Morgunblaðið - 19.12.2011, Side 6

Morgunblaðið - 19.12.2011, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. DESEMBER 2011 Matarsendingar til útlanda Láttu okkur sjá um alla fyrirhöfnina – útvega vottorð, pakka og senda. Evrópa: 19. desember USA og Kanada: 19. desember Önnur lönd: 19. desember Síðustu dagar til að senda jólamat til útlanda fyrir jól KL AS SÍS KT Á JÓLUNUM B R E G ST A L D R E I M E Ð N Ó AT Ú N I www.noatun.is FRÉTTASKÝRING Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Áætlaður kostnaður við dýpkun Landeyjahafnar frá því að höfnin var tekin í notkun á miðju síðasta ári er 345 milljónir króna, samkvæmt upp- lýsingum Siglingastofnunar. Þar af er áætlaður kostnaður 266 milljónir á þessu ári. Í drögum að samgöngu- áætlun er gert ráð fyrir að kostnað- urinn við dýpkunina verði 214 millj- ónir á næsta ári, þannig að samanlagður dýpkunarkostnaður til loka næsta árs verður kominn í um 560 milljónir króna. Tvö dýpkunarskip, Skandia og Perlan, voru um tíma í vetur að störf- um við Landeyjahöfn þegar mikið þurfti að dýpka en að undanförnu hefur aðeins þurft Skandia. Að sögn Þórhildar E. Elínardóttur, upplýs- ingafulltrúa Siglingastofnunar, verð- ur eftir föngum reynt að halda nægi- legu dýpi fyrir Herjólf og tiltæk skip notuð eins og hægt er. Samningur sé í gildi við Íslenska gámafélagið, sem hefur gert skipið Skandia út, en Perl- an verði að líkindum kölluð til þegar aðstæður leyfa og þörf krefur. Ný ferja í undirbúningi Samráðshópur um siglingar til Vestmannaeyja hefur sem kunnugt er ákveðið að hefja athugun og und- irbúning að smíði nýrrar ferju, þar sem Herjólfur ristir of djúpt og þykir óhentugt skip til siglinga í Landeyja- höfn. Voru samningar við skipa- smíðastöð nánast frágengnir þegar bankahrunið varð haustið 2008 og framkvæmdum við Landeyjahöfn því hleypt í uppnám, en Þórhildur segir mikilvæga hönnunarforsendu hafnarinnar hafa verið mun grunn- ristari ferju en Herjólfur sé. Sem fyrr greinir hefur kostnaður við viðhaldsdýpkun Landeyjahafnar verið mikill en Siglingastofnun segir gríðarmikinn framburð gosefna nið- ur Markarfljót frá Eyjafjallajökli hafa átt stóran þátt í því. Dýpka hafi þurft margfalt meira í höfninni en áætlanir gerðu ráð fyrir og djúprista Herjólfs hafi einnig komið sér illa. Vegna hennar hafi þurfti að dýpka þrefalt meira magn en ella. Áhugamenn um smíði Landeyja- hafnar hafa gagnrýnt hönnun varn- argarðanna og m.a. sagt hana ekki taka nægt tillit til ríkjandi vindátta, sem er suðaustanátt. Byggja hafi átt austari varnargarðinn lengra út til suðvesturs og höfnin hefði þá verið opin lengur yfir árið. Um þessa gagnrýni segir Þórhildur að það séu ölduáttir en ekki vindáttir sem stýri efnisburði í sjó. Þó að ríkjandi vind- átt við suðurströndina sé úr suð- austri þá sé ríkjandi ölduátt úr suð- vestri. Þess megi víða sjá glögg dæmi og við hönnun hafnarinnar hafi verið stuðst við gögn um ölduáttir frá ölduduflum áratugi aftur