Morgunblaðið - 12.11.2011, Side 28

Morgunblaðið - 12.11.2011, Side 28
28 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2011 Pfaff • Grensásvegi 13 • Sími 414 0400 • www.pfaff.is facebook.com/pfaff.is Velkomin á bútasaumsdaga Pfaff ídagmilli kl. 11–16 Hárnákvæm tímasetning hjá foreldrum tvíbura Reuters Fæddist kl. 11.11 11.11.11 Þessir tvíburar fæddust á sjúkrahúsi í indversku borginni Ahmedabad í gær, á ellefta degi ellefta mánaðar 2011. Stúlkan til vinstri fæddist klukk- an 11.11 um morguninn að staðartíma en bróðir hennar um mínútu áður. Margir Indverjar telja það færa börnum hamingju að fæðast þennan dag. Knut Storberget hefur sagt af sér embætti dóms- málaráðherra Noregs eftir að hafa gegnt því í sex ár. Storberget neitaði því að af- sögnin tengdist gagnrýni sem lögregluyfirvöld hafa sætt vegna viðbragða þeirra við fjöldamorðunum 22. júlí. „Ég hef þrjár góðar ástæður til að láta af embætti. Sú fyrsta er 39, önnur er tólf, þriðja átta og sú síðasta eins árs,“ sagði Storberget og skírskotaði til konu sinnar og þriggja dætra. Storberget kvaðst hafa ákveðið af- sögnina í febrúar. Jens Stoltenberg forsætisráðherra sagði að Stor- berget hefði þó fallist á að bíða með afsögnina fram yfir sveitarstjórnar- kosningarnar í haust en ákveðið að gegna embættinu lengur vegna fjöldamorðanna 22. júlí. Storberget flutti norska þinginu skýrslu um málið í fyrradag. Fer með dómsmál í annað sinn Storberget hefur setið á norska þinginu frá árinu 2001 og varð dóms- málaráðherra árið 2005. Við emb- ættinu tekur Grete Faremo sem hef- ur verið ráðherra varnarmála. Faremo hefur áður gegnt embætti dómsmálaráðherra, á árunum 1992- 1996. Hún varð síðan orku- og olíu- málaráðherra en sagði af sér skömmu síðar vegna hneykslismáls sem kom upp innan norsku leyni- þjónustunnar þegar hún var dóms- málaráðherra. Nýi varnarmálaráðherrann heitir Espen Barth Eide og var áður að- stoðarutanríkisráðherra. Storberget lætur af embætti Faremo nýr dóms- málaráðherra Noregs Knut Storberget Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Her Suður-Súdans sakaði í gær stjórnarherinn í Súdan um að hafa orðið átján hermönnum að bana og sært 73 til viðbótar í árás yfir landa- mæri ríkjanna. Her Súdans er einn- ig sakaður um að hafa gert loftárás á flóttamannabúðir Sameinuðu þjóð- anna í Suður-Súdan í fyrradag. Flóttamannafulltrúi Sameinuðu þjóðanna fordæmdi árásina. Suður-Súdan fékk formlega sjálf- stæði frá Súdan 9. júlí eftir 22 ára stríð sem kostaði u.þ.b. tvær millj- ónir manna lífið. Íbúar Suður- Súdans samþykktu nær einróma í þjóðaratkvæðagreiðslu að lýsa yfir stofnun sjálfstæðs ríkis. Ríkin tvö hafa þó ekki enn leyst erfið deilumál um landamæri og skiptingu tekna af olíu sem skipta milljörðum dollara á ári. Sagðir styrkja uppreisnarmenn Salva Kiir, forseti Suður-Súdans, sagði að stjórnvöld í Khartoum væru að reyna að koma af stað stríði til að geta lagt olíulindir í Suður-Súdan undir sig. Stjórnin í Khartoum neit- ar því og sakar leiðtoga Suður- Súdan um að fjármagna skæruhern- að uppreisnarhreyfingar í Súdan. Suður-Súdanar þvertaka fyrir þetta og segja að stjórnin í Khartoum ætli að nota slíkar ásakanir til að rétt- læta hernað í Suður-Súdan. Flóttamannafulltrúi SÞ sagði að tveimur sprengjum hefði verið skot- ið á flóttamannabúðirnar í Suður-- Súdan. Enginn féll þó í árásinni, að sögn fréttaveitunnar AFP. Flótta- fólkið kemur frá landamærahéraði í Súdan og hermt er að súdanskir uppreisnarmenn fari oft í búðirnar til að hvíla sig, að sögn BBC. Sagðir reyna að hefja stríð  Stofnun SÞ fordæmir loftárás á flóttamannabúðir í Suður-Súdan 300 km EÞÍÓPÍA Khartoum Darfur Abyei Juba SÚDAN MIÐ- AFRÍKU- LÝÐVELDIÐ SUÐUR- SÚDAN SPRENGJUÁRÁS Í SUÐUR-SÚDAN Flóttamannabúðir í Yida Í fyrradag Fréttaritari Reuters heyrði mikinn sprengjugný, sá síðan um tveggja metra breiðan gíg, ósprungna sprengju við vegg skólabyggingar og hvíta flugvél fljúga norður á bóginn. Sjónarvottar sögðu að seinna hefðu orðið þrjár sprengingar til viðbótar á svæðinu KENÍAÚGANDAAUSTUR-KONGÓ Deilt um olíu » Olíuhéraðið Abyei hefur lengi verið þrætuepli leiðtoga Suður-Súdans og Súdans og deilur þeirra um héraðið gætu leitt til blóðugra átaka að nýju. » Þótt miklar náttúruauðlindir séu í Suður-Súdan eru lífs- kjörin þar með því versta sem gerist í heiminum. » Talið er að rúmar átta millj- ónir manna búi í Suður-Súdan sem er nokkru stærra en Frakkland, um 640 þúsund fer- kílómetrar. Embættismenn í Moskvu sögðu fyrr í vikunni að þeir væru að leggja drög að áætlun um að reisa 220 metra hátt útsýnishjól sem yrði mun hærra en Hjólið mikla í Peking, hæsta útsýnishjól heims. Áætlað er að mann- virkið í Moskvu kosti sem svarar tæpum 35 milljörðum króna. Verkefnið er liður í fjárfestingum sem áform- aðar eru til að fjölga erlendum ferðamönnum í Rúss- landi, að sögn fréttastofunnar RIA Novosti. Heimildir: Arup, Singapore Flyer, Great Wheel Corp., British Airways London Eye, Tour Eiffel, www.rmnt.ru VDNkh Gorkí- Park Vernadskí HUGSANLEG STAÐSETNING Turnspíra (320 m há) Hjól (220 m hátt) Hylki hreyfast eftir teinum innan í hjólinu Bygging Tónlistarsalur, list- sýningarsalir, verslanir og veitingahús verða í um 30.000 ferm byggingu undir hjólinuÚtsýnishjól eru yfirleitt hærri en 135 metrar en Parísarhjól yfirleitt lægri en 100 metrar Þrír staðir koma til greina fyrir mannvirkið: svæði nálægt fjölleikahúsi á Vernadskí-breiðgötu, hjá sovéska sýningarsvæðinu VDNkh og í Gorkí-garði Hæstu útsýnishjól heims eru í Singapúr og Peking Moskva Nafn Staðsetning Fjöldi hylkja Fjöldi farþega í hylki Einn snúningur (í mín.) Tekið í notkun „Hjólið mikla í Peking” Peking 48 40 ~30 mín. 2009 „Moskvu- sýn " Moskva uppl. vantar uppl. vantar uppl. vantar uppl. vantar "Suður- stjarnan" Melbourne, í Ástralíu 21 20 25-30 mín. 2008 „Singapore Flyer" Singapúr 28 28 37 mín. Febr. 2008 „Lundúna- augað" Bretland 32 25 30 mín. 1999 „Nanchang- stjarnan" Nanchang, í Kína 60 8 20-30 mín. 2006 Eiffel-turninn í París, 324 m Fyrsta Parísarhjólið var reist árið í Chicago. Hæð: 80,5 m 208 m 220 m 120 m 168 m 135 m 160 m Yfirvöld í Moskvu undirbúa nú áform um að reisa útsýnishjól sem gæti orðið það stærsta í heiminum. RISASTÓRT ÚTSÝNISHJÓL Hæsta útsýnishjól heims reist í Moskvu? Þótt starfsmenn sendiráða og ræðis- mannskrifstofa Bretlands séu allir af vilja gerðir til að hjálpa ferða- mönnum, sem lenda í vandræðum, eru takmörk fyrir því sem þeir geta gert. Embættismenn breska utan- ríkisráðuneytisins áréttuðu þetta í gær og sögðu að starfsmennirnir fengju um tvær milljónir hjálpar- beiðna á ári. Margar þeirra væru furðulegar og torvelduðu starfs- mönnunum að einbeita sér að brýn- um úrlausnarefnum. Starfsmenn sendiráðanna hafa m.a. verið beðnir um að veita upplýsingar um síma- númer söngvarans Phils Collins. Breti nokkur hringdi í sendiráðs- mann á Spáni til að fá upplýsingar um skóstærð Karls Bretaprins vegna þess að hann vildi gefa prins- inum skó. Annar Breti hringdi í ræðismannsskrifstofu í Sydney til að spyrja hvaða föt hann ætti að taka með sér í ferð til Ástralíu. Kvartað yfir furðulegum hjálparbeiðnum ferðafólks

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.