Morgunblaðið - 12.11.2011, Qupperneq 26
26 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2011
Rau›arárstígur 14, sími 551 0400 · www.myndlist.is Opið virka daga 10–18, laugardaga kl. 11–16 og sunnudaga kl. 14–16
Soffía Sæmundsdóttir
Listmunauppboð
Erum að taka á móti verkum á næstu uppboð
Áhugasamir geta haft samband í síma 551-0400
Opnun kl. 15
laugardag 12. nóvember
Allir velkomnir
Vefuppboð 16 – myndlist
12. - 28. nóvember
Listaverk eftir marga af helstu listamönnum
þjóðarinnar eru á uppboðinu.
ÞorvaldurSkúlason
Veruleikans hugarsvið
Vefuppboð 14 – erlendir listamenn
Lýkur 14. nóvember
Vefuppboð 15 – bækur
12.11. - 3.12. 2011
Rúmlega 200 bækur verða boðnar upp, m.a. frumútgáfa af
God rest you merry Gentlemen eftir Hemingway.
John
Lennon
Hörður Ægisson
hordur@mbl.is
Landsbankinn er með allt of hátt
eiginfjárhlutfall og gæti auðveldlega
greitt ríkinu 50 milljarða króna arð.
Staða bankans yrði eftir sem áður
mjög sterk. Þetta kom fram í erindi
Vilhjálms Egilssonar, fram-
kvæmdastjóra Samtaka atvinnulífs-
ins (SA), á morgunverðarfundi sam-
takanna í Hörpu í gær.
Hann sagði hátt eiginfjárhlutfall
bankanna auka umtalsvert þörf
þeirra fyrir vaxtamun og þjónustu-
tekjur. „Hættan er sú,“ að sögn Vil-
hjálms, „að bankarnir þurfi að við-
halda 5% vaxtamun til lengri tíma.“
Vilhjálmur sagði að verulegur
skortur væri á því af hálfu stjórn-
valda að einhver framtíðarsýn um
fjármálamarkaði væri mörkuð.
Fram kom í máli Vilhjálms að það
væri rík þörf á eigendum sem hugs-
uðu um hag bankanna. Hann telur
að ríkisstjórnin ætti af þeim sökum
að fara að huga að því að selja hlut
sinn í Landsbankanum. Í þeim efn-
um væri mjög æskilegt ef fleiri en
einn íslenskur banki væri í eigu er-
lendra aðila.
Vilhjálmur sagði jafnframt með
öllu óraunhæft að ljúka aðild-
arviðræðum við Evrópusambandið
fyrir kosningar 2013. Hann telur
hægt að ljúka aðildarferlinu í fyrsta
lagi á árunum 2015-2016. Því sé ljóst
að Ísland muni búa við krónu sem
gjaldmiðil út áratuginn – og kannski
til allrar framtíðar. „Þess vegna þýð-
ir ekkert annað en að reyna að gera
betur við hagstjórnina.“
Spurn eftir lánsfé takmörkuð
Helsti kosturinn við upptöku evru,
að mati Vilhjálms, er sá efnahagslegi
stöðugleiki og aðild að Evrópska
seðlabankanum sem fylgdi inngöngu
í myntbandalagið. Ef Ísland myndi
hins vegar hafna aðild að ESB og
ekki taka upp evru, þá bæri að skoða
þann kost að taka einhliða upp ann-
an gjaldmiðil. „Þá er nærtækast fyr-
ir okkur að skoða dönsku krónuna
eða pundið,“ sagði Vilhjálmur. Björk
Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri
fyrirtækjasviðs Arion banka, sagði
að eigið fé íslenskra banka væri mun
hærra en í nágrannalöndum. Geta ís-
lenskra banka til útlána væri mikil,
en að sama skapi væri spurn eftir
lánsfé takmörkuð. Lán til fyrirtækja
væru aðallega til að útvega rekstr-
arfé til að mæta sveiflum í rekstr-
inum.
Heiðrún Jónsdóttir, fram-
kvæmdastjóri lögfræðideildar Eim-
skips, lagði áherslu á að hér risi fjöl-
breyttur, öflugur og skilvís
hlutabréfamarkaður. Að öðrum kosti
yrði erfiðara en ella að auka fjárfest-
ingastigið í hagkerfinu. Það væri
hins vegar áhyggjuefni, að sögn
Heiðrúnar, hversu hæg uppbygg-
ingin hefði verið í þeim efnum. Hún
vísaði til þess að kannanir sýndu lít-
inn áhuga almennings á hlutafjár-
kaupum. Taldi Heiðrún að skoða
bæri að gefa skattaafslátt af hluta-
bréfakaupum í því augnamiði að
örva áhuga almennings á slíkri fjár-
festingu.
Heiðrún tók undir með öðrum
ræðumönnum að það væru mörg
fjárfestingatækifæri fyrir hendi á Ís-
landi, auk þess sem mörg fyrirtæki
væru vel í stakk búin til að fjárfesta.
Hún sagði óstöðugt skattaumhverfi
aftur á móti hafa mjög skaðleg áhrif
á fjárfestingar. Fyrirtæki og fjár-
festar treystu sér ekki til að fara í
fjárfestingar af fullum þunga.
