Morgunblaðið - 12.11.2011, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2011
Laugavegi 178. Sími 562 1000. www.utivist.is
Jólastemmingin
býr í Básum
Aðventuferð Útivistar 25. – 27. nóv.
Aðventuferð jeppadeildar 3. – 4. des.
Áramótaferð Útivistar 30. des. – 2. jan.
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is
Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson,
vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Marta María Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála martamaria@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Einstökum framleiðendum verður
ekki heimilt að framleiða meira en
15% af heildarframleiðslu svína-
afurða, verði frumvarp sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðherra að lögum.
Einn framleiðandi er nú með um 50%
framleiðslunnar. Frumvarpið var
kynnt í ríkisstjórn í gær en var ekki
afgreitt til þingflokkanna.
Breytingarnar eru lagðar til með
því að taka upp sérstök ákvæði um
framleiðslu svínaafurða í búvörulög.
Markmiðið, að því er fram kemur í
greinargerð, er að skapa svínarækt-
inni eðlilegt samkeppnisumhverfi og
tryggja að framleiðslan taki mið af
þörfum innanlandsmarkaðar. Sér-
staklega er nefnt að fækkun svína-
bænda sé áhyggjuefni út frá sjónar-
miðum um fæðuöryggi. Talið er að
þeir séu aðeins tugur og einn með um
helming framleiðslunnar. Frumvarp-
inu er ætlað að hvetja til þess að fleiri
fjölskyldubú komi að framleiðslunni.
Ákveður heildarframleiðslu
Ráðherra skal ákveða árlega hvað
telst vera hæfilegt að framleiða af
svínakjöti á komandi ári. Einstökum
framleiðendum verður ekki heimilt að
framleiða nema 15% af því magni.
Ýmis ákvæði eru til að koma í veg fyr-
ir að hægt verði að komast fram hjá
þessum stærðarmörkum. Hins vegar
er núverandi framleiðendum gefinn
tími til aðlögunar. Þannig verður há-
marksframleiðslan 35% á árinu 2013
en lækkar smám saman þangað til
hún verður 15% 2019. Eftir það er
ráðherra raunar heimilað að hækka
þessi mörk, ef útlit er fyrir að fram-
leiðslan verði of lítil fyrir markaðinn.
Matvælastofnun hefur eftirlit með
að framleiðendur haldi sig innan
marka. Skal það meðal annars gert
með talningu á gyltum, að minnsta
kosti tvisvar á ári, og leggja á sektir
fari menn yfir mörkin.
Framleiðsla takmörkuð
við 15% af markaðnum
Ráðherra vill að fleiri fjölskyldur framleiði svínakjöt
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Farsími sænska
ferðamannsins
sem leitað er að
á og við Sól-
heimajökul varð
rafmagnslaus í
miðju samtali við
neyðarvörð hjá
Neyðarlínunni á
miðvikudags-
kvöld. Samtalið
varði í 3 mínútur
og 58 sekúndur. Ekki náðist aftur
samband við símann.
Maðurinn var eðlilega skelkaður
þegar hann hringdi. Þórhallur
Ólafsson, framkvæmdastjóri Neyð-
arlínunnar, sagði í samtali við
Morgunblaðið að til allrar óham-
ingju hefði maðurinn í upphafi sím-
tals ekki getað gefið neinar hald-
bærar upplýsingar um staðsetningu
sína.
Hann hefði heldur ekki gefið til
kynna með nokkrum hætti að raf-
hlaðan í símanum væri um það bil
að klárast.
Nefndi ekki Sólheimajökul
Neyðarvörður hefði reynt að
leiða hann áfram, m.a. spurt hann
út í staðarnöfn og þegar neyð-
arvörður hefði spurt hvort hann
væri við Skóga eða Skógafoss hefði
maðurinn játað því. Hann sagði
jafnframt að hann væri örugglega á
ís, en ekki snjó. Aldrei í samtalinu
hefði hann nefnt nafn Sólheimajök-
uls. Hann hefði einnig verið spurð-
ur hvort hann væri einn á ferð,
hvenær hann hefði lagt upp, um
búnað og fleira. „Við hefðum þurft
mínútu í viðbót, eða tvær, þá hefði
kannski mátt þrengja svæðið. Mað-
ur reiknar með að menn viti hvar
þeir eru, það er almenna reglan,“
sagði Þórhallur.
Verði varaðir við hættunum
Þórhallur sagði að þetta mál
sýndi nauðsyn þess að erlendir
ferðamenn sem hingað koma fengju
ítarlegar upplýsingar um þær
hættur sem felast í ferðamennsku á
Íslandi, ekki síst að vetri til. „Við
erum í miklu átaki um vetrarferða-
mennsku en það er hvergi tekið
fram hvað þetta getur verið hættu-
legt,“ sagði hann.
Farsíminn
varð raf-
magnslaus
Þórhallur
Ólafsson
Maðurinn skelkaður
þegar hann hringdi
Guðni Einarsson
Rúnar Pálmason
Leitarmenn á Sólheimajökli voru í
gær að nálgast 300 metra hæðarlín-
una á jöklinum, að sögn Jóns Her-
mannssonar í svæðisstjórn björgun-
arsveitanna á Hellu. Talið er að leita
þurfi allt upp í 500-600 metra hæð til
að komast yfir svæðið sem maðurinn
kann hugsanlega að hafa farið yfir.
