Morgunblaðið - 19.12.2011, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 19.12.2011, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. DESEMBER 2011 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Marta María Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála martamaria@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Sprengur.is Er þér alltaf mál? BAKSVIÐ Sigrún Rósa Björnsdóttir sigrunrosa@mbl.is Óhætt er að segja að mikill titringur hafi verið á Alþingi þegar Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæð- isflokksins, lagði fram þingsálykt- unartillögu um niðurfellingu ákæru á hendur Geir H. Haarde, fyrrver- andi forsætisráðherra, fyrir lands- dómi. Fæstir þeirra þingmanna sem Morgunblaðið ræddi við vildu tjá sig opinberlega um málið en margir voru á því að það sem helst skipti þar máli væri annars vegar tíma- setning tillögunnar og svo spurning um hvort málið væri þingtækt. Hafnar því að pólitík ráði Samfylkingin var á sínum tíma harðlega gagnrýnd fyrir að hafa greitt atkvæði eftir pólitískum lín- um í landsdómsmálinu og sögð hafa látið Geir H. Haarde eftir að bera ábyrgðina. Af þeim níu þingmönn- um Samfylkingar, sem greiddu at- kvæði með málshöfðun gegn Geir, greiddu fjórir þeirra atkvæði gegn málshöfðun á hendur Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, fv. utanrík- isráðherra. Tvö þeirra, Helgi Hjörvar og Sig- ríður Ingibjörg Ingadóttir, sögðust ekki vilja tjá sig um tillögu Bjarna að svo stöddu. Hin voru Ólína Þor- varðardóttir og Skúli Helgason. „Þetta er ekki pólitískt rétt- arhald. Þetta er réttarhald vegna ákæru um brot á lögum um ráð- herraábyrgð,“ segir Ólína Þorvarð- ardóttir og hafnar því aðspurð í framhaldinu að pólitík hafi ráðið úr- slitum um hvernig fór við atkvæða- greiðslur um ákærurnar. „Jafnvel þó að Alþingi sé ákærandi í þessu máli er málið úr höndum þess eftir að réttarhaldið er hafið.“ Leiða eigi málið til lykta fyrir landsdómi úr því sem komið er. Skúli Helgason segir að í þing- flokknum hafi komið fram sjón- armið um hvort að tillagan væri þingtæk. Það væri farsæl nið- urstaða að málið yrði tekið fyrir í janúar svo hægt væri að skoða það vandlega. Guðfríður var gagnrýnd Mikill óróleiki er sagður vera inn- an stjórnarflokkanna vegna tillögu Bjarna. Þar komi einnig til valda- barátta innan Vinstri grænna. Guð- fríður Lilja Grétarsdóttir, þingmað- ur VG, er sögð styðja tillöguna þó að það er meirihluti fyrir þessari til- lögu,“ segir Ragnheiður E. Árna- dóttir, formaður þingflokks sjálf- stæðismanna. Þór Saari segir að Hreyfingin styðji ekki tillögu Bjarna en afstaða hennar hafi alltaf verið að allir ráð- herrarnir fjórir ættu að fara fyrir dóm. Frávísunartillaga íhuguð Morgunblaðið hefur heimildir fyr- ir því að innan stjórnarflokkanna hafi verið leitað leiða til að koma í veg fyrir að tillagan yrði tekin á dagskrá og þar á meðal íhugað að safna í frávísunartillögu. Af þing- skaparlögum hafi verið leitt í ljós að til að svo gæti orðið þyrfti fyrst að setja tillöguna á dagskrá og ekki hægt að krefjast frávísunar fyrr en að lokinni fyrstu umræðu. Var því sjálfhætt því auk þess að verða að ræða málið þýddi frávísun að það færi til ríkisstjórnarinnar. Þá hefði komið upp að málið væri ekki þing- tækt og vísað þar til fræðimanna sem fjölluðu um það á sínum tíma en málsmeðferðin var þá miðuð út frá lögum um meðferð einkamála. En nú er gengið út frá sakamálalögum. Lögfræðiálit sem forseti Alþingis, Ásta R. Jóhannesdóttir, lét vinna staðfestir að tillagan er þingtæk og verður hún tekin fyrir á nýju ári hinn 20. janúar. Titringur vegna tillögu  Mikill óróleiki var innan stjórnarflokkanna vegna þingsályktunar um niðurfell- ingu ákæru á hendur Geir H. Haarde  Deilt var um hvort hún væri þingtæk Morgunblaðið/Ómar Þingsályktun Bjarni Benediktsson er flutningsmaður tillögu um að falla frá ákæru á hendur Geir H. Haarde. Þór, nýtt varðskip Landhelgisgæslu Íslands, liggur nú bundinn við bryggju í Reykjavíkurhöfn sökum bilunar í eldsneytisbúnaði tengdum aðalvélum skipsins. Þetta staðfestir Hrafnhildur Brynja Stefánsdóttir, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæsl- unnar. Hún segir nú beðið eftir vara- hlutum að utan en áður hafði mælst titringur í annarri af aðalvélum skipsins. Að sögn hennar komu sérfræð- ingar á vegum Rolls Royce í Noregi hingað til lands í síðustu viku til að meta bilunina en vélar skipsins eru frá fyrrnefndu fyrirtæki. Segir hún ljóst að á meðan viðgerð stendur muni Þór