Morgunblaðið - 12.11.2011, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2011
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Auglýsing sem Sveinbjörn Bene-
diktsson, fyrrverandi bóndi í Land-
eyjum, setti í nýjasta tölublað
Bændablaðsins hefur vakið athygli.
Þar auglýsir hann meðal annars til
sölu dráttarvélar, tíu fylfullar hryss-
ur, múgavél og klæðskerasaumuð
teinótt jakkaföt. „Ég setti þessi
jakkaföt í lokin til að hafa skraut-
fjöður,“ segir Sveinbjörn og hlær.
Fötin eru 50 ára, gráteinótt og lítið
brúkuð. Sveinbjörn fékk þau notuð.
Hann hafði þó óskað sér svart-
teinóttra fata eins og Ólafur Thors
átti. „Ég var einn af þeim sem stofn-
uðu Félag ungra sjálfstæðismanna í
Kjósarsýslu. Það vakti undrun hvaða
mannskap ég fékk til að ganga í félag-
ið, tveimur alþýðubandalagsmönnum
náði ég,“ segir Sveinbjörn kankvís.
„Ólafur Thors var voðalega ánægður
með þessa stofnun. Hann lofaði mér
að keyra bílinn sinn þegar ég var 17
ára eftir framboðsfund í Hlégarði.
Það þótti mikil upphefð.“
Jakkafötin munu áfram tengjast
Sjálfstæðisflokknum. Þau seldust í
gær til ungra manna sem ætla að gefa
vini sínum þau, en sá er mikill sjálf-
stæðismaður.
101 hross til sölu
Sveinbjörn segist stundum setja
auglýsingar í Bændablaðið og oft sé
hann að aðstoða Pétur og Pál. „Lög-
gild gamalmenni verði að hafa eitt-
hvað fyrir stafni. Í gamla daga seldi
ég mikið af hrossum og auglýsti eitt
sinn 101 hross til sölu. Þetta eina
hross vakti svo mikla athygli að ég
varð að fá mann til að mjólka fyrir
mig því síminn stoppaði ekki,“ segir
Sveinbjörn. Ekki er svo líflegt nú,
hann segir mjög dauft yfir allri sölu
þótt margir hringi til að forvitnast.
Seld sjálfstæðismönnum
Auglýsti 50 ára klæðskerasaumuð jakkaföt til sölu í
Bændablaðinu Vildi vera í teinóttu eins og Ólafur Thors
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Líflegur Sveinbjörn Benediktsson með teinóttu jakkafötin sem hann seldi og afhenti kaupandanum í gærkvöldi.
„Til sölu MF-135 með tækjum.
Nokkrir gamlir traktorar. Flott-
ur Fiat 80-90, dráttarvél. Er
frábær. Búslóð, margt gamalla
muna. 10 fylfullar hryssur,
grunnskráðar. Fín aukabúgrein.
6 hjóla lyftutengd múgavél.
Antík teinótt föt klæð-
skerasaum-
uð af Vig-
fúsi Guð-
brands-
syni og
co. Uppl.
í síma
865-
6560.“
Auglýsingin
TRAKTOR OG TEINÓTT FÖT
Egill Ólafsson
egol@mbl.is
Ef fjárveitingar til Heilbrigðisstofnunar Vest-
urlands verða skertar í samræmi við fjárlaga-
frumvarp næsta árs þarf stofnunin að segja upp
tugum starfsmanna. Hún stendur frammi fyrir
250 milljóna króna niðurskurði ef tekið er tillit
til hallareksturs á þessu ári. Þetta segir Guðjón
S. Brjánsson, forstjóri Heilbrigðisstofnunar
Vesturlands.
Guðjón segir að Heilbrigðisstofnun Vestur-
lands eins og fleiri heilbrigðisstofnanir standi á
krossgötum. Niðurskurðurinn sé að breyta
ásýnd þjónustunnar. Hann segir að stofnunin
eigi nú í viðræðum við stjórnvöld um reksturinn
á næsta ári og leggur áherslu á að engar
ákvarðanir hafi enn verið teknar um breytingar
á þjónustu eða starfsmannahaldi.
Ræða sameiningu deilda
Eitt af því sem er til umræðu er að sameina
öldrunardeild annarri deild á spítalanum á
Akranesi. Guðjón segir að ef þetta verði gert
verði öllum sem eru á öldrunardeildinni tryggð
vistun, annaðhvort áfram á spítalanum eða á
hjúkrunarheimilum. Hann segir að fleira sé til
skoðunar, m.a. verði að gera breytingar á spít-
alanum í Stykkishólmi ef Alþingi geri ekki
breytingar á fjárveitingum til spítalans. Stofn-
unin er með starfsemi á Akranesi, Borgarnesi,
Búðardal, Grundarfirði, Hólmavík, Hvamms-
tanga, Ólafsvík og Stykkishólmi.
