lauk hann greininni þessum orðum: „Við því er búizt, að hinn seki komi fyrir lögregluréttinn í Marylebone strax í fyrramálið“. Næst beindi Mick athygli sinni að vél- rituðum snepli, sem ekkert var ritað á, annað en: Frh. i nœsta bl. Milli jóla og nýjárs 1936 fékk ég til- kynningu um það frá Partridge, að þeir væru nú reiðubúnir til að hefja vegar- átti að hefjast handa í fyrstu viku jan- gerðina milli Nkana og Ntsjanga, og úarmánaðar 1937. Átti ég að gefa mig fram við hanp þann 2. janúar og stjórna flokki, sem byrjaði á vegargerðinni um 15 km. fyrir norðan Nkana. Vegargerðin reyndist miklu auðveldari en ég hafði gert ráð fyrir. Við þurftum aðeins að fylgja hælum þeim, sem mæl- ingamennirnir höfðu rekið niður með reglubundnu millibili. Vegurinn var 18 fet á breidd og þráðbeinn, nema þar sem þrætt var fyrir mýrlendi eða smáhæðir. Verk okkar var fyrst og fremst fólgið í að fella tré, grafa upp ræturnar og fylla holurnar eftir þær. Voru alls 400 menn undir stjórn minni, en einn maður gat eiginlega ekki stjórnað fleiri mönnum. Þriðjungur þeirra vann á bersvæði, og var auðvelt að fylgjast með þeirn, en hinir voru inni í skóginum, Iþar sem þeir felldu tré eða ruddu mauraþúfum úr vegi, og varð stundum að reka á eftir þeim. Flestir voru ráðnir með aðstoð skógasímans — það er að segja, trumbur voru barðar til að kalla þá til vinnu, Komu þeir í hópum og höfðu allt skyldu- lið sitt með sér. Eins og annars staðar í Afríku var fjölkvæni regla þarna. Fyrstu vikuna hafði ég mestu áhyggj- ur af verkamönnum mínum. Þeir voru ekki Iengi að komast að því, að ég hafði aldrei stjórnað vegagerð áður, svo að þeir reyndu að nota sér reynsluleysi mitt. Ég fékk Póló til að vinna eið að því, að segja engum frá því, að ég kynni tungu svert- ingjanna, og varð ég að greiða honum tvo shillinga og fimm rakblöð lyrir það. Gekk ég síðan um meðal verkamannanna, og heyrði þá segja sín á milli: „í dag ætla ég að leita að villihunangi — hvíti maðurinn veit ekkert um það, þótt ég fari“, eða „Ég gæti fellt helmingi fleiri tré, en hvers vegna ætti ég að reyna á mig?“ Ég lét |þetta afskiptalaust í nokkra daga, en næsta laugardag efndi ég til indaba, ráðstefnu. Frammi fyrir mér stóð allur hópurinn, 400 menn, auk kvenna og barna, og fann ég á mér, að menn

x

Vikublaðið Gestur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikublaðið Gestur
https://timarit.is/publication/1067

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.