Morgunblaðið - 19.12.2011, Síða 20

Morgunblaðið - 19.12.2011, Síða 20
Undirritaður var samningur milli Reykjanesbæjar og ríkisins um byggingu hjúkrunarheimilis á Nesvöllum 11. nóv- ember 2011. Merkur áfangi og baráttumál okkar eldri borgara er komið í höfn og vonum við að framkvæmdir við Hjúkrunarheimilið við Nesvelli gangi fljótt og vel. Félag eldri borgara á Suð- urnesjum hefur látið sig sérstaklega varða málefni þeirra sem eru sjúkir í heimahúsum en ættu að vera á hjúkrunarheimilum. Það má sjá á fundargerðum frá fyrri árum að við höfum ítrekað ályktað í þessum málaflokki. Samkvæmt nýjum upp- lýsingum eru nú 35 sjúkir aldnir í brýnni þörf, þar af 10 sem eru í mjög brýnni þörf fyrir vistun á hjúkrunarheimilum. Áherslur á þjónustu við eldri borgara hafa breyst á síðustu árum. þetta á bæði við um þá sem búa á heimilum sínum og þá sem búa á hjúkrunarheimilum. Áhersla er m.a. á aukin gæði, bætta aðstöðu, og sjálfræði eldri borgara í eigin mál- um og forgang þeirra sem eru veik- astir í dvöl á hjúkrunarheimilum. Þetta endurspeglast m.a. í áherslum á að aldraðir hafi fjölbreytt val á búsetuformum og breyttum reglum um vistunarmat á hjúkrunarheimili, en einnig nýjum hugmyndum og viðmiðunum í þjónustu hjúkr- unarheimila, uppbyggingu og end- urbótum á aðstöðu. Á málþingi um hjúkrunarheimili framtíðarinnar sem haldið var á Grand Hóteli nú fyrir skömmu voru meðal annars kynntar nýjungar í rekstri heimila fyrir aldraða. Húsnæði Hrafnistu í Kópavogi er hannað og teiknað með hlið- sjón af dönsku hug- myndafræðinni Lev og bo sem leggur áherslu á litlar heimilislegar einingar með átta til ellefu íbúum á einingu. Markmiðið er m.a. að búa íbúunum eins heimilislegt umhverfi og frekast er kostur og virða sjálfsákvörð- unarrétt þeirra með sama hætti og væru þeir enn á sínu fyrra heimili. Þannig er markvisst leitast við að viðhalda frumkvæði heimilismanna með því t.d. að viðhalda eða virkja þátttöku þeirra í hinu daglega lífi á heimilinu í samræmi við getu hvers og eins. Rúmgóð herbergi íbúanna eru þannig búin þeirra eigin hús- gögnum og gluggatjöldum. Þar er lögð áhersla á að íbúar hafi áhrif á daglegt líf og ákvarðanir. Fólk hef- ur svigrúm til að vera ólíkt, með ólíkar þarfir, gangur dagsins er sveigjanlegur. Íbúar hafa frelsi til að skera sig úr, lausnir eru sveigj- anlegar og breytingum vel tekið. Verkefni starfsfólks ræðst af óskum og þörfum íbúanna. Rammi er skap- aður um líf íbúanna sem einkennist af heimili, ekki vinnustað. Hvers- dagslíf íbúanna er með rætur í fyrri lífsháttum og aðstæðum. Sama mönnun er alla daga vikunnar. Aldraðir á hjúkrunarheimilum hafa flestir mikla þörf fyrir að upplifa til- gang og að vera þátttakendur í líf- inu. Stjórn Félags eldri borgara á Suðurnesjum telur að við hönnun heimilis á Nesvöllum verði höfð hliðsjón af hugmyndafræði Lev og bo og með því yrði íbúum skapað umhverfi sem væri líkast heimilum þeirra og skapaði þeim svigrúm til þess að viðhalda virkni þeirra og frumkvæði. Eftir Eyjólf Eysteinsson »Merkur áfangi og baráttumál okkar eldri borgara er komið í höfn og vonum við að framkvæmdir við Hjúkr- unarheimilið við Nesvelli gangi fljótt og vel. Höfundur