Morgunblaðið - 19.12.2011, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. DESEMBER 2011
Verkið Vinkonur voru tilnefndar til Sovereign European Art verðlaunanna.
Svanhildur Eiríksdóttir
svei@simnet.is
Verkið Vinkonur eftir FríðuRögnvaldsdóttur var valiðúr hópi 300 listaverka semtilnefnd voru til verð-
launanna Sovereign European Art
fyrir skemmstu en 30 þeirra komust
áfram. Ljóst er nú að verk Fríðu
komst ekki í úrslitasætin tvö en hún
segir heiðurinn engu að síður mik-
inn. „Ég var mjög hissa þegar ég
frétti af tilnefningunni og enn meira
hissa þegar verkið mitt komst í úrval
30 listaverka. Við vorum nokkur sem
tilnefnd voru frá Íslandi, en ég var
sú eina sem komst áfram og eini
Norðurlandabúinn sem komst í úr-
slitin í ár,“ sagði Fríða í samtali við
blaðamann.
Heiðurinn á Fríða Alp Mehmet,
fyrrverandi sendiherra Breta á Ís-
landi, að þakka, en hann hreifst
mjög af verkum Fríðu þegar hann
dvaldi hér á landi á sendiherraárum
sínum. Hann hafði samband við
Fríðu sl. sumar og óskaði eftir að fá
að tilnefna hana. Í framhaldi sendi
Fríða ljósmyndir af þremur verkum
sínum og voru Vinkonurnar eitt
þeirra. Myndina vann Fríða með
steypu á striga og akrílmálningu, en
þá tækni hefur hún notað eingöngu
frá árinu 2003. Verkin voru til sýnis í
viku og síðan boðin upp á galakvöldi
hjá Sovereign sem haldið var í Ist-
anbúl í Tyrklandi fyrir skemmstu.
Helmingur söluverðsins rann til
samtakanna og helmingur til lista-
mannsins.
Sovereign Art Foundation voru
stofnuð í Hong Kong árið 2003 af
nokkrum fjármálamönnum þar í
borg, en markmið samtakanna er að
styðja börn sem standa höllum fæti
m.a. með því að nota skapandi grein-
ar til fræðslu, meðferðar og endur-
hæfingar. Samtökin starfa einnig í
Bretlandi og Afríku og fyrirhugað er
að opna í Mið-Austurlöndum, að
sögn Fríðu.
Vildi verða bóhem eins og
Kristinn Reyr
Fríða átti sér snemma þann
draum að verða listamaður enda man
hún ekki eftir sér öðruvísi en teikn-
andi. Hún á í fórum sínum lúna
barnabók, „Það er gaman að syngja“
eftir Stefán Jónsson með áletruninni:
„2. bekkur B 1960. 1. verðlaun fyrir
teikningu. Sigurfríð Rögnvalds-
dóttir“. „Þetta eru bara ein verðlaun
af mörgum sem ég fékk fyrir teikn-
ingu í grunnskóla. Ásamt lestri bóka
var teiknun mín uppáhaldsiðja.“
Lyktin af málningu
kveikti áhugann
Fríða Rögnvaldsdóttir myndlistarkona er fyrsti íslenski listamaðurinn til að fá at-
hygli góðgerðarsamtakanna Sovereign Art Foundation en samtökin nota sölufé
listaverka sem tilnefnd eru, til að hjálpa börnum sem minna mega sín.
Í snjó og kulda líkt og nú er auðvelt
að láta sig dreyma um hlýja og sólrík-
ari staði. Á bloggsíðunni spenn-
andi.is má fylgjst með hópi íslenskra
ungmenna sem ákváðu að láta
drauminn rætast og skella sér í
heimsreisu. Bloggið ber titilinn
Heimshornaflakk! og undirtitilinn
Umhverfis heiminn á 126 dögum. En
á þeim tíma mun hópurinn koma við í
14 löndum. Á síðunni er að finna
flottar og skemmtilegar myndir af
fallegum stöðum. Eins er að finna þar
góð ráð fyrir ferðalanga eins og t.d.
hvað nauðsynlegt sé að hafa í bak-
pokanum á svona ferðalagi. Skoðið,
njótið og látið ykkur svífa á vit
ímyndunarafls og hlýrra drauma í
fjarlægum löndum.
Vefsíðan www.www.spennandi.is
Reuters
Sólarlag Í kulda og snjó er auðvelt að láta sig dreyma um fjarlæg lönd.
Á vit hlýrra drauma
Mikið álag er á eldhúsumlandsmanna við jóla-undirbúning í desem-ber og yfir hátíðirnar.
Góðir hollustuhættir í eldhúsinu eru
því afar mikilvægir svo koma megi í
veg fyrir að gestir og heimilsfólk fái
matarsjúkdóma með tilheyrandi
óþægindum.
