Morgunblaðið - 12.11.2011, Síða 6

Morgunblaðið - 12.11.2011, Síða 6
Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Prentvélarnar í Odda stoppa ekki þessa dagana, þar er unnið allan sól- arhringinn við að koma jólabókunum í verslanir í tíma. Rúnar Höskuldsson, sölustjóri hjá Prentsmiðjunni Odda, segir að þar sé verið að prenta svipað magn bóka og í fyrra, titlarnir séu þó færri en prentaðir í stærra upplagi. „Það hefur gengið vel að prenta og við áætlum að klára síðustu bækurn- ar í næstu viku. Jólabókatörnin byrj- aði fyrir rúmum mánuði síðan, nú er hámarkið á vertíðinni og unnið allan sólarhringinn. Svo gerum við ráð fyrir að undir mánaðarmót fáum við fyrstu endurprentanirnar og þá fer allt af stað aftur,“ segir Rúnar. Undanfarin ár hafa 60% til 70% af íslenska bókamarkaðnum verið prentuð hjá Odda. Rúnar segir að prentunin hafi komið heim eftir hrun og haldið sér nokkurnveginn síðan. „Það var heilmikið prentað í útlönd- um fyrir hrun en 2008 snérist þetta við, mikið af prentuninni kom heim og hefur þaðhaldist nokkuð stöðugt síðan.“ Bandarískar listaverkabækur Oddi er ekki bara á íslenskum markaði því þar er líka tölvert prent- að af erlendum bókum, þá aðallega fyrir Bandaríkjamarkað. „Við höfum verið að sérhæfa okk- ur í hágæðaprentun í litlu upplagi. Við erum með söluskrifstofur í Bandaríkjunum og það hefur gengið fínt, vaxið jafnt og þétt. Gengið er líka hagstætt fyrir þann markað. Þetta eru mikið listaverkabækur og aðrar sambærilegar bækur sem eru gefnar út í litlum upplögum,“ segir Rúnar. „Svo er spurning hvað gerist í kjölfarið á bókamessunni í Frank- furt. Við vorum meðal þátttakenda þar en það er langtímaverkefni sem við erum að byrja að vinna í.“ Rúnar segir prentunina fyrir er- lendan markað dreifast yfir árið á meðan íslenski bókamarkaðurinn sé mjög árstíðarbundinn. Jólabókavertíðin í prentun í hámarki  Unnið allan sólarhringinn  Yfir 70% bóka prentuð hér Morgunblaðið/Ómar Bókaflóð Prentvélarnar í Odda stoppa ekki þessa dagana, út úr þeim flæða jólabækurnar í ár, sem aldrei fyrr. 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2011 Yngstu lesendur Morgunblaðsins tóku væntanlega eftir því um síðustu helgi að nýtt barnablað fylgdi með Sunnudagsmogganum. Umsjónarmaður þess er Signý Gunnarsdóttir blaðamaður en hún sá um barnablaðið lengi vel áður en Disney-blaðið hóf göngu sína fyrir tveimur árum. Signý segir að nýja barnablaðið höfði til breiðari markhóps en áður og nú sé reiknað með að lesendur séu allt upp í 14 ára. Reynt verður að vera með krefj- andi þrautir fyrir börn á öllum aldri, alveg niður í 4-5 ára, en einnig ættu unglingar að finna þrautir fyrir sig í hverju blaði. Þá verða birt viðtöl, brandarar, krossgátur, myndir og myndasögur. „Blaðið verður vettvangur bæði fyrir börn sem eru að gera eitthvað skemmtilegt og hafa yfirleitt ekki tækifæri til að koma sínu efni á framfæri og eins fyrir þá sem eru að framleiða efni eða gera efni fyrir börn,“ segir Signý. Spurð hvort hún fái hugmyndir að efni frá börn- unum sínum, sem eru 5 og 8 ára, segir Signý svo vera. „Ég fæ bæði hugmyndir frá börnunum mínum, hvað þeim finnst spennandi og skemmtilegt, en er líka fljót að grípa hvað er að gerast í umhverfinu og reyna að nappa flotta og efnilega krakka í viðtöl.“ Aðspurð segir Signý viðtökurnar við barnablaðinu hafa farið fram úr væntingum. „Ég hef fengið voða- lega góð viðbrögð hjá krökkum og ótal tölvupósta. Ég hefði ekki trúað því að viðbrögðin gætu orðið svona mikil eftir fyrsta blað. Það tel ég að sé merki um að það hafi verið vöntun á þessum markaði,“ segir hún að lokum. ylfa@mbl.is Nappar flotta og efnilega krakka í viðtöl Morgunblaðið/Golli Barnablaðið Signý Gunnarsdóttir skrifar fyrir börnin. FRÉTTASKÝRING Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Verkfall 15 undirmanna á skipum Hafrannsóknastofnunar hefur nú staðið síðan í lok september. Ekki hefur verið fundað í deilunni hjá rík- issáttasemjara síðustu daga. Ein af helstu kröfum