er formaður Félags eldri borgara á Suðurnesjum. Eyjólfur Eysteinsson Hjúkrunarheimili fram- tíðarinnar á Nesvöllum 20 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. DESEMBER 2011 Pakki á pakka Fallegt pakkaskraut hannað af Arca Design Island. Aðrir sem standa að þessu eru Lógóflex og Markó- Merki. Jólatréð verður selt á 500 kr. hjá Arca design, Grímsbæ við Bústaðaveg og fer öll upphæðin óskipt til stuðnings Fjölskylduhjálpar Íslands. Fríðindak ort Golfarans Golfkortið JÓLAGJÖF GOLFARANS Kortið fæst á völdum stöðvum Golfkortið 2012 Spilað um allt Ísland - 31 golfvellir Einstaklingskort 9.000 kr, Fjölskyldukort 14.000 kr Upplýsingar á golfkortid.is Kíkið inn á leikinn Undirritaður minnist þess að hafa lesið í bók eftir guðspekinginn Alice Ann Baily f. 1880, d. 1949 að skært ljós komi frá Íslandi og má skilja að um endurkomu sé að ræða. Visku þessa kveður hún að hafa feng- ið frá innvígðum stjörnu- spekingi frá Tibet, að nafni Djwhal Khul. Taka ber fram að á tuttugustu öld blómstraði guðspeki, sem afleiðing af tveimur heimsstyrjöldum sem lögðu allt í rúst og það á illskiljanlegan hátt. Fleira í þessum dúr má lesa á net- inu í texta eftir Guðmund Sigurfrey Jónasson (sigurfreyr.com). Titill „Spádómar um Ísland“. Í text- anum er getið um spádóma Píramíd- ans mikla, Jesajabók og Nostradamus, sem eiga það sameiginlegt að spá því að Íslendingar verði boðberar nýrrar og gjörbreyttrar heimsmyndar. Seinna í textanum getur GSJ um bók sem dr. Adam Rutherford gaf út 1937 og ber titilinn „Hin mikla arfleifð Ís- lands“ Á forsíðu GSJ er mynd af friðarsúlu Yoko Ono, sem mætti tákna undanfarann. Undirritaður er ekki einn af þeim sem hugsa um dulspeki, eða bíða eftir annarri end- urkomu, en oft er gam- an að reyna að setja viðburði í samhengi við forna spádóma. Þessa dagana riðar fjármálakerfi Vesturlanda til falls, einskonar ragnarök fyrir víxlarana. Heimsfrægir álitsgjafar hafa á al- þjóðavettvangi mært aðferð Íslands við fall bankanna, en þá velti forsætis- ráðherra okkar, Geir H. Haarde, borð- um víxlaranna, með neyðarlögunum og forðaði Íslendingum frá því að verða til eilífðar þrælar alþjóðafjár- magnsins. Gamla 2000 ára sagan end- urtók sig, því Farísearnir á Alþingi ákváðu að stefna Geir fyrir Landsdóm, handvöldu dómara og veittu ríflegt fé til verksins, ekker bólar samt á því að tveir fjármálaverkfræðingar verði krossfestir samtímis, til að fullkomna myndina. Það versta við núverandi fjár- málakreppu er að menn eru tregir til að skilja hvernig allt fór aflaga í fjár- málum banka og þjóðríkja. Verst af öllu var predikun um Pen- ingahyggjuna (monetarism) sem kenndi að peningar yxu á markaðnum og jafnvægi væri stýrt af ósýnilegri hönd. Höndin birtist aldrei, enda hug- takinu stolið frá Adam Smith, sem skrifaði um framleiðsluhagfræði, en ekki bréfabrasks-hagfræði. Græðgi peningahyggju manna óx og óx, þar til mjög stór hópur manna féll inn í Goðheima, Fyrst er fjallað um þessa Goðheima fyrir 4200 árum og heitir það hedonism þ.e.a.s. þegar sjálfgræði mannsins er komin á það stig að sjálfið er orðið að Goði, sem veit allt, getur allt og má allt. Persónu sem hefur fallið fyrir