Morgunblaðið - 12.11.2011, Page 52
52 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2011
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Hollenski kvikmyndaleikstjórinn
Tom Six er staddur hér á landi vegna
frumsýningar á nýjustu kvikmynd
sinni, The Human Centipede II (Full
Sequence). Sú kvikmynd, auk þeirrar
fyrri, The Human Centipede (First
Sequence), þykir með þeim allra við-
bjóðslegustu sem gerðar hafa verið
og hefur almennt hlotið harða gagn-
rýni kvikmyndarýna.
Í fyrri myndinni segir af skurð-
lækni sem heldur þremur mann-
eskjum föngnum í kjallara heimilis
síns og fremur á þeim skelfilegar
skurðaðgerðir sem enda með því að
þær mynda mennska margfætlu,
munnur eins saumaður við endaþarm
annars. Í framhaldi þeirrar myndar,
sem sýningar eru hafnar á hér á
landi, gengur Six enn lengra í hryll-
ingnum. Að þessu sinni er brjál-
æðingurinn ekki skurðlæknir heldur
aðdáandi kvikmyndarinnar The
Human Centipede og ákveður að apa
eftir myndinni. Hann býr til
mennska margfætlu úr nokkrum
fórnarlömbum án nokkurrar þekk-
ingar á skurðlækningum. Myndin er
viðbjóðslegri en sú fyrri, ef marka
má umfjallanir og er þá mikið sagt.
Allt er sýnt í henni, ímyndunarafl
áhorfenda ekki virkjað með sama
hætti og í fyrstu myndinni sem er á
köflum spaugileg í sínum fáránleika.
The Human Centipede II fór svo
fyrir brjóstið á breska kvikmyndaeft-
irlitinu að það bannaði sýningar á
henni í Bretlandi. Eftir nokkrar deil-
ur við framleiðendur myndarinnar,
þ. á m. Six, dró eftirlitið í land og
leyfði myndina fólki 18 ára og eldra
með því skilyrði að ákveðin atriði
væru klippt úr myndinni, samanlagt
2 mínútur og 37 sekúndur. Meðal
þess sem eftirlitið lét fjarlægja eru
atriði þar sem tennur eru dregnar úr
fórnarlambi með hamri og nýfætt
barn er myrt.
Ókeypis auglýsing
Blaðamaður hitti Six á Nordica
hótelinu í gær og var hann hinn við-
kunnanlegasti, ekki skrímsli í
mannsmynd eins og þau sem hann
hefur fært upp á hvíta tjaldið.
„Fólk virtist kunna vel að meta
myndina,“ segir Six um gesti á frum-
sýningu myndarinnar hér á landi í
fyrrakvöld. Íslenskir bíógestir virðist
vera harðari af sér en þeir banda-
rísku. Í Bandaríkjunum hafi fólk fall-
ið í yfirlið og kastað upp á sýningum.
Það borgar sig s.s. að sjá hana á fast-
andi maga. Six segir meðferð breska
kvikmyndaeftirlitsins á myndinni
sambærilega því að klippa bestu
brandarana út úr gamanmynd.
Spurður að því hvort þessi mikla
deila við eftirlitið og umfjöllun um
hana í fjölmiðlum hafi ekki verið hin
fínasta auglýsing fyrir myndina segir
Six vissulega svo vera. „Ég hoppaði
af kæti, þú getur ímyndað þér áhrifin
sem þetta hafði á markaðssetningu
myndarinnar. Þeir settu skýrslu á
vefinn sinn sem er einhver besta
gagnrýni sem ég hef fengið. En ég
varð líka afskaplega pirraður, hvern-
ig getur þetta fólk metið hvað fólk má
sjá og hvað ekki? Myndin er fyrir
unnendur hryllingsmynda og eft-
irlitið segir að þeir megi ekki sjá
hana. Það er bilun.“
– Hverju svarar þú fólki sem segir
að svona myndir eigi ekki að gera?
„Ég er algjörlega ósammála því.
Kvikmyndir eru listgrein og í listum
er allt leyfilegt. Það eru svo margar
greinar kvikmynda til, af hverju má
ekki gera hryllingsmyndir? Það er til
fólk sem hefur gaman af slíkum
myndum og þær valda engum skaða.“
– Hvernig fékkstu þessa hugmynd
um mennska margfætlu?
„Ég var að horfa á sjónvarpið með
vinum mínum, það var verið að fjalla
um barnaníðing og ég sagði að það
ætti að refsa honum með því að
sauma munninn á honum við rassinn
á feitum flutningabílstjóra,“ segir
Six kíminn. Hann hafi velt þessari
hugdettu frekar fyrir sér og þótt
hún svo hryllileg að hún yrði gott
efni í hryllingsmynd. Og úr varð
fyrsta hryllingsmynd Six, The Hum-
an Centipede. Framhaldsmyndina
tók hann öðrum tökum, hafði hana í
svarthvítu með hreyfanlegri mynda-
töku og aðalpersónan segir ekki eitt
einasta orð myndina út í gegn, ólíkt
Heiter skurðlækni í fyrstu mynd-
inni. Six segir aðdáendur fyrstu
myndarinnar hafa gert þá kröfu til
þeirrar næstu að meira yrði sýnt,
meiri saur, blóð og ofbeldi eins og
hann orðar það. Viðbrögðin við nýju
myndinni séu þ.a.l. enn harðari en
við þeirri fyrstu og segist Six
ánægður með það. Hann segir það
mikinn heiður að myndirnar tvær
séu taldar með þeim hryllilegri sem
gerðar hafa verið. „Ég hef gaman af
því að gera kvikmyndir sem ganga
fram af fólki, eru umdeildar,“ segir
Six. Flestar hryllingsmyndir séu
endurtekning á gömlum hug-
myndum, hann hafi viljað koma með
eitthvað nýtt inn í greinina.
– Það hlýtur að hafa verið erfitt að
finna leikara í þessar myndir?
Six brosir. „Það var djöfullegt að
finna leikkonur í fyrri myndina,“
segir hann. Meirihluti þeirra sem
komið hafi í leikprufur hafi hætt við
þegar hann hafi sýnt þeim teikningu
Gaman að ganga fram af fólki
Hryllingsmyndirnr The Human Centipede I og II þykja með þeim viðbjóðslegri sem gerðar hafa
verið Höfundur þeirra, Tom Six, lætur ekki harða dóma og deilur við eftirlitsmenn trufla sig
Morgunblaðið/Ómar
Umdeildur Kvikmyndagerðarmaðurinn Tom Six er hinn viðkunnanlegasti
en afar umdeildur fyrir hryllingsmyndir sínar um mennskar margfætlur.
Sturlaður Laurence R. Harvey í
The Human Centipede II .
100/100
PHILADELPHIA
INQUIRER
91/100
ENTERTAINMENT
WEEKLY
88/100
ROLLING STONE
SVIKRÁÐ
MAGNA
ÐUR
ÞRILLER
NÚMERUÐ S MIÐASALA Á S
á allar sýningar merktar með grænuSPARBÍÓ 3D 1.000 kr. SPARBÍÓ
FRÁBÆ
R TÓN
LIST-
MÖGN
UÐ
DANSA
TRIÐI
-ENTERTAINMENT
WEEKLY
HHHH
SÝND Í EGILSHÖLL, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLLI, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG KEFLAVÍK
ÍSLENSK TALKVIKMYNDIR.IS
HHHH
SÝND Í ÁLFABAKKA OG EGILSHÖLL
- BÖRKUR
GUNNARSSON,
MORGUNBLAÐIÐ
HHHH
„FJÖRUG EINS OG
TRILLJÓN TRYLLTIR
TÚNFISKAR Í
TRÉKYLLISVÍK“
-Þ.Þ. FT
HHHH
- EMPIRE
HHHH
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI, AKUREYRI,
KEFLAVÍK OG SELFOSSI
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KEFLAVÍK