Sjúkdómsvaldandi bakteríur geta
borist inn í eldhúsið með kjöti og
jarðvegi sem fylgir grænmeti og
borist þaðan í önnur matvæli í eld-
húsinu eða í ísskápnum. Einnig geta
þær borist í matvæli frá þeim sem
meðhöndlar matvælin og frá þeim
búnaði og áhöldum sem eru notuð í
eldhúsinu. Það er því mikilvægt að
koma í veg fyrir að:
hrátt kjöt og safi úr hráu kjöti
komist í snertingu við matvæli sem
eru tilbúin til neyslu, með því að
tryggja aðskilnað á vinnuborðinu og
í ísskáp og með því að geyma mat í
þéttum umbúðum / ílátum.
óhreinindi sem geta verið á græn-
meti og ávöxtum berist í tilbúin mat-
væli, með því að þvo grænmeti og
ávexti fyrir notkun.
bakteríur og veirur berist í matvæli
frá höndum, með því að þvo hendur
áður en hafist handa við matreiðslu
og eftir snertingu við hrátt kjöt og
óþvegið grænmeti.
skurðarbretti og áhöld geti mengað
matvæli, með því að þvo skurð-
arbretti og áhöld strax eftir notkun
og nota jafnvel sérstök skurð-
arbretti fyrir kjöt, grænmeti og
tilbúin matvæli.
koma í veg fyrir krossmengun í ís-
skápnum með góðu skipulagi og með
því að halda honum hreinum.
bakteríur fjölgi sér í borðtuskum,
viskustykkjum og handþurrkum
með því að skipta reglulega um slíka
um klúta.
Bakteríur fjölga sér mjög hratt
við kjöraðstæður. Við 37°C getur ein
baktería fjölgað sé í 1000 á 3 tímum
og í 1 milljón á 6 tímum. Það er því
mikilvægt að geyma og meðhöndla
matvæli við það hitastig sem hindrar
fjölgun baktería. Mest hætta er á
fjölgun baktería þegar hitastig mat-
vælanna er milli 5 og 60°C. Nægileg
hitameðhöndlun drepur bakteríur
og geymsla við kælihitastig (0-4 °C)
takmarkar fjölgun þeirra. Kjarnhiti
kjúklings, kalkúns, svínakjöts og
hakkaðs kjöts þarf að ná 75°C til að
drepa allar sjúkdómsvaldandi bakt-
eríur. Ef halda á matvælum heitum
skal þeim haldið við 60°C og við kæl-
ingu hitaðra matvæla skal gæta þess
að þau nái 4° C á 3 tímum.
Landsmenn eru hvattir til að til-
einka sér góða hollustuhætti í eld-
húsinu svo koma megi í veg fyrir að
matarsjúkdómar spilli jólagleðinni.
Dóra S. Gunnarsdóttir, matvæla-
fræðingur hjá Matvælastofnun
Örugg matvæli – allra hagur
Jól án
matar-
eitrunar
Morgunblaðið/Ásdís
Handþvottur Mikilvægt er að þvo
hendur vel fyrir matreiðslu.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Annað kvöld er komið að 12. tónleik-
unum í tónleikaröðinni Kaffi, kökur &
rokk & ról í Edrúhöllinni, Efstaleiti.
Það verður sannarlega ljúf og notaleg
stemning í þetta sinn en á tónleik-
unum koma fram Hjaltalín og Lay
Low. Um að gera að slappa af í jóla-
æsingnum, hlusta á tónlist og fá sér
kaffi og kökur í hléinu. Húsið verður
opnað klukkan 20 og kostar litlar
500 krónur inn.
Endilega …
… kíkið á ljúfa
tónleika
Morgunblaðið/Ómar
Tónleikar Hjaltalín og Lay Low.
Þann 4. janúar kemur út
glæsilegt sérblað um
menntun, skóla og námskeið
sem mun fylgja
Morgunblaðinu þann dag
MEÐAL EFNIS:
Háskólanám.
Verklegt nám og iðnnám.
Endurmenntun.
Símenntun.
Listanám.
Sérhæft nám.
Námsráðgjöf og góð ráð við námið.
Kennsluefni.
Tómstundanámskeið
og almenn námskeið.
Nám erlendis.
Lánamöguleikar til náms.
Ásamt fullt af öðru spennandi efni.
–– Meira fyrir lesendur
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16, miðvikudaginn 21. des.
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
kata@mbl.is
Sími: 569-1105
Í blaðinu verður fjallað um menntun og
þá fjölbreyttu flóru sem í boði er fyrir þá
sem vilja auðga líf sitt og möguleika með
því að afla sér nýrrar þekkingar og stefa
því á nám og námskeiða.
Skólar & námskeið
SÉRBLAÐ
Skólar & námske
ið