Morgunblaðið - 12.11.2011, Page 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2011
Martin Messner efnafræðingur hefur varið doktorsritgerð
sína, „Hópmyndanir sýklódextrínflétta“, við lyfjafræði-
deild á heilbrigðisvísindasviði Háskóla Íslands. Sýkló-
dextrín eru hjálparefni sem notuð eru við lyfjagerð. Nið-
urstöður sýndu að það eru tengsl á milli áhrifa sýkló-
dextrína á leysanleika lyfja og tilhneigingu þeirra til að
mynda nanóagnir. Jónun lyfja, hitastig lausnar, fjölliður
og lífrænir leysar hafa áhrif á myndun nanóagna. Myndun flétta lyfja
og sýklódextrína eykur myndun nanóagna. Þeir kraftar sem mynda
nanóagnirnar eru mjög veikir þannig að þær leysast oft upp við síun
lausnar í gegnum himnusíu og þegar hrært er í lausninni.
Martin Messner er fæddur í Þýskalandi 1980. Hann er kvæntur Christine
Messner og eiga þau eina dóttur.
» FÓLK
Doktor í lyfjavísindum
Kristján Þór Magnússon, lýðheilsufræðingur, hefur varið
doktorsritgerð sína „Hreyfing og þrek 7 og 9 ára Íslend-
inga – Samanburður tveggja úrtaka og áhrif tveggja ára
skólaíhlutunar“, í íþrótta- og heilsufræði við Háskóla Ís-
lands. Ritgerðin byggist á niðurstöðum tveggja rann-
sóknaverkefna sem unnin voru árin 2003-2004 og 2006-
2008 innan 24 grunnskóla á landinu.
Meginniðurstöður eru þær að einungis lágt hlutfall níu ára barna
uppfyllti ráðleggingar um daglega hreyfingu og stúlkur hreyfðu sig al-
mennt minna en drengir. En í skólum þar sem íhlutun var beitt jókst
hreyfing barna, sérstaklega meðal drengja.
Kristján Þór er fæddur á Húsavík 1979. Hann er sonur Magnúsar Þorvalds-
sonar og Helgu Kristjánsdóttur. Hann er í sambúð með Guðrúnu Dís Emils-
dóttur og eiga þau eina dóttur.
Doktor í heilsufræðum
Helga Zoëga varði nýverið doktorsritgerð sína „Geð-
lyfjanotkun meðal barna: Samanburður á notkun ADHD-
lyfja á Norðurlöndunum og áhrif lyfjameðferðar við
ADHD á námsárangur“ í lýðheilsuvísindum frá lyfja-
fræðideild á heilbrigðisvísindasviði Háskóla Íslands. Nið-
urstöður verkefnisins benda til þess að notkun geðlyfja sé
hlutfallslega algeng meðal íslenskra barna og að tölu-
verður munur sé á algengi örvandi lyfjanotkunar við ADHD milli Norð-
urlandanna. Ennfremur benda niðurstöður til þess að börnum með
ADHD sem hefja lyfjameðferð seint sé hættara við að hraka í námi en
þeim sem hefja meðferð fyrr.
Helga Zoëga er fædd 1976. Hún hefur starfað við faraldsfræðirannsóknir á
Mount Sinai-sjúkrahúsinu í New York. Helga er dóttir Fríðu Bjarnadóttur
skurðhjúkrunarfræðings og Tómasar Zoëga geðlæknis. Hún er gift Jóhanni
Pétri Harðarsyni lögfræðingi, og eiga þau tvö börn.
Doktor í lýðheilsuvísindum
Arndís S. Árnadóttir listfræðingur hefur varið dokt-
orsritgerð sína, Nútímaheimilið í mótun – fagurbætur,
funksjónalismi og norræn áhrif á íslenska hönnun 1900-
1970, við sagnfræði- og heimspekideild Háskóla Íslands. Í
ritgerðinni er fjallað um þær breytingar sem urðu á hí-
býlaháttum Íslendinga þegar hin fjölþjóðlega nútíma-
hreyfing í byggingarlist breiddist út á tímabilinu 1900-
1970 og tengsl þeirra við norrænan listiðnað og hönnun. Í rannsókninni
er m.a. komist að þeirri niðurstöðu að Íslendingum tókst ekki að tengj-
ast hönnunarhreyfingunni „Scandinavian design“ sem skyldi og skip-
uðu sér sess á jaðri norrænnar hönnunar á áratugunum eftir stríð.
Arndís S. Árnadóttir lauk BA-prófi í bókasafns- og upplýsingafræði frá HÍ,
MA-prófi í hönnunarsögu tuttugustu aldar frá DeMontfort-háskólanum í Leic-
ester á Englandi 1996. Hún hóf doktorsnám við Háskóla Íslands haustið 2004.
Doktor í sagnfræði
Eyvindur Ari Pálsson lauk doktorsprófi í stærðfræði í maí
sl. frá Cornell-háskóla í Íþöku, NY, Bandaríkjunum.
Doktorsritgerðin er á sviði stærðfræðigreiningar. Í
henni eru settar fram og sannaðar ójöfnur fyrir marg-
línulegan tegurvirkja sem á rætur sínar að rekja til al-
gebru Calderóns. Nýlega hefur komið í ljós að þessi teg-
urvirki og alhæfingar á honum eru mikilvægar skilningi
okkar á líkönum sem segja fyrir um hegðun vatns.
Eyvindur Ari er fæddur 1983 og ólst upp í Hafnarfirði. Hann lauk stúdents-
prófi frá MR 2003 og B.Sc.-prófi í stærðfræði frá HÍ 2006. Foreldrar hans eru
Auður Brynja Sigurðardóttir og Páll Kristinsson. Hann starfar nú við kennslu
og rannsóknir við háskólann í Rochester, NY.
Doktor í stærðfræði
Magnús Þór Torfason hefur varið doktorsritgerð sína í
stjórnun skipulagsheilda við viðskiptaháskóla Columbia
University í New York. Ritgerðin heitir „Hlutverk hóp-
ímyndar og hópsamsömunar við rannsóknir á fé-
lagslegum tengslanetum: Greinar um hegðunarreglur,
frávik og viðurlög. Þar er m.a. rannsakað hvaða áhrif
tengslanet leikmanna í EVE Online hafa á hegðun þeirra
í leiknum. Niðurstaðan er sú að því betri tengsl sem einstaklingar hafa
við fólk í öðrum samfélagshópum þeim mun líklegri eru þeir til að hegða
sér í samræmi við ríkjandi samfélagsleg viðmið. Tengsl innan einstakra
hópa hafa aftur á móti þveröfug áhrif.
Magnús Þór er fæddur 1976 og er sonur Torfa Magnússonar læknis og
Laufeyjar Bjarnadóttur kennara. Eiginkona Magnúsar er Guðrún Mjöll Sigurð-
ardóttir hagfræðingur og saman eiga þau tvo syni.
Doktor í stjórnun skipulagsheilda
Egils Gull frá Ölgerðinni var á dög-
unum valinn besti standard lager-
bjórinn í heiminum í samkeppninni
World Beer Awards. Alls var keppt í
meira en þrjátíu flokkum og valið
stóð á milli ríflega fimm hundruð teg-
unda. Fjöldi dómara frá öllum heims-
hornum blindsmakkaði hverja teg-
und og gaf einkunn.
Andri Þór Guðmundsson, forstjóri
Ölgerðarinnar, segir í tilkynningu að
þessi verðlaun séu staðfesting á því
góða þróunarstarfi sem fer fram hjá
Ölgerðinni. Egils Gull hlaut silfur-
verðlaun í keppninniWorld Beer Cup
árið 2008. Að sögn Guðmundar Mars
Magnússonar, bruggmeistara Öl-
gerðarinnar, er þessi keppni öðruvísi.
Haldnir eru nokkurs konar milliriðl-
ar í þremur heimsálfum, Evrópu,
Bandaríkjunum og í Asíu og valinn er
einn bjór í hverjum flokki frá hverj-
um stað, og einn af þeim hreppir svo
titilinn. Því megi segja að Egils Gull
hafi orðið Evrópumeistari áður en
hann varð heimsmeistari.
Stutt er síðan fjölgaði í hópi brugg-
meistara Ölgerðarinnar en Valgeir
Valgeirsson, fyrrverandi brugg-
meistari í Ölvisholti, gekk nýlega til
liðs við þá Guðmund Mar Magnússon
og Sturlaug Jón Björnsson. Fram-
undan er þróun á fleiri bjórteg-
undum sem settar verða á markað,
ýmist undir merkjum Ölgerðarinnar
eða Borgar brugghúss, sem vakið
hefur mikla athygli fyrir nýstárlega
bjórstíla.
Ljósmynd/Arnar Halldórsson
Gullið Guðmundur Mar Magnússon, bruggmeistari Ölgerðarinnar, kampa-
kátur með verðlaunabjórinn. Fimm hundruð bjórar kepptu til úrslita.
Gullið hreppti gullið
Stúlka, nemandi í Ölduselsskóla í
Breiðholti, lét ekki glepjast þegar
maður reyndi að tæla hana upp í bíl
til sín rétt fyrir klukkan 20.00 á
fimmtudagskvöldið.
Stúlkan var á
heimleið af diskó-
teki 10-12 ára
nemenda sem
haldið var í skól-
anum frá klukkan
18.00-20.00. Þá
stöðvaði hana
maður á bíl rétt
við skólann, bauð
henni sælgæti og
bauðst til að skutla henni heim.
Stúlkan brást rétt við, hljóp frá
manninum og aftur í skólann og lét
kennara vita. Lögreglan var strax
kölluð til.
Aðalheiður Diego, aðstoðarskóla-
stjóri Ölduselsskóla, lét foreldra og
forráðamenn nemenda í skólanum
vita af þessu atviki með bréfi í gær.
Einnig hvatti hún foreldra til að
ítreka við börn sín að fara aldrei upp
í bíl hjá ókunnugum eða neyta ein-
hvers sem ókunnugir byðu þeim.
Aðalheiður sagði í samtali við
Morgunblaðið að hún vissi ekki til
þess að reynt hafi verið að tæla barn
upp í bíl við skólann fyrr en nú. Hún
sagði að foreldrar hafi brugðist vel
við bréfinu og lýst þakklæti vegna
viðbragða skólans.
Stúlkan gat gefið óljósa lýsingu á
bílnum og var ekki búið að hafa uppi
á ökumanninum síðdegis í gær, sam-
kvæmt upplýsingum frá svæðisstöð
Lögreglu höfuðborgarsvæðisins fyr-
ir Breiðholt. gudni@mbl.is
Reyndi að
tæla unga
skólastúlku
VITA er í eigu Icelandair Group.
VITA er lífið
VITA | Suðurlandsbraut 2 | Sími 570 4444 | VITA.is
Kanarí í vetur
Síðustu sætin!
GROUP
Skráðu þig í netklúbbinn - VITA.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
V
IT
57
14
6
11
/1
1
Verð frá 124.900 kr.*
og 15.000 Vildarpunktar
Las Camelias - 21 nótt
29. nóv. - 20. des.
Verðdæmið er m.v. 2 í íbúð m/1 svefnh.
* Verð án Vildarpunkta: 134.900 kr.
Innifalið: Flug, flugvallarskattar, gisting og íslensk fararstjórn.
Verð 72.900 kr.*
og 15.000 Vildarpunktar
Flugsæti
Flug fram og til baka
*Verð án Vildarpunkta 82.900 kr.
Innifalið: flug og flugvallarskattar
29. nóvember
Beint flug með Icelandair
Aðeins hjá VITA
Úrval gististaða í boði.