Morgunblaðið - 19.12.2011, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 19.12.2011, Blaðsíða 11
Morgunblaðið/Svanhildur Eirík Steypir Fríða Rögnvaldsdóttir hefur notað steypu í myndverk sín frá árinu 2003. Fríða minnist með hlýju ferðanna í bókaverslun listamannsins Kristins Reyrs við Hafnargötu í Keflavík. „Það var alltaf svo góð lykt í bóka- búðinni hans Kristins, þar sem hann seldi ekki bara bækur heldur málaði myndir í bakherbergi. Ég kom oft í bókabúðina til hans, mamma mín vann hjá honum í mörg ár og var allt- af kölluð Lúlla í Bókabúðinni. Ég hreifst af öllum litunum og lyktinni, mér fannst hann svo flottur og mikill bóhem að ég ákvað snemma að svona vildi ég vera þegar ég yrði stór.“ Myndir af Adam og Evu Fríða nýtti alla myndlistar- kennslu sem bauðst í bæjarfélaginu en fór að lokum í myndlistarnám til Belgíu, í Akademie of Fine Kunst í Tongeren árið 1999 og nam þar í tvö ár. „Þetta voru yndisleg ár í Belgíu og mjög lærdómsrík. Auk skemmti- legra tíma í skólanum frá hádegi og fram á kvöld voru reglulegar mynd- listarsýningar á mjög sérstökum stöðum í bænum, s.s. friðaðri kirkju frá 16. öld og munkaklaustri.“ Fríða rifjar upp stórar myndir af Adam og Evu sem hún vann sérstaklega fyrir sýninguna í kirkjunni og það kemur upp úr dúrnum að þar er upphafið að þeirri aðferð sem Fríða hefur notað nær eingöngu síðan. „Við gerð þess- ara mynda notaði ég múrsteinasand í fyrsta sinn, en þeirri aðferð hafði ég kynnst í skólanum. Þegar ég kom heim hafði ég áhuga á því að vinna meira með þetta efni og komst niður á rétta blöndu eftir nokkra leit og þreifingar í vinnustofu minni.“ Tvö af verkum Fríðu sem hún sendi í keppnina til Sovereign Euro- pean Art-verðlaunanna má nú sjá á sýningu hennar á veitingastaðnum Karma í Keflavík en henni lýkur á morgun. Verk eftir Fríðu eru til sölu í Art67 við Laugaveg 67, en galleríið er rekið af 13 konum og er Fríða ein af þeim. www.sovereignartfound- ation.com,www.frida-r.com DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. DESEMBER 2011 Á Þorláksmessu, nú á föstudaginn, verður friðarganga í 32. sinn niður Laugaveginn. En það eru Íslenskir friðarsinnar sem hafa efnt til friðar- göngu niður Laugaveginn á þessum degi í rúmlega þrjá áratugi. Óhætt er að segja að gangan sé orðin ómiss- andi þáttur í jólaundirbúningnum og tekur fjöldi fólks sér hlé frá tiltektum og innkaupum rétt fyrir jólin til að leggja þar sitt af mörkum og styðja kröfuna um frið og afvopnun í heim- inum. Undanfarin ár hafa slíkar göng- ur einnig verið gengnar á Akureyri og á Ísafirði. Að venju er það samstarfshópur friðarhreyfinga sem stendur fyrir göngunni. Safnast verður saman á Hlemmi frá klukkan 17.45 og leggur gangan af stað klukkan 18.00. Fólk er hvatt til að mæta tímanlega. Að venju munu friðarhreyfingarnar selja kerti fyrir göngufólk á Hlemmi. Í lok göngu verður síðan fundur á Lækjartorgi þar sem Magnús Þor- kelsson, aðstoðarskólastjóri í Flens- borgarskóla, flytur ávarp en fund- arstjóri er Bryndís Björgvinsdóttir, þjóðfræðingur og rithöfundur. Þá syngur söngfólk úr Hamrahlíðar- kórnum og Kór Menntaskólans við Hamrahlíð í göngunni og við lok fund- ar undir stjórn Þorgerðar Ingólfs- dóttur. Í fréttatilkynningu segir að sam- starfshópurinn minni á að málstaður og rök friðarsinna skipti jafn miklu máli nú og fyrir þrjátíu árum. Stöðugt berist fregnir af ofbeldisverkum þjóða á milli og innan samfélaga. Óheyrilegum fjárhæðum sé enn sóað í vígvæðingu og ekkert lát virðist á hernaðarátökum í heiminum. Sé þar skemmst að minnast landa á borð við Afganistan, Pakistan, Sýrland, Líbíu, Írak og Sómalíu. Íslenskir friðarsinnar ganga í 32. sinn Morgunblaðið/Golli Friðarganga Göngufólk gengur niður Laugaveginn með kerti í hendi. Friðarganga á Þorláksmessu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.