hedonism, er ekki lengur sjálfrátt eins og sjá má af strákunum okkar í útrásinni, að sum- ir voru að kaupa lúxussnekkjur og einkaþotur, þótt komið væri fram yfir bjargbrún. Bankamenn eignfærðu sér bank- ana, þótt þeir væru skráðir á markað, með því að greiða sér ofurbónusa fyr- ir oft málamynda-fjármálagjörninga og gerðu bankana ógjaldfæra, þannig að þjóðríkin þurftu að stoppa upp í götin með trilljónum. Eina aðferðin til að lækna sjálfgræði-mennina er að fara íslensku leiðina og skipta um menn. Það er kínverskur málsháttur sem segir „Sá sem ríður tigrisdýri kemst ekki af baki“. Fjármálavandi vestrænna þjóðríkja er af öðrum toga, en sá vandi hófst þegar staðallinn um verga þjóð- arframleiðslu (GDP) var tekinn upp. Hagfræðingarnir sem skrifuðu stað- alinn skrifuðu sjálfan sig inn og alla mögulega og ómögulega þjónustu rík- isins. Þega vel áraði gátu pólitíkusar aukið útgjöld ríkisins, en þegar illa ár- aði var erfiðara að draga saman. Stóra áfall vestræna þjóðríkisins var þegar alheimsvæðingin var kom- in á fulla ferð. Stórir alþjóða- auðhringir spruttu upp og drápu minni innlend fyrirtæki, sem skiluðu skatttekjum. Miklu af framleiðslu auðhringanna var komið fyrir í lág- launa-þróunarlöndum. Alþjóða-auðhringarnir hafa ekki áhuga á að skipta með öðrum ávöxt- um sínum, en flytja þá í einhvern Paradísargarð, þar sem þeir geta not- ið þeirra að mestu einir. Innfæddir fá mest 4 ávexti fyrir hverja 100. Vesturlönd vildu sem minnst vita af þessu, enda höfðu auðhringirnir lækna á sínum snærum, sem bólu- settu stjórnmálamenn við óþægileg- um sannleika. Þegar skatttekjur minnkuðu voru bara gefin út skulda- bréf sem að sögn báru 0% áhættu. Allt gaman tekur enda og nú eru evruþjóðir í rammaslag til að ná end- um saman, sem ekki sér fyrir endann á. Akademískir dómsdagsspámenn smjatta á ástandinu, sem bara gerir illt verra. Þingheimur í BNA er nokkuð rogginn með sig, nýlega er búið að hækka skuldaþak þjóðarinnar og smátími í ný vandræði. Það er engin góð lausn á þessum vandræðum sjáanleg, eflaust þarf nýja siðvæðingu, sem ekki er sjáan- leg nú, en gæti verið fyrir handan við mannlegan reynsluheim, það skulum við vona. Eftir Elías Kristjánsson »Það versta við núver- andi fjármálakreppu, er að menn eru tregir til að skilja hvernig allt fór aflaga í fjármálum banka og þjóðríkja. Elías Kristjánsson Höfundur er forstjóri. Skært ljós yfir Íslandi Nokkuð er rætt um landsmót hestamanna í Reykjavík 2012 um þessar mundir og hefur það mætt andstöðu víða af óskiljanlegum ástæð- um. Bæði ef horft er fé- lagslega og fjárhags- lega á málið. Fákur er stærsta hestamanna- félagið og stærsti hóp- urinn sem stundar hestamennsku og býr innan 100 km frá Reykjavík. Aðstæður í heild eru afar góðar. Ljóst er að stjórn Lands- sambands hestamannafélaga á erfitt verk fyrir höndum að velja mótstaði fyrir landsmót 2014 og 2016. Hesta- mannafélagið Fákur hefur sótt um að halda aftur landsmót 2016 í Reykja- vík með stuðningi Reykjavík- urborgar. Hvers vegna sækist Fákur nú eftir því að halda landsmót 2016 í Reykja- vík? Mikilvægt er að skoða vel hags- muni allra hestamanna og láta ekki hreppapólitík ráða för. Ljóst er að