Landsbankinn gæti greitt
ríkinu 50 milljarða króna arð
Bankarnir með allt of hátt eiginfjárhlutfall Óstöðugt skattaumhverfi
Efnahagshorfur Vel var mætt á morgunverðarfund SA þar sem kynnt var
nýtt rit SA ásamt því að ýmsir stjórnendur ræddu horfur í efnahagslífinu.
„Þetta þarf ekki
að vera svona“
» SA kynntu helstu atriði nýs
rits samtakanna, Rjúfum kyrr-
stöðuna: Leiðir til betri lífs-
kjara.
» Ríkið ætti að selja hlut sinn í
Landsbankanum.
» Útlánageta íslenskra banka
er mikil, en spurn eftir lánsfé
er takmörkuð.
Síversnandi aðstæður á fjármála-
mörkuðum gera það að verkum að
erfitt verður að fjármagna skuldsetn-
ingu björgunarsjóðs Evrópusam-
bandsins, sem settur var á laggirnar
vegna skuldakreppunar á evrusvæð-
inu. Þetta segir Klaus Regling, sem
stýrir sjóðnum.
Stækkun björgunarsjóðsins úr því
að hafa 440 milljarða evra fjárfest-
ingagetu yfir í eitt þúsund milljarða
er hryggjarstykkið í þeim tillögum
sem leiðtogar ESB tilkynntu á dög-
unum sem lausn á skuldakreppunni.
Skuldsetningin átti meðal annars að
gera sjóðnum kleift að halda uppi eft-
irspurn eftir ríkisskuldabréfum
stærri evruríkja á borð við Ítalíu og
Spán sem og að búa yfir fjármagni til
þess að veita fjáfestingum tryggingar
gegn hugsanlegu greiðslufalli þessara
ríkja.
Breska blaðið Financial Times hef-
ur eftir Regling að pólitískur óstöð-
ugleiki í Grikklandi og á Ítalíu dragi
úr líkum á að hægt verði að fjár-
magna stækkun sjóðsins á næstunni.
Sjóðurinn hefur nú þegar fengið
heimildir til þess að ráðast í stórfelld
kaup á ítölskum ríkisskuldabréfum til
þess að ná niður fjármögnunarkostn-
aði stjórnvalda í Róm en í honum eru
enn 250 milljarðar evra sem ekki er
búið að ráðstafa í neyðarlán til Grikk-
lands, Írlands og Portúgals. Það er
hins vegar ólíklegt að svo komu máli
en að sögn Reglings hefur verið lögð
áhersla á að ljúka skuldsetningu
sjóðsins áður honum verði beitt af
þunga til að róa markaði.
ornarnar@mbl.is
Erfitt að fjármagna björgunarsjóð
Bið verður á því að hægt verði að
beita sjóðnum vegna skuldakreppunnar
Reuters
Staða Markaðsaðstæður hindra
skuldsetningu björgunarsjóðsins.
● Í fyrradag höfðu tæp 20 þúsund fé-
lög skilað ársreikningi fyrir árið 2010,
eða um 60,5% fyrirtækja, en skilaskyld
fyrirtæki eru um 32 þúsund. Sam-
kvæmt tölum Creditinfo höfðu 16.800
félög skilað ársreikningi á sama tíma í
fyrra, eða um 51,6% fyrirtækja.
Þetta kemur fram í Fréttabréfi Við-
skiptaráðs frá í gær.
Tæp 20 þúsund félög
hafa skilað ársreikningi
● Ráðamenn Jap-
ans reyna nú eftir
fremsta megni að
koma í veg fyrir að
vandræði mynda-
vélaframleiðandans
Olympus skaði orð-
spor japanska fjár-
málamarkaðarins.
Stjórnarþingmenn
Frjálslynda
lýðræðisflokksins
segja að yfirvöld muni gera allt sem í
þeirra valdi stendur til að tryggja
gagnsæi og traust á fjármálamarkaði.
Japanska fjármálaeftirlitið staðfesti í
gær að það myndi hefja rannsókn á við-
skiptaháttum Olympus. Sjaldgæft er að
slík ákvörðun sé viðurkennd opinber-
lega.
Olympus rannsakað
Vandræði Olympus
skekja markaði.
● Stjórn bresku sjónvarpsstöðvarinnar
BSkyB hefur lýst því yfir að hún standi
öll að baki stjórnarformanni sínum,
James Murdoch. Financial Times
greindi frá þessu í gær.
Þar kom fram að stjórnin hefði sent
hluthöfum BSkyB bréf þar sem greint
var frá stuðningi stjórnarinnar við for-
manninn. Er litið þannig á að stjórnin sé
með þessu m.a. að svara stórum hlut-
hafa sjónvarpsstöðvarinnar, Franklin
Templeton, sem krafðist afsagnar Mur-
dochs í október.
Styðja Murdoch
Stuttar fréttir…
!"# $% " &'( )* '$*
++,-..
+/0-1+
++.-/+
2+-2/+
21-30+
+4-32
+2/-+3
+-0123
+/2-3.
+0/-3
++,-,+
+/0-3,
++3-+3
2+-.3.
21-0++
+4-34+
+2/-0
+-01,/
+/2-54
+0/-/3
2+3-35+/
++,-/5
+/0-5+
++3-34
2+-310
21-04+
+4-022
+2/-/,
+-0++2
+/.-0+
+05-2/
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á