Morgunblaðið - 19.12.2011, Page 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. DESEMBER 2011
Okkar ástkæri eiginmaður, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
BJÖRN AÐALSTEINSSON
frá Hvannabrekku,
Berufirði,
lést á sjúkrahúsinu í Neskaupstað að
morgni 16. desember. Jarðsungið verður
frá Djúpavogskirkju miðvikudaginn 21.
desember kl. 14.00.
Gyða Guðmundsdóttir,
Aðalsteinn Björnsson, Margrét Sigurðardóttir,
Marta Karen Björnsdóttir,
Guðlaug Björnsdóttir, Holberg Másson,
Ingibjörg Björnsdóttir, Jóhann Sævarsson,
Ragnar Birkir Björnsson, Sigrún Einarsdóttir,
Steinþór Björnsson, Auðbjörg E. Stefánsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
KARÓLÍNA GUÐMUNDSDÓTTIR,
Austurbyggð 17,
Akureyri,
lést föstudaginn 16. desember.
Guðmundur H. Frímannsson, Elísabet Hjörleifsdóttir,
Gunnlaugur Frímannsson, Guðlaug H. Ísaksdóttir,
Sigríður Frímannsdóttir,
Katrín R. Frímannsdóttir, Haraldur Bjarnason,
Karl Frímannsson, Bryndís Þórhallsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝ Jón FreyrFinnsson
fæddist í Stykkis-
hólmi 14. júní
1976. Hann lést á
deild B-2 á Land-
spítalanum í Foss-
vogi þann 13. des-
ember 2011.
Foreldrar hans
voru hjónin Jónína
Ragnarsdóttir og
Finnur Jónsson.
Systkini Jóns Freys voru Grét-
ar Elías og Freyja. Maki Grét-
ars er Hildur Elín Geirsdóttir
og Freyju, Henrik Andersen.
Systkinabörn Jóns Freys eru
Arnar, Sara Natalía, Stefán
Breki og Finnur Kári Grét-
arsbörn og Baldur sonur
Freyju.
þar sem honum líkaði mjög vel
og átti góða daga.
Jón Freyr var félagsvera,
bindindismaður og umhverf-
issinni. Hann starfaði í barna-
stúku í Stykkishólmi, í ÍFR og
nú síðustu árin var hann virkur
í starfi Halaleikhópsins og tók
þar þátt í mörgum uppfærslum.
Hugur Jóns Freys stefndi til
sjómennsku og sem barn og
unglingur lék hann sér á báti
fjölskyldunnar, dró fisk úr sjó
og flutti fólk en vegna veikinda
sem leiddu til fötlunar varð
sjórinn ekki hans starfsvett-
vangur. Eftir sem áður fylgdist
hann með aflabrögðum og not-
aði hvert tækifæri til að eiga
samtal við þá sem gátu rætt við
hann um útgerð og aflabrögð.
Mjög veruleg breyting varð á
högum Jóns Freys í apríl í vor
og dvaldi hann á sjúkrahúsi síð-
ustu mánuði þar til hann lést.
Útför Jóns Freys fer fram
frá Seltjarnarneskirkju í dag,
mánudaginn 19. desember
2011, og hefst athöfnin kl. 13.
Jón Freyr stund-
aði hefðbundið
nám í grunnskóla í
Stykkishólmi síðan
nokkrar annir í
Fjölbrauta-
skólanum við Ár-
múla. Seinna var
hann í náms- og
starfsendurhæf-
ingu í Hringsjá í
Hátúninu.
Jón Freyr flutti
með fjölskyldunni á Seltjarn-
arnesið 1993 þar sem hann hef-
ur búið síðan. Síðustu 13 árin
með foreldrum