Morgunblaðið - 12.11.2011, Síða 12

Morgunblaðið - 12.11.2011, Síða 12
BAKSVIÐ Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Hnúfubakurinn, sem merktur var með gervitunglasendi í Eyjafirði fyrir viku, var í gær í nágrenni við höfnina í Keflavík. Lengsta áfang- ann á einum sólarhring synti hval- urinn á sunnudag, en á um tólf klukkutímum synti hann mjög ákveðið um 130 kílómetra til norð- vesturs. Að mörgu leyti er hegðan hnúfubaksins nú svipuð og hvala sem merktir voru 2008 og 2009. Rannsóknir Hafrannsóknastofn- unarinnar sem byggjast á merk- ingum með gervitunglasendum, hafa nú þegar varpað nýju ljósi á ýmsa þætti er tengjast viðveru hvala við landið. Með þeim er m.a. könnuð árstíðabundin útbreiðsla og far skíðishvala við Ísland og hafa rannsóknir á undanförnum árum staðfest að talsvert er um hnúfubaka hér við land að vetr- arlagi. Segja má að þessar rannsóknir séu einu vísindarannsóknirnar sem gerðar eru á sjó hér við land þessa dagana. Verkfall á rannsóknaskip- unum hefur komið í veg fyrir leið- angra fiskifræðinga upp á síðkast- ið, en hvalurinn syndir sinn sjó og sendir frá sér stöðug merki. Gísli Víkingsson, hvalasérfræðingur á Hafrannsóknastofnun, og kollegar hans fá því daglega upplýsingar til að vinna úr. Samgangur milli hnúfubaka Eldri kenningar gerðu ráð fyrir að hnúfubakar og aðrir skíðishvalir yfirgæfu landið á haustin og kæmu aftur að vori. Þegar loðnusjómenn fóru að tilkynna í auknum mæli um hnúfubaka á loðnumiðum að vetr- arlagi samhliða því sem hnúfubak tók að fjölga eftir 1980 var ljóst að hluti stofnsins væri hér að vetr- arlagi. Jafnframt hafa rannsóknir með greiningu einstaklinga af ljós- myndum sýnt samgang milli hnúfubaka hér við land að sumri og í Karíbahafi og nú nýlega einnig nálægt Azoreyjum að vetrarlagi, samkvæmt upplýsingum Gísla Vík- ingssonar. Án þess að gögn lægju fyrir um fjölda og samsetningu hnúfubak- anna sem sjást við Ísland að vetr- arlagi var giskað á að þetta væru ungdýr eða dýr sem af öðrum ástæðum hefðu ekki ástæðu til að eyða orku í ferðalag suður á æxl- unarsvæðin. Rannsóknir á síðustu árum með aðstoð gervitunglasenda og ljósmyndun að vetrarlagi hafa staðfest viðveru umtalsverðs fjölda hnúfubaka hér að vetrarlagi en einnig að a.m.k sumir þeirra halda suður á bóginn um miðjan vetur. Gísli segir áhugavert ef unnt væri að fylgja hvölunum eftir í heilt ár, en örðugt hafi reynst að finna tæknilegu lausnina á því að láta hvalamerki tolla á svo lengi þrátt fyrir áratuga langar tilraunir vísindamanna um allan heim. Talsvert af hnúfubaki að vetri  Hvalur merktur með gervihnattasendi í Eyjafirði fyrir viku spókar sig nú í Keflavík  Rannsóknir á hvölum í fullum gangi þrátt fyrir verkfall á rannsóknaskipum  Synti um130 kílómetra á tólf tímum Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Vekur áhuga Hnúfubakur bregður á leik út af Hauganesi, ferðafólki í hvalaskoðun til óblandinnar ánægju. 12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2011 Ferðir hnúfubaks við Íslandsstrendur Hvalur merktur 21. október 2009 Hvalur merktur 4. nóvember 2011 Hvalir merktir í Eyjafirði 11. nóvember 2011 (922,9 km) 20. janúar 2010 (6.319,5 km) Hljóðupptökur doktorsnemans Eddu Elísabetar Magnúsdóttur hafa sýnt fram á söng hnúfubaka í Skjálfanda um miðjan vetur. Þessar niðurstöð- ur gætu bent til mökunar hluta stofnsins á norð- lægum slóðum. Doktorsverkefni hennar er að kanna viðveru hvala við norðurströnd landsins allan ársins hring og hvað þeir aðhafast á hverj- um árstíma. Hún notast við hljóðupptökutæki í rannsóknum