Leitarmenn munu halda áfram að
fikra sig upp eftir skriðjöklinum í
dag og jafnframt verður leitað betur
á tilteknum „heitum“ svæðum á
jöklinum sem búið er að leita en
ástæða er talin til að kanna nánar.
Jökullinn mjókkar eftir því sem ofar
dregur en verður um leið brattari,
sprungnari og illfærari.
Minnst 150 leita í dag
Um 200-300 manns komu að leit-
inni í gær. Jón sagðist vonast til að í
dag næðist að vera með að minnsta
kosti 150 manns við leit.
„Við setjum ekki þreytta leitar-
menn aftur og aftur inn á svona
hættulegt svæði,“ sagði Jón. „Þarna
eru menn að vinna á sprungubrún-
um í fljúgandi hálku og geta hrapað
langar vegalengdir.“ Auk þess að
leita á jöklinum er búið að leita á
láglendi á gríðarstóru svæði, frá
bílastæðinu við Sólheimajökul og
nánast niður að sjó. Leitarsvæðið
var í upphafið miðað við 7 km radíus
frá bílastæðinu við Sólheimajökul
þar sem bílaleigubíll mannsins
fannst.
Í gær fundust spor og hanski á
leitarsvæðinu en engin staðfesting
hefur fengist á að það megi rekja til
Svíans sem er leitað, að sögn Jóns.
Hann sagði vitað að tvær stórar rút-
ur hefðu komið á svæðið með ferða-
menn eftir að Svíinn kom þangað og
ómögulegt að segja hvað þeir fóru
langt eða skildu eftir.
Ljósmyndari og hönnuður
Ferðamaðurinn sem leitað er að á
og við Sólheimajökul heitir Daniel
Markus Hoij. Hann er 25 ára hönn-
uður sem hefur verið búsettur í
Bretlandi um árabil en er sænskur
ríkisborgari. Hoij er áhugaljós-
myndari og mun hafa komið hingað
til að taka myndir af íslenskri nátt-
úru. Hann kom 7. nóvember og ætl-
aði að staldra við í nokkra daga að
sögn Sveins Rúnarssonar, yfirlög-
regluþjóns á Hvolsvelli.
Bróðir mannsins kom til landsins í
fyrrakvöld til að veita lögreglu og
björgunarsveitum upplýsingar og
fylgjast með leitinni. Hann heimsótti
Samhæfingarstöðina í Skógarhlíð í
gærmorgun og fór svo austur á leit-
arsvæðið þar sem hann var upplýst-
ur um aðstæður og fór á jökul.
Fyrir liggur að Hoij dvaldist á
Hótel Natura (áður Hótel Loftleiðir)
og í fyrstu fór hann í stuttar ferðir
frá Reykjavík. Hann kom að Sól-
heimajökli síðdegis á miðvikudag og
hringdi seint um kvöldið í Neyðar-
línuna og bað um aðstoð. Ekkert
liggur fyrir með vissu um búnað
mannsins en hann mun ekki vera
vanur fjallaferðum. Þó hefur lög-
reglan upplýsingar um að hann hafi
keypt sér létta mannbrodda sem
hægt er að smeygja neðan á skó en
henta alls ekki til jöklaferða.
Upplýsingar sem maðurinn gaf í
samtali við Neyðarlínu, og gögn sem
sýndu að símtalið kom um sendi á
Skógasandi, leiddu til þess að björg-
unarsveitarmönnum var beint að
Fimmvörðuhálsi. Síðdegis á fimmtu-
dag fannst bílaleigubíll mannsins við
Sólheimajökul. Meðal gagna sem
leitarmenn hafa til hliðsjónar er kort
yfir farsímasamband á svæðinu en
það er stopult á þessum slóðum.
Fikra sig upp jökulinn
Leit að sænskum ferðamanni á Sólheimajökli hafði ekki borið árangur í gær
Leitarmenn nálgast 300 m hæðarlínuna en þurfa að leita upp í 500-600 m hæð
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Sólheimajökull Leitarsvæðið er gríðarlega erfitt yfirferðar og til leitar. Skriðjökullinn er flugháll og stutt í djúpar
sprungur og svelgi. Sigið er í sprungur og svelgi í leit að manninum en slík leit er erfið og tímafrek.
Nýtt leitarsvæði
Hér fannst bíll
mannsins.
Leitarsvæðið
er 7 km radíus
frá bílnum.
Só
lhe
im
ajö
ku
ll
Eyjafjallajökull
Mýrdalsjökull
Fi
m
m
vö
rð
uh
ál
s
Skógar
Sólheimar
Sólheimahjáleiga
Kl
ifu
rá
rjö
ku
ll
Hrunajökull
Go
ða
lan
ds
jö
ku
ll
Grunnkort: LMÍ
Heimild: Slysavarnafélagið Landsbjörg
Umfangsmikil leit
» Neyðarlínunni barst símtal
frá villtum, hröktum og köldum
ferðamanni klukkan 22.21 á
miðvikudagskvöld.
» Hann taldi sig hafa gengið í
6-8 klukkustundir frá Skógum
og vera staddur á ís.
» Björgunarsveitir í nágrenn-
inu voru kallaðar til leitar
klukkan 23.00.
» Leitarmenn dreif víðar að
um nóttina og eins kom þyrla
Landhelgisgæslunnar.
» Bílaleigubíll týnda mannsins
fannst við Sólheimajökul síð-
degis á fimmtudag og þá
beindist leitin þangað.