Morgunblaðið - 19.12.2011, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 19.12.2011, Qupperneq 19
19 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. DESEMBER 2011 Vax Dorrit Moussaieff valdi jólatré sem Tinna Ottesen skreytti, sem best skreytta jólatréð í samkeppni sem Skógræktarfélag Íslands stóð fyrir. Tinna notaði m.a. heitt vax til að skreyta tréð. Árni Sæberg Rúmu ári eftir hrun birti Aðalsteinn Hákonarson, yfirmað- ur eftirlitssviðs Rík- isskattstjóra, grein um skuldsettar yf- irtökur á eyjan.is. Þar segir: „Það er nánast með ólíkindum að þrátt fyrir að búið sé að eyðileggja mörg af glæsilegustu fyr- irtækjum þjóðarinnar með því að skuldsetja þau upp fyrir haus, til þess eins að borga út gamla hlut- hafa og skrá inn nýja eigendur að hlutabréfunum, þá hefur varla nokkur ráðamaður þessarar þjóð- ar svo mikið sem lyft litla fingri í þeim tilgangi að stemma stigu við svona ráðstöfunum.“ Þá segir hann að „þótt tekist hafi að bjarga sumum fyrirtækjum misjafnlega löskuðum út úr svona ógöngum þá eru þau mörg sem hafa lent í fanginu á bönkunum og bíða þess að einhverjir reyni að koma þeim á lappirnar. Þótt hvarvetna blasi við eyðilegging af völdum skuld- settrar yfirtöku hefur hvorki lög- gjafarvaldið né framkvæmdavaldið sé ástæðu til að skoða af alvöru hvort ástæða sé til að breyta ákvæðum laga um hlutafélög í þessu sambandi.“ Síðan þetta var skrifað eru liðin nær tvö ár og hafa stjórnvöld ekkert gert enn. Niðurrifsafl í atvinnulífi Menn hafa eignast fyrirtæki án þess að borga sjálfir eða taka ábyrgð, segir Að- alsteinn. Menn stofna eignarhaldsfélag sem látið er kaupa at- vinnufyrirtæki með lánsfé að mestu. Fé- lögin eru svo sam- einuð inn í atvinnu- fyrirtækið. Við það færast skuldir vegna kaupanna á atvinnufyrirtækið án þess að nokkur eign komi á móti. Eina eign eignarhaldsfélagsins eru hlut- ir í atvinnufyrirtækinu og þeir eyðast út við samrunann og eigið fé þess á móti. Skuldir hafa aukist og eigið fé rýrnað. Fyrri hluthafar fóru með kaupverðið en hinir nýju lögðu bara fram það litla eigið fé sem var lagt í eignarhaldsfélagið. Restin fór inn í atvinnufyrirtækið í formi skulda, oft ¾ eða 2⁄3 af kaupverðinu. Ólögmætt er að fyr- irtæki eigi sig sjálf svo menn leyndu þessu með því að færa við- skiptavild til eignar. Sú eign reyndist verðlaus þegar greiða þurfti af lánum. Atvinnufyrirtækið varð að borga sjálft sig. Ef þessi aðferð hefði verið takmörkunum háð hér, eins og í Evrópu, væri ástandið betra en nú. Atvinnulífið hefði getu til sóknar. Ef samruni eignarhaldsfélags við atvinnufyr- irtæki væri óheimill yrðu kaup- endur að reiða sig á að arður úr því stæði undir afborgunum og vöxtum af þeim lánum sem eign- arhaldsfélagið tók. Þeir yrðu sjálf- ir að taka ábyrgð. Þeir yrðu að vanda sig og gæta þess að kaup- verðið sé raunhæft miðað við arð- semi. Lýkur hér upprifjun úr grein Aðalsteins. Skýlaus lögbrot Samkvæmt 23. gr. tilskipunar framkvæmdastjórnar ESB nr. 77/ 91 má fyrirtæki ekki aðstoða við (lána til eða ábyrgjast) yfirtöku á sjálfu sér. Öllum aðildarríkjum ESB og EES bar og ber að fram- kvæma þessa