ekki geta sinnt útköllum. „Á meðan þessi viðgerð stendur yfir þarf náttúrlega að taka eitthvað í sundur. Þannig að hann er allavega ekki klár í útkall,“ segir hún en bendir þó á að eldri skip Gæslunnar séu tilbúin að sinna tilfallandi verk- efnum. Orsök bilunarinnar er óljós en ábyrgðartími skipsins er 18 mán- uðir frá afhendingu svo kostnaður vegna þessa kemur ekki til með að falla á Gæsluna. khj@mbl.is Morgunblaðið/Ómar Bilaður Skammt er liðið frá því að Þór sigldi til hafnar í Reykjavík. Þór getur ekki siglt  Bundinn við bryggju yfir áramót Björgunar- sveitir og lög- regla leituðu síðdegis í gær að níu ára dreng sem varð viðskila við for- eldra sína í jóla- skóginum í Heiðmörk. Eftir um klukkustund- ar leit fannst drengurinn heill á húfi, hafði þá komið út úr skóg- inum Kópavogsmegin og lét vita af sér í Þingahverfi rétt við El- liðahvamm. Í tveimur öðrum til- vikum urðu börn viðskila við for- eldra sína í skóginum í gær en fundust þó fljótt. Fannst eftir nokkra leit í Heiðmörkinni Þór Saari, þingmaður Hreyfing- arinnar, staðfestir aðspurður að Hreyfingin hyggist á nýju ári leggja fram þingsályktunar- tillögu um málshöfðun á hendur þeim þremur ráðherrum sem ekki voru ákærðir fyrir lands- dómi líkt og Geir H. Haarde. Það eru Árni M. Mathiesen, fyrrv. fjármálaráðherra, Björgvin G. Sigurðsson, fyrrv. við- skiptaráðherra, og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrv. utan- ríkisráðherra. „Við munum gera það nema Sjálfstæðisflokkurinn dragi hina tillöguna til baka,“ segir Þór enda sé eins gott að fara yf- ir allt málið í heild sinni aftur fyrst Sjálfstæðisflokkurinn vilji fara að skoða þennan hluta þess aftur. Varðandi undirtektir við fyrirhugaðar tillögur segir Þór að- spurður að ekki hafi gef- ist tími til að kanna þær sérstaklega. Ákæri hina ráðherrana LANDSDÓMSMÁL hún sé ekki meðflutningsmaður. Hún fékk harða gagnrýni á þing- flokksfundi en Jón Bjarnason og Ögmundur Jónasson komu henni til varnar. Björn Valur Gíslason, formaður þingflokks VG, segir umræður hafa orðið um tillöguna í þingflokknum og ljóst að það væri yfirgnæfandi meirihluti fyrir því að hún yrði hvorki lögð fram með hans vilja né í hans nafni. „Mér finnst að bæði hvað varðar málsmeðferð og afstöðu til málsins hljóti menn að gera það sem ein- staklingar og fráleitt að reyna að læsa þetta mál í flokkspólitíska fjötra eða skoða það á grundvelli stjórnar og stjórnarandstöðu. Það á ekki að gerast að mínu mati,“ segir Ögmundur Jónasson, innanrík- isráðherra og þingmaður VG. Þingmönnum ber langt í frá saman um hvernig tillögu um niðurfellingu ákærunnar muni farnast. „Eftir samtöl mín við fólk úr öllum flokkum er ég full- komlega sannfærð um að Þór Saari Sérstakur saksóknari hefur gefið út ákæru á hendur Lárusi Welding, sem var forstjóri Glitnis frá árinu 2006 og þar til ríkið tók yfir bankann, og einum öðrum manni sem tengist bankanum en ekki er vitað hver það er að svo stöddu. Ákæruskjalið verð- ur þó opið fjölmiðlum til skoðunar í hádeginu en þá verða þrír sólar- hringar liðnir frá því ákæran var birt seinni manninum. Ólafur Þór Hauks- son, sérstakur saksóknari, sagðist í samtali við mbl.is ekki geta greint frá efnisatriðum ákærunnar að svo stöddu en hún yrði kynnt fjölmiðlum síðar. Óttar Pálsson, lögmaður Lár- usar, vildi ekki tjá sig um málið í gærkvöldi. Ákæran á hendur Lárusi kemur í kjölfar gæsluvarðhaldsúrskurðar yf- ir honum og tveimur öðrum fyrrver- andi starfsmönnum Glitnis en óvíst er hvort tengsl séu milli ákærunnar og gæsluvarðhaldsins. Samkvæmt fréttum bæði Ríkisútvarpsins og Stöðvar 2 er ákæran vegna gruns um stórfelld umboðssvik í fléttu sem tengist félaginu Svartháfi. Sam- kvæmt heimildum fréttastofu Stöðv- ar 2 er Lárus grunaður um að hafa misnotað umboð sitt sem forstjóri Glitnis og formaður áhættunefndar bankans með því að heimila lán bankans til Svarháfs 29. febrúar 2008. Í fréttinni sagði að rannsókn sérstaks saksóknara á Svartháfs- fléttunni tengdist uppgjöri á láni til Þáttar International, sem var í eigu Karls og Steingrímsson Werners- sonar, Milestone og Einars Sveins- sonar og fjölskyldu, hjá bandaríska bankanum Morgan Stanley. Lánið var að fjárhæð 100 milljónir evra, jafnvirði liðlega 10 milljarða króna. Lárus Welding ákærður  Ákæruskjalið á hendur Lárusi Welding og einum öðrum manni opinberað í dag  Grunur um stórfelld umboðssvik Morgunblaðið/ÞÖK Ákærður Lárus Welding, fyrrver- andi forstjóri Glitnis banka.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.