Sjómannafélags Ís- lands, fyrir hönd umbjóðenda sinna, er að grunnlaunin hækki verulega og hefur talan 50% verið nefnd í því sambandi. Lægstu grunnlaunin eru nú 157 þúsund krónur á mánuði. Fram hefur komið í blaðinu af hálfu forystumanna samninganefndar rík- isins að vilji sé til að lagfæra dag- vinnulaunataxtana, en um leið verði að taka mið af heildargreiðslunum. Heildarmánaðarlaun undirmanna á rannsóknaskipunum voru í fyrra á bilinu 400-525 þúsund krónur. Launahæsti undirmaðurinn á skip- unum var í fyrra með rúmlega sex milljóna króna árstekjur. Að meðal- tali voru sjódagar þessara starfs- manna 140 á síðasta ári. Inni í heild- arlaunum eru um 70 fastir yfir- vinnutímar og aðrar greiðslur lyfta laununum enn frekar. Þegar skipin eru í landi taka menn út sín frí, en sinna einnig viðhaldi á skipunum og talsverð vinna er fólgin í frágangi eftir leiðangur og undir- búningi fyrir þann næsta sem kallar oft á allt önnur veiðarfæri og annan búnað. Auk hækkunar á grunnlaun- um hefur Sjómannafélag Íslands far- ið fram á bætur fyrir sjómannaaf- slátt, sem afnuminn verður í áföngum. Um áramót verður búið að fella helming hans niður. Veruleg áhrif Verkfallið hefur þegar haft veru- leg áhrif á rannsóknir Hafrann- sóknastofnunar. Þannig hefur hvorki orðið af mælingu á ungloðnu, sem var ráðgerð í október, né haust- ralli, þar sem áhersla er lögð á rann- sóknir á grálúðu, djúpkarfa, þorski og ýsu. Mælingar á ungloðnu hafa farið fram á þessum tíma í um 30 ár og haustrallið óslitið í aldarfjórðung. Ósamið er við bæði skipstjórnar- menn og vélstjóra á skipum Haf- rannsóknastofnunar. Grunnlaun 157 þúsund, en hálf milljón í heildina  Sex vikna verkfall á skipum Hafró Morgunblaðið/Eggert Bundin Rannsóknaskipin hafa verið bundin við bryggju í sex vikur. Georg Páll Skúlason, formaður Félags bókagerðarmanna, segir að í fyrra hafi 71% af útgefnum bókum verið prentað á Íslandi. Ár- ið 2008 var hlutfallið 79%, það hæsta sem hefur mælst. Ekki er búið að taka saman tölur yfir prentun í ár. „Af 710 titlum sem voru gefnir út í fyrra, voru 507 prentaðir á Íslandi, 130 í Asíu og 73 í Evrópu. Með 70-80% hlutfall má segja að það prentverk sem við getum haldið innanlands sé innanlands. Í barnabókum voru 60% prentuð úti. Megnið af því er í samprenti, þ.e sama bókin prentuð fyrir mörg lönd í einu. Þannig að það er ekki raunhæft að ná 100% skori í þessu.“ 70-80% prentuð hér BÓKAGERÐARMENN Landsbankinn hefur frá banka- hruni fellt niður skuldir fyrirtækja sem nema 390 milljörðum króna. Segir í tilkynningu frá bankanum að stærstur hluti þeirra séu skuldir stórra eignarhaldsfélaga sem litlar eignir áttu og fóru í gjaldþrot, eða kröfuhafar eignuðust eftir nauð- samninga. Hlutfall niðurfærðra skulda fyr- irtækja er um 37%. Segir bankinn að það láti nærri að vera sama hlut- fall og hjá einstaklingum sem sé um 35%. Stefnir bankinn á að ljúka endur- skipulagningu skulda fyrirtækja í vanda í byrjun næsta árs en þeirri vinnu hafi þegar verið lokið hjá meirihluta fyrirtækja. Skuldir þeirra séu í flestum tilfellum mjög miklar og skuldsetningin nemi allt að hundrað prósentum af eigna- eða rekstrarvirði sem geri stöðu þeirra erfiða þrátt fyrir niður- færslur. Stærst fyrirtækjanna sem þegar hafa fengið færðar niður skuldir eru Stoðir (áður FL Group) og Atorka að sögn bankans. Skuldir fyrirtækja verið færðar niður um 390 milljarða í Landsbankanum frá hruni Bláberin fást í apótekum, heilsuhúsum og Fjarðakaupum Sími 555 2992 og 698 7999 Bláber Nýtt á markaðnum frá Polargodt Í bláberjum eru andoxunarefnin C-vítamín og E-vítamín sem hindra myndun skaðlegra sindurefna í frumum líkamans. Þessi efni tengjast hrörnun og þróun ákv. sjúkdóma t.d. krabbameins, æðakölkunar og skýs á auga. (heimild: Landlæknisembættið , Lýðheilsustöð; www.landlaeknir.is/pages/629) Bláber geti m.a. haft áhrif á: • Náttblindu - nætursjón - gláku • Sjónskerpu • Sykursýki • Minnisleysi • Kólesteról

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.