reglu. Þótt ákvæði íslenskra hlutafélagalaga mættu vera skýrari eru þau til staðar. Hafi félög verið sameinuð, sem var ekki í öllum tilvikum, voru greiðslur hins sameinaða félags af lánum sem tekin voru til kaup- anna í raun ólögmæt einkaúttekt. Líta verður á eðli máls í þessum efnum. Reglur íslenskra hluta- félagalaga um útborgun arðs voru sniðgengnar og neikvæður höfuð- stóll falinn með falskri við- skiptavild. Skv. reglum um reikn- ingsskil má ekki hækka bókfært eigið fé með uppfærslu við- skiptavildar innan frá. Starfsfólk og kröfuhafar hinna féflettu félaga voru með þessu skilin eftir á köld- um klaka, þrátt fyrir skýr ákvæði laga um að stjórn hlutafélags skuli gæta hags félagsins sjálfs og þar með allra þeirra sem eiga hags- muni í því. Íslensk stjórnvöld horfðu aðgerðalaus á stórfelld lög- brot og það olli þjóðinni hrikalegu tjóni. Aðgerðaleysið varir enn. Niðurrifsafl í þjóðlífi Íslendingar vita nú að „pening- arnir vaxa ekki á trjánum“. Það er alltaf einhver sem borgar. Ef illa fer lendir tapið á bankanum. Oft- ast tekst honum að vinna fyrir tapinu með því að auka vaxtamun- inn og það eru þá viðskiptavinir hans sem borga, stór hópur sem útilokað er að rekja hverjir eru. Í verstu tilvikum fer bankinn á hausinn og kröfuhafar borga og jafnvel ríkissjóður, sem þarf að hlaupa undir bagga með nýju hlutafé. Tapið dreifist á aðila sem útilokað er að rekja hverjir eru. Ef vel tekst til nær atvinnufyr- irtækið að rétta úr kútnum og þá finnst „kjölfestufjárfestunum“ tími kominn til að setja félagið á mark- að. Farið er í útboð „til að gefa al- menningi og lífeyrissjóðum kost á að fjárfesta í atvinnulífinu“ o.s.frv. Verðið er margfalt það sem kaup- endurnir fengu það á. Þeir fara út með milljarðagróða sem tekinn er af almenningi og sjóðum hans. Niðurstaðan verður sú að fjöldi fólks hefur verið féflettur og margir að auki misst vinnuna. Kaupmáttur neytenda hefur rýrn- að, eftirspurn dregst saman, kreppa sverfur að. Féflettar hafa látið sér velferð og farsæld í léttu rúmi liggja, græðgi þeirra er hömlulaus. Fer allt í sama farið? Sérstök hætta steðjar að ein- mitt nú þar sem lífeyrissjóðir eiga fáa ávöxtunarkosti, þátttaka þeirra í útboði á Högum sýnir það. Brýn þörf er fyrir uppbyggilegar reglur sem geta beint skuldsettum yfirtökum í jákvæðan farveg. Nú fer í hönd sala margra fyrirtækja sem féllu í afskriftarpotta banka. Arion banki hefur nú á ný fært sömu aðilum óhemjuleg verðmæti í Högum á silfurfati sem hann færði milljarða fyrir nokkrum ár- um undir öðru nafni. Lífeyr- issjóðir hafa keypt sig inn í Haga og þar með lagt blessun sína yfir siðleysið. Meira en þrjú ár eru lið- in frá hruni og engin merki um að tekið verði á vandanum. Nú er spurt: Fer allt í sama farið? Höf- um við ekkert lært? Eftir Ragnar Önundarson » Samkvæmt 23. gr. tilskipunar fram- kvæmdastjórnar ESB nr. 77/91 má fyrirtæki ekki aðstoða við (lána til eða ábyrgjast) yfirtöku á sjálfu sér. Ragnar Önundarson Höfundur er viðskiptafræðingur og fv. bankamaður. Mesta eyðileggingaraflið leikur enn lausum hala

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.