Morgunblaðið - 12.11.2011, Qupperneq 36
Umræðan
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2011
Ég er einn af þeim sem voru til-
tölulega sáttir við úrslit síðustu al-
þingiskosninga, hélt þá að félags-
hyggjustjórn
myndi standa
með almenningi.
Hvílík vonbrigði
og hryllingur.
Það eina sem
mér finnst þessi
ríkisstjórn virki-
lega góð í er að
fara utanbókar
með lærðar inn-
antómar lofrollur
um eigin afrek
og að stunda endalausan kjafta-
gang út í loftið. En þegar kemur
að því að taka á málefnum lands-
manna af einhverri festu eins og
t.d. málefnum heimilanna, þá er
eins og þetta fólk skilji ekki alvöru
málsins.
Þá finnst mér RÚV vera að
missa allan trúverðugleika. Það er
eins og þar eigi sér stað einhvers-
konar hjarðhegðun. Ef RÚV væri
alvörufréttamiðill myndu frétta-
menn kynna sér lánamál og stöðu
heimilanna. Hér áður fyrr voru til
svokallaðir flokksmiðlar, t.d.
Þjóðviljinn fyrir Alþýðubandalagð
o.s.frv., en núna er eins og það sé
aðallega einn flokksmiðill, það er
RÚV, og allir landsmenn borga
þangað hvar sem þeir eru í flokki.
Fréttamaður RÚV var í Kast-
ljósinu um daginn með aðila frá
Hagsmunasamtökum heimilanna.
Þar dirfðist þessi fréttamaður að
halda því fram að fólk hefði farið
fram úr sér í fjárfestingum og ætti
ekkert gott skilið. Þessu er nefni-
lega öfugt farið, þeir sem yfirfjár-
festu sleppa best, en þeir sem áttu
eigin sparnað, t.d. allt að 50% í
eigin húsnæði, töpuðu öllu og þetta
eru flest ungar fjölskyldur sem
núna eru að flýja landið. Stað-
reyndin er sú að ríkisstjórnar-
flokkarnir hafa haldið eins illa á
málefnum heimilanna og hægt er,
og ætti það að vera rannsóknarefni
út af fyrir sig hvernig þeim tókst
að klúðra svo gersamlega framtíð
fjölda Íslendinga. Svo vil ég að
Steingrímur hætti að tönglast sí-
fellt á því hvað erlendir fjárfestar
töpuðu miklu á Íslendingum. Fjár-
festar tapa og hagnast um allan
heim alla daga hér eftir sem hing-
að til og hefur ekkert með venju-
legan Íslending að gera.
Ég vil minna á eitt, Steingrímur
og Jóhanna höfðu forræði yfir öll-
um bönkunum í tæpt ár eftir að
þau tóku við völdum og höfðu ótal
tækifæri og leiðir til þess að taka
heildstætt á málefnum heimilanna
sem þau höfðu lofað að vernda
með skjaldborg. Þarna hefði átt að
fara fram réttlátt skuldauppgjör
þar sem fólkið í landinu hafði for-
gang, þetta var spurning um að
horfast í augu við raunveruleikann,
en þessar aðferðir sem rík-
isstjórnin notaði voru algjörlega
galnar og ættu einar og sér að
vera næg ástæða til að þessi mesta
skaðræðisríkisstjórn allra tíma
gagnvart sinni eigin þjóð segi af
sér strax. Þetta verður ekki þagg-
að niður frekar en Breiðavíkur-
eða biskupsmálið.
Eitt að lokum, það tapa allir á
því að ekki var tekið strax á mál-
efnum heimilanna, lífeyrissjóðirnir,
bankarnir og ekki síst þjóðin sjálf
undir forystu norrænu velferð-
arstjórnarinnar og ASÍ.
HALLDÓR ÚLFARSSON,
Frostafold 14.
doriulfars@gmail.com
Skilur ríkisstjórnin
ekki alvöru málsins?
Frá Halldóri Úlfarssyni
Halldór
Úlfarsson
Bréf til blaðsins
Aðgerðir og árang-
ur ríkisstjórnar Sam-
fylkingarinnar og
Vinstri hreyfing-
arinnar – græns
framboðs 2009 – 2011.
Í október 2008 var
fjármálakerfið á Ís-
landi í aðalatriðum
hrunið og efnahags-
lífið á gjörgæsludeild.
a) Vextir og verð-
bólga voru 18%.
b) Atvinnuleysi fór úr rúmlega 1%
í 9% eftir hrun.
c) Gjaldmiðill landsins, krónan, var
í frjálsu falli.
d) Þegar froðuhagkerfið fór niður
svelginn fylgdi risalækkun á
tekjum ríkissjóðs en útgjöld
jukust.
e) Ójafnræði í samfélaginu hafði
stóraukist.
f) Ríkið þurfti að leita fjármögn-
unar til Norðurlandaþjóða og
AGS. Staða efnahagsmála á Ís-
landi var verri en hún þurfti
vera eftir að hin alþjóðlega fjár-
málakreppa gerði vart við sig
árið 2008. Skýrist það af nokkr-
um samverkandi þáttum eins og
of mikilli þenslu í hagkerfinu
vegna ofvaxtar bankakerfisins
samhliða risaframkvæmdum á
borð við Kárahnjúkavirkjun
sem og fasteignabólu.
Athugasemd mín: Þetta er ekk-
ert sem hefur ekki skeð áður. Það
er ekkert mál að leysa þennan
vanda ef stjórnin hefði áhuga á að
leysa hann.
Ofangreint er fyrirsögn afreka-
skrár ríkisstjórnar á strandstað
þjóðarskútunnar. Þjóðarskútunni
hafði verið siglt í strand, en hún
hafði losað sig inn fyrir skerja-
garðinn og maraði þar við botn að
sögn stjórnarinnar, en um ástand
skútunnar segir í liðum a-f. Af-
rekaskráin er ritgerð frá öllum
ráðuneytum með það skrítna sér-
kenni að nefna sig að velferðarrík-
isstjórn að norræni fyrirmynd, en
ritgerð Velferðarráðuneytis er á
öftustu blaðsíðu.
Fyrir okkur eldri borgara er
nauðsynlegt að rýna
grannt í þá þrjá liði
sem okkur varða.
1. Málefni aldraðra
(Eina ályktun lands-
fundar Samfylking-
arinnar 31.10. 2011
um málefni aldraðra
er samhljóða.)
Framkvæmdir við
byggingu hjúkr-
unarheimila í sam-
ræmi við áætlun
stjórnvalda eru þegar
hafnar í fjórum sveit-
arfélögum; á Akureyri
(45 rými) í Borgarbyggð (32 rými),
Garðabæ (60 rými) og Mosfellsbæ
(30 rými). Alls eru þetta 167
hjúkrunarrými. Í öðrum sveit-
arfélögum; Hafnarfirði, Seltjarn-
arnesi, Fljótsdalshéraði og Kópa-
vogi, er unnið að undirbúningi
framkvæmda. Með varðstöðu um
heilsugæsluna og sérstökum fram-
lögum á fjárlögum til heimahjúkr-
unar hefur öflugu starfi heima-
hjúkrunar verið viðhaldið.
Samvinna heimaþjónustu og
heimahjúkrunar um landið fer sí-
vaxandi enda hefur samþætt þjón-
usta þessara aðila sannað gildi
sitt.
Athugasemd mín:
Hafa skal í huga að hjúkr-
unarrýmum hefur fækkað í ár um
140. Samþætting heimaþjónustu
og heimahjúkrunar í Reykjavík
hefur ekkert breyst þrátt fyrir
þykjustu-samning þar um 2009. Þá
skal líka hafa í huga væntanlega
seinkun á uppbyggingu í Garðabæ,
en það er engin ástæða til að ætla
að ríkið svindli með bókhaldið.
2. Endurskoðun almannatrygg-
inga
Starfshópi hefur verið falið að
endurskoða almannatrygg-
ingakerfið og er ætlað að skila
drögum að frumvarpi að nýjum
lögum um lífeyristryggingar fyrir
lok þessa árs. Viðamiklar upplýs-
ingar og greiningar á almanna-
tryggingakerfinu liggja fyrir og
byggist vinna hópsins á þeim.
Rammi um helstu efnisþætti nýs
frumvarps til laga um lífeyr-
istryggingar hefur þegar verið
mótaður.
Athugasemd mín: Breytir engu
varðandi eldri borgara sem hafa
lífeyristryggingu frá eigin lífeyr-
issjóði.
3. Hlutverk sveitarfélaga í vel-
ferðarþjónustu
Stefnt er að flutningi málefna
aldraðra til sveitarfélaga árið 2013
og er undirbúningur hafinn.
Athugasemd mín: Skyldur sveit-
arfélaga samkvæmt núverandi lög-
um eru meiri en efni standa til að
efna almennt hjá sveitarfélögum,
hvað á eiginlega að flytja?
Ályktun um málefni ellilífeyr-
isþega og öryrkja á landsfundi
Vinstri grænna 31.10. 2011.
Í kjölfar efnahagshrunsins hafa
öryrkjar og ellilífeyrisþegar orðið
fyrir margvíslegum skerðingum
bæði fjárhagslega og hvað rétt-
indi varðar. Frá því í janúar 2009
hafa umtalsverðar tekjuskerð-
ingar átt sér stað í almanna-
tryggingakerfinu og núverandi
ríkisstjórn hefur bætt um betur,
einkum með ráðstöfunum sem
tóku gildi 1. júlí 2009. Lands-
fundur VG haldinn 28.-30. októ-
ber 2011 krefst þess að málefni
öryrkja og ellilífeyrisþega verði
tekin til gagngerrar skoðunar og
kjör þeirra leiðrétt hið fyrsta.
Landsfundurinn minnir á eftirfar-
andi orð í stefnuyfirlýsingu VG:
„Skylt er að tryggja vaxandi hópi
aldraðra mannsæmandi kjör og
aðstæður til að taka virkan þátt í
samfélaginu. Gera verður átak til
að stórbæta kjör og allar að-
stæður öryrkja.“
Athugasemd mín: Það var ald-
eilis uppvakning þar nyrðra.
Vonin er vöknuð.
Hafa stjórnmálamenn áhuga
á málefnum aldraðra?
Eftir Erling Garðar
Jónasson » Þetta er ekkert
sem hefur ekki
skeð áður. Það er
ekkert mál að leysa
þennan vanda ef
stjórnin hefði áhuga á
að leysa hann.
Erling Garðar
Jónasson
Höfundur er tæknifræðingur.
EINAR LAXNESS OG HALLDÓR
GUÐMUNDSSON TÓKU SAMAN
www.forlagid.is – alvöru bókaverslun á netinu
HJARTANS
MÁL
SKÁLDSINS