í tímann. Straummælir við höfnina Straummælir hefur verið í Herj- ólfi til að mæla strauma í og við Landeyjahöfn og að sögn Þórhildar er stefnt að því að koma upp straum- mæli fyrir mynni hafnarinnar til að- stoðar við siglingar. Þá er unnið að endurskoðun útreikninga á efnis- burði og að þeirri vinnu koma inn- lendir og erlendir sérfræðingar. „Jafnframt er unnið að lausn á því hvernig standa á að dýpkun við Landeyjahöfn og hvernig á að hjálpa náttúrunni við að komast í eðlilegt horf,“ segir Þórhildur. Varðandi hugmyndir um lengingu annars varnargarðsins bendir hún á að sandburðurinn sé bæði til vesturs og austurs. Ef annar garðurinn sé lengdur muni sandurinn setjast við þann garð og loka innsiglingunni. Magnið sem þyrfti að fjarlægja myndi margfaldast og þar með kostnaðurinn. 345 milljónir króna í dýpkun Morgunblaðið/Óli Már Aronssson Landeyjahöfn Dýpkunarskipið Skandia hefur verið að störfum meira og minna síðan Landeyjahöfn var tekin í notkun. Um tíma var skipið bilað og nú í vetur hefur Perlan einnig aðstoðað við dýpkun í og við höfnina.  Heildarkostnaður við dýpkun kominn yfir hálfan milljarð króna eftir ár, að mati Siglingastofnunar  Kostnaður þessa árs áætlaður 266 milljónir  Útreikningar á efnisburði við höfnina endurskoðaðir Landeyjahöfn » Herjólfur náði að fara þrjár ferðir í Landeyjahöfn í gær og fjórar á laugardag. » Skipið siglir hins vegar til Þorlákshafnar í dag og næstu daga, eða a.m.k. til fimmtu- dags, vegna mjög óhag- stæðrar ölduspár. » Umframkostnaður Herjólfs við að sigla í Þorlákshöfn í stað Landeyjahafnar er allt að 1,5 milljónum kr. á dag. » Frá því að Landeyjahöfn var tekin í gagnið í lok júlí 2010 til síðustu áramóta náði Herjólfur að fara þangað 429 ferðir af 572 áætluðum, eða 75%. » Til Þorlákshafnar voru þá farnar 119 ferðir (20,8%) og 24 áætlaðar ferðir voru felld- ar niður, eða 4,2% allra ferða. Eyjólfur Martinsson, fyrrverandi fram- kvæmdastjóri, andaðist á Heilbrigðisstofnun Vest- mannaeyja laugardaginn 17. desember, 74 ára að aldri. Eyjólfur fæddist í Vestmannaeyjum 23. maí 1937 og var sonur hjónanna Martins Tóm- assonar útgerðarmanns og konu hans, Berthu Gísladóttur húsmóður. Eyjólfur lauk versl- unarprófi frá Verzlunarskóla Íslands árið 1959. Eftir verslunarpróf starf- aði hann hjá fjölskyldufyrirtækinu, Tómasi M. Guðjónssyni hf., en árið 1961 hóf hann störf hjá Ísfélagi Vest- mannaeyja þar sem hann starfaði til dauðadags, m.a. sem framkvæmda- stjóri en nú síðast sem bókari. Eyjólfur gegndi fjölmörgum trún- aðarstörfum um ævina. Hann var um 30 ára skeið ræðismaður Dana í Vest- mannaeyjum. Hann sat um árabil í stjórn Ísfélags Vest- mannaeyja, Lífeyrissjóðs Vestmannaeyja, Lifrar- samlags Vestmannaeyja og Bátaábyrgðarfélags Vestmannaeyja, þar sem hann var formaður um nokkurt skeið. Þá sat hann m.a. í stjórn Skelj- ungs, Samfrost, ÍSNÓ auk þess sem hann sat í varastjórn Sölu- miðstöðvar hraðfrysti- húsanna og Verðlagsráði