töluverð uppbygging þarf að eiga sér stað á þeim stöðum sem landsmót er haldið á hverju sinni og hefur sú upp- bygging átt sér stað í Reykjavík sem undirbúningur fyrir landsmót 2012. Gríðarlegur áhugi er fyrir heims- meistaramóti íslenska hestsins í Berl- ín 2013, og verður það væntanlega stærsti hestatengdi atburður hingað til með hátt í 20.000 gesti. Mikið er búið að auglýsa mótið og er áhugi mikill fyrir því og reikna mótshald- arar með að á mótið verði uppselt löngu fyr- ir tímann. Hagnaður fyrir borgarsamfélagið sem heldur slíkan við- burð er einnig mikill og er óhætt að reikna með að hann gæti numið allt að einum til einum og hálfum milljarði króna fyrir afleidda þjónustu. Ef allt fer að óskum, sem ég vona að verði á landsmóti í Reykjavík 2012 þá má reikna með um 15-18.000 manns komi og heimsæki slíkt mót í Reykjavík. Af þessum fjölda má reikna með að 5-7.000 séu erlendir ferðamenn og komi til þess að kaupa hesta, njóta landsmóts og hestatengdrar starfsemi um land allt. Samkvæmt könnunum stoppa er- lendir ferðamenn er koma í hesta- tengdar ferðir mun lengur en al- mennt gerist um þá ferðamenn er hingað sækja. Fjárhagsleg staða Landssambands hestamannafélaga (LH) er ekki sterk um þessar mundir eftir hestapestina og fámennt landsmót 2011. Ef vel tekst til í Reykjavík 2012 mun fjár- hagsstaða landsmóts styrkjast veru- lega. Hagnaður varð af mótinu sem haldið var í Reykjavík árið 2000, þveröfugt við það sem margir hafa haldið. Enginn veit hvenær nátt- úröflin láta á sér kræla eða ný hesta- pest blossar upp. Við skulum vona að Landsmót hestamanna 2016 Eftir Rúnar Sig- urðsson » Ljóst er að töluverð uppbygging þarf að eiga sér stað á þeim stöðum sem landsmót er haldið hverju sinni og hefur sú uppbygging átt sér stað í Reykjavík sem undirbúningur fyrir landsmót 2012. Rúnar Sigurðsson Höfundur er formaður Fáks og fram- kvæmdastjóri hjá Svar tækni ehf. í Reykjavík. afkoman verði góð fyrir LH og það geti í framhaldinu gegnt hlutverki sínu og eflt og stutt fjárhagslega við hestamannafélögin og einnig stutt myndarlega við landslið okkar í hestaíþróttum. Það þarf ekki að fara í grafgötur með að langbesta aðstaðan á landinu er í Reykjavík til þess að halda lands- mót. Nægir þar að nefna öflugan stuðning Reykjavíkurborgar, öflugar samgöngur, marga gistimöguleika, tjaldstæði, sundlaugar, söfn, veit- ingastaði og fallegan og skjólgóðan Víðidal í hjarta höfuðborgarinnar er getur tekið vel á móti öllum þeim fjölda sem óskar eftir að sækja lands- mót heim. Við skulum ekki gleyma því líka að við erum í harðri samkeppni við heimsmeistaramót íslenska hestsins sem er haldið annað hvert ár og verð- ur samanburðurinn erfiður ef við vöndum okkur ekki og hugsum um heildarhagsmuni íslenska hestsins og þeirra er hafa atvinnu og ánægju af honum. Við verðum að líta upp og horfa fram á veginn og líta á þetta í nýju ljósi, það eru breyttir tímar og auknar kröfur um að vel sé að verki staðið. Ég vil að lokum fyrir hönd Hestamannafélagsins Fáks bjóða alla landsmenn velkomna á landsmót hestamanna í Reykjavík 2012 sem haldið verður dagana 25. júní-1. júlí.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.