Hefðu þurft að segja upp um áramót
Guðjón segir að í reynd hefðu stjórnendur
stofnunarinnar þurft að grípa til aðgerða um
síðustu áramót til að forðast hallarekstur, en
ákveðið hafi verið að gera það ekki, m.a. vegna
yfirlýsinga stjórnvalda um að sparnaður í rík-
isrekstri ætti ekki að leiða til uppsagna á starfs-
fólki.
Samkvæmt fjárlagafrumvarpi næsta árs verð-
ur fjárveiting til Heilbrigðisstofnunar Vestur-
lands 2.777 milljónir, en það jafngildir 96,5
milljóna samdrætti frá fjárveitingum þessa árs.
Stofnunin hefur hins vegar verið rekin með tapi
á þessu ári og því þarf að skera niður um 250
milljónir til að ná jöfnuði milli tekna og gjalda.
Þurfa að óbreyttu að segja
upp tugum starfsmanna
Heilbrigðisstofnun Vesturlands stendur frammi fyrir 250 milljóna króna sparnaði
Sparnaður Sjúkrahúsið á Akranesi stendur
frammi fyrir miklum niðurskurði.
Víðar skorið niður
» Landspítalinn, Sjúkrahúsið á Akureyri og
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja hafa þegar
tilkynnt aðgerðir sem miða að sparnaði í
rekstri og fækkun starfsmanna.
» Fleiri stofnanir þurfa að skera niður, m.a.
Heilbrigðisstofnun Þingeyinga, Heilbrigð-
isstofnunin á Sauðárkróki, Heilbrigðis-
stofnun Austurlands og Heilbrigðisstofnun
Suðurlands.
» Heilbrigðisstofnanir á landsbyggðinni
þurfa að spara 540 milljónir og Landspít-
alinn 630 milljónir.
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Icesave, Evrópusambandið og efna-
hagsástandið í heiminum var á meðal
þess sem Bjarni Benediktsson, for-
maður Sjálfstæðisflokksins, ræddi
um við David Cameron, forsætisráð-
herra Bretlands, á fundi þeirra í
Lundúnum í gær. Var Bjarni staddur
í borginni til að sækja ráðstefnu
íhaldsflokka sem lauk þar í gær.
„Ég nýtti tækifærið til þess að upp-
lýsa hann um stöðuna í Icesave-
málinu, sérstaklega hvaða þýðingu
staðfesting neyðarlaganna hefði haft
fyrir alla innistæðueigendur,“ segir
Bjarni.
Lögin hefðu haft úrslitaþýðingu til
þess að tryggja fulla endurgreiðslu á
öllum innistæðum vegna þess að
eignir þrotabúsins duga fyrir öllum
forgangskröfum.
„Í þessu ljósi taldi ég rétt að ríkin
tvö sem sótt hafa að Íslandi felldu
niður frekari kröfur í málinu og færu
að horfa til framtíðar,“ segir Bjarni.
Þá spurði Cameron Bjarna um
stöðu aðildarviðræðna Íslendinga og
ESB og um stjórnmálaástandið á Ís-
landi. Að sögn Bjarna hafði forsætis-
ráðherrann skilning á þeirri afstöðu
sjálfstæðismanna að þeir væru sáttir
við samskiptin við ESB á grundvelli
EES-samningsins og að lítil skyn-
semi væri í því fyrir Íslendinga að
gangast undir fiskveiðistjórn-
unarkerfi ESB.
Hefur skilning á
ESB-afstöðunni
Fundaði með David Cameron í gær
Fundur Bjarni Benediktsson og
David Cameron á fundi sínum.
Íslendingar höfn-
uðu í 26. sæti á
Evrópumóti
landsliða í skák
sem lauk í Grikk-
landi í gær. Vann
íslenska sveitin
góðan sigur á
þeirri skosku í
níundu og síð-
ustu umferð
mótsins, 4-0.
Urðu Íslendingar því efstir Norð-
urlandaþjóðanna á mótinu.
Gunnar Björnsson, forseti Skák-
sambands Íslands, segir árang-
urinn algerlega framar vonum og
að menn séu í skýjunum yfir hon-
um. Fyrir mótið hafi Íslendingum
verið raðað í 32. sæti.
Þá tryggði hinn 18 ára gamli
Hjörvar Steinn Grétarsson sér stór-
meistaraáfanga með sigrinum í
gær. Gildir áfanginn tvöfalt þar
sem hann náðist á landsliðsmóti.
Þarf Hjörvar því aðeins einn
áfanga í viðbót til að verða stór-
meistari en yfirleitt þarf þrjá
áfanga til að ná þeim titli.
„Þetta er draumur að rætast. Ég
bjóst ekki við þessu fyrir mótið, ég
hélt að þetta kæmi ekki strax,“ seg-
ir Hjörvar Steinn um áfangann.
Þakkar hann liðinu, þjálfurum, fjöl-
skyldu og vinum árangurinn sem
hann hafi ekki náð einsamall.
Sigur á Skotum og
stórmeistaraáfangi
hjá Hjörvari Steini
Hjörvar Steinn
Grétarsson.