sjávarútvegsins um ára- bil. Eyjólfur lét einnig til sín taka í fé- lagsstörfum í Vestmannaeyjum. Hann sat í stjórn knattspyrnufélags- ins Týs og Þjóðhátíðarnefnd, Akóges, Rótarý, auk þess sem hann gegndi trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðis- flokkinn. Eftirlifandi eiginkona Eyjólfs er Sigríður Sylvía Jakobsdóttir. Þau eignuðust tvö börn; Jóhönnu Maríu og Martin. Eyjólfur Martinsson Andlát Frá áramótum hafa Herjólfur og Baldur siglt 1.102 ferðir milli lands og Eyja, samkvæmt upp- lýsingum frá Eimskip, og 43 áætlaðar ferðir hafa verið felldar niður vegna veðurs eða bilunar. Nær yfirlitið til dagsins í gær, 18. desember, en Herjólfur hóf siglingar í Landeyjahöfn að nýju í síðustu viku, eftir nokkurt hlé. Frá áramótum til sl. laug- ardags hafa skipin farið 774 ferðir í Landeyjahöfn, eða 67,6% allra áætlaðra ferða. Sambærilegt hlutfall síðasta árs, eða frá júlí til síðustu ára- móta, var 75% í Landeyjahöfn. Frá áramótum hefur Herjólfur farið 328 ferðir í Þorlákshöfn, eða í 28,6% tilvika. Hafa ber í huga að ferðatíðni Herjólfs er mun meiri yfir sum- armánuðina og þá hefur langoft- ast verið siglt í Landeyjahöfn. Frá miðjum janúar sl. og fram í maí var nær eingöngu siglt í Þorlákshöfn. Vel gekk að sigla í Landeyjahöfn í sumar og í byrjun september leysti Breiðafjarð- arferjan Baldur Herjólf af hólmi á meðan síðarnefnda skipið fór í viðgerð. Þar til í byrjun október, þegar Herjólfur sneri til baka, náði Baldur að fara 128 ferðir í Landeyjahöfn en 15 ferðir voru felldar niður vegna veðurs. Frá byrjun október hefur Herjólfur náð 69 ferðum í Landeyjahöfn en ferðir í Þorlákshöfn hafa verið um 110 talsins. Siglingar í Landeyjahöfn í 67,6% tilvika HERJÓLFUR OG BALDUR HAFA SIGLT UM 1.100 FERÐIR MILLI LANDS OG EYJA Á ÁRINU Ferðir Herjólfs frá áramótum 160 140 120 100 80 60 40 20 0 Jan. Feb. Mars Apr. Maí Júní Júlí Ág. Sept.1) Okt. 1) Nóv. Des.2) 1) Baldur sigldi fyrir Herjólf 5. sept. - 2. okt. 2) 1.-18. desember Heimild: Eimskip-Herjólfur Landeyjahöfn (alls 774) Þorlákshöfn (alls 328) Felldar niður (alls 43) 82 56 58 63 109 136 159 156 135 83 67 41 „Að óbreyttu er búið að sam- þykkja hér lög sem munu leiða til þess að rétt- indi okkar félags- manna munu skerðast og það erum við mjög ósátt við,“ segir Gylfi Arnbjörns- son, forseti ASÍ, um fyrirhugaða skattlagningu lífeyrissjóða vegna fjármögnunar sérstakra vaxtaniður- greiðslna. Forsætisráðherra og fjár- málaráðherra hafi sent ASÍ og SA bréf þar sem gefin voru fyrirheit um að það verði sett fram frumvarp á fyrri hluta næsta árs sem efnislega feli í sér að ekki komi til skerðingar réttinda. Gylfi segir að farið verði í að skoða hvort hægt sé að hnekkja skattlagningunni þar sem hún brjóti gegn jafnræðisreglu. Afleiðing skattsins leggist mjög einhliða á fólk á almennum vinnumarkaði. sigrunrosa@mbl.is Lofað að ekki kæmi til skerðingar lífeyrisréttinda Gylfi Arnbjörnsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.