sínum og yfir sumartímann tengj- ast hljóðin sem hvalirnir gefa frá sér ýmiss kon- ar félagslegri hegðun og t.d. samvinnu við fæðu- öflun. „Þegar ég fór að fara yfir hljóðupptökurnar þá komst ég að því að hnúfubakar eru við Norðurland í ein- hverjum mæli allt árið og það kom mér á óvart þegar ég heyrði hnúfubaka syngja í Skjálfandaflóa, en söngurinn tengist makaleit og mökun,“ segir Edda Elísa- bet. „Frá því í desember og alla vega út febrúar syngja hnúfubakar í Skjálfanda og fjölbreyti- leiki söngsins eykst eftir því sem líður á tíma- bilið á sama tíma og hormónastigið er í há- marki og makaleitin á fullu. Söngurinn er kraftmestur þegar myrkrið er mest, til dæmis syngja þeir mun meira undir nýju tungli en þeg- ar tungl er fullt og lítið heyrist sungið á daginn. Syngjandi karldýrin á þessum slóðum haga sér eins og þau séu að leita að kerlingum, þó svo að mökun hnúfubaka hafi ekki verið tengd norð- lægum slóðum til þessa. Það er erfitt að segja til um hvort þarna hafi mökun farið fram í raun og veru og brýnt að hægt verði að afla sýna til að fá vitneskju um það,“ segir Edda Elísabet. Söngurinn kraftmestur þegar myrkrið er mest SYNGJANDI HVALIR Í SKJÁLFANDAFLÓA BENDA TIL MAKALEITAR OG JAFNVEL MÖKUNAR Edda Elísabet Magnúsdóttir Fyrrverandi eigendur svínabúsins í Brautarholti á Kjalarnesi segja rangt að Arion banki og forverar hans hafi þurft að afskrifa milljarða af skuldum búsins eftir að bankinn yfirtók reksturinn 2004 og aftur 2010. Kemur það fram í athugasemd sem Kristinn Gylfi Jónsson hefur sent blaðinu fyrir hönd Brautar- holtsbræðra og Brautarholtsbúsins ehf., vegna greinar um úrskurð sam- keppnisyfirvalda sem birtist í Morg- unblaðinu í gær. Í athugasemdinni, sem í heild er birt á mbl.is, segir að bankinn hafi fengið allar skuldir gamla svínabús- ins greiddar að fullu til baka í sölu- verði 2007. Bankinn hafi rekið það með hagnaði árin 2005 til 2007 og fullyrðingar um að bankinn hafi greitt með hverju framleiddu kílói á meðan hann rak búið séu ósannindi. Varðandi afskriftir skulda eftir að bankinn yfirtók búið á ný, í byrjun árs 2010, segir í athugasemdinni að telja verði að bankinn hafi fengið fullgreitt fyrir kröfur sínar á hendur Svínabúinu Brautarholti ehf. Er í því sambandi nefnt að fasteignir sem metnar voru á 1130 milljónir kr. hafi bankinn keypt af þrotabúinu á 517 milljónir og fært inn í rekstrar- félag sitt. Bent er á að eignirnar voru ekki aug- lýstar til sölu heldur seldar í lokaðri sölu innan skipta til veðhafa, þar sem kaupand- inn og eini veð- hafinn sem þurfti að samþykkja söluna, Arion banki, hafi setið beggja vegna borðs. Þá segir að einnig verði að taka tillit til þess að kröfur bankans hafi að stærstum hluta verið stökkbreytt ólögleg erlend lán. Kristinn Gylfi og bræður hans geta þess að þeir og fjölskyldan í Brautarholti hafi á sínum tíma sett viðbótartryggingu til bankans í formi verðmætra landareigna í Brautarholti þegar þeir keyptu svínabúið. „Arion banki er nú í inn- heimtuferli vegna þessara viðbótar- trygginga og ef þau áform ganga eft- ir hjá bankanum, þá er útlit fyrir að hann muni fara út úr þessum við- skiptum með töluverðum hagnaði,“ segir í athugasemdinni. Segja að bankinn hafi fengið greitt Kristinn Gylfi Jónsson  Brautarholtsbræður segja rangt að milljarðar hafi verið afskrifaðir www.forlagid.is – alvöru bókaverslun á netinu Litmyndabók fyrir byrjendur í lestri Fjórar stuttar sögur með mörgum myndum Tvæ r n ý ja r bæku ru m p ra kka ra n n óbo rga n lega

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.