Morgunblaðið - 19.12.2011, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 19.12.2011, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. DESEMBER 2011 BÓK FYRIR ÞÁ SEM LESA EITTHVAÐ SKEMMTILEGT!KATTARGLOTTIÐ, fyrsta smásagnasafn Benedikts Jóhannessonar, er komið út. Bókin hefur vakið nokkra athygli enda sést hér ný hlið á Benedikt sem hefur um árabil skrifað greinar í blöð og tímarit. Sögurnar fjórtán eru af ýmsu tagi og eiga nánast það eitt sameiginlegt að vera stuttar. Þó má segja að margar söguhetjur lendi í óþægi- legri aðstöðu sem þær basla við að koma sér útúr með misjöfnum árangri. Á nánast hverri síðu leynist lítil moli sem hægt er að velta fyrir sér og hafa gaman af. Lesendur hafa lýst því að þeir hafi skellt upp úr við lesturinn meðan aðrir kíma í hljóði. Sumar sögurnar hafa sakleysislegt yfirbragð en grunsemdir vakna um að ef til vill búi eitthvað dýpra að baki. Stundum er sögusviðið Reykjavík nútímans, en í öðrum sögum er komið við í Stokkhólmi og New York sem og ókennilegum stöðum sem erfitt er að festa hönd á hvar eru. HEIMUR HF. Borgartún 23, 105 Reykjavík. Sími: 512 7575 Dmítrí Medve- dev, forseti Rúss- lands, boðar breytingar í rúss- neskum stjórn- málum. Núver- andi fyrir- komulag hafi gengið sér til húðar. „Við horf- um fram á nýtt stig í þróun stjórnmálakerfis okkar og við getum ekki lokað augunum fyrir því. Það er þegar hafið. Það hófst ekki vegna fá- einna kröfugangna. Þær eru aðeins á yfirborðinu – froða ef svo má segja. Það hófst vegna þess að gamla líkanið sem hefur þjónað rík- inu vel … á síðustu árum … hefur verið þurrausið,“ sagði Medvedev. Varar við glundroða Forsetinn setti mótmælin vegna meints svindls í þingkosningunum fyrr í mánuðinum í samhengi við októberbyltinguna. „Hvað er Rúss- land án ríkisstjórnar? Allir muna svarið úr sögubókunum. Það er 1917,“ sagði forsetinn og vitnaði til ársins þegar róttæklingar undir for- ystu Vladímírs Leníns tóku völdin. Mótmælendur eru ekki af baki dottnir og boða frekari kröfugöngur í Moskvu um næstu helgi. Vladímír Pútín forsætisráðherra fór háðulegum orðum um mótmæl- endur fyrir helgi og hafa ummælin orðið til að hella olíu á eldinn, að sögn breska blaðsins Guardian. Þróunin kalli á umbætur Dmítrí Medvedev Forseti Rússlands segir andófið „froðu“ 58 ára bresk kona sem er eldheitur aðdáandi Man- chester United í knattspyrnu get- ur nú sótt heima- læki Rauðu djöfl- anna, eins og þeir rauðklæddu eru kallaðir, eftir að hafa lokið með- ferð vegna of mikillar spennu á leikjum. Konan lifði sig svo inn í einn leik að einkenni Addisonsveiki, sjúk- dóms er orsakast af ófullnægjandi hormónaframleiðslu nýrnahettu- barkar, komu fram. Voru einkennin svo alvarleg að konan var álitin í lífs- hættu og flutt í skyndi á sjúkrahús. Mildi þykir að konan var á ferða- lagi er United-liðið tók á móti grönn- um sínum City fyrr í haust og laut í gras 1:6. Hún hefur síðan sótt há- spennuleiki án einkenna. Hættuleg innlifun á boltaleik Frá heimavelli Rauðu djöflanna. Minnst 650 eru látnir og 900 er enn saknað eftir að hitabeltis- stormurinn Washi olli gífurlegri eyðileggingu á Mindanao, ann- ar stærstu eyju Filippseyja, að því er Rauði kross landsins áætl- ar. Mörg þorp á svæðinu eru einangruð og verður umfang harmleiksins ekki ljóst fyrr en björgunarlið kemst þangað. Óveðrið lagði heilu þorpin í rúst Flest fórnarlambanna voru í fasta svefni aðfaranótt laugar- dags þegar skyndiflóð urðu í steypiregni. Slíkur var krafturinn í vatnselgnum að hann reif upp tré með rótum. Hafnarborgin Cagayan de Oro og borgin Iligan við Iligan-flóa urðu einna verst úti en þar lágu bifreiðar eins og hráviði eftir fárviðrið. Er áætlað að 45.000 manns séu heimilislaus eftir storminn. Eignatjón er gífurlegt og hafa birst frásagnir af því hvernig óveðrið lagði heilu þorpin í rúst. Aðstæður eru erfiðar og í gærkvöldi bjuggu yfirvöld í Caga- yan de Oro sig undir að grafa lík sem ekki höfðu verið borin kennsl á í fjöldagröf. Var neyðin sögð yfirþyrmandi. Sjaldgæft er að hitabeltisstormur ríði yfir svæðið sem veður- ofsinn lék harðast og hafa yfirvöld á svæðinu vísað á bug gagn- rýni um að hafa ekki komið varnaðarorðum nógu skýrt til skila. Meirihluti hinna látnu er konur og börn. Hafði breska útvarpið, BBC, eftir konu sem komst lífs af að hún og fjölskylda hennar hefðu setið á bárujárnsþaki sem flaut langt út á haf út. Reuters Sorg Móðir við þrjár kistur. Dóttir hennar hvílir í einni. Hundruð fórust í fárviðri  Minnst 650 taldir af og 900 saknað eftir ofsaveður á Filippseyjum  Skyndiflóð rifu upp tré með rótum  Tugir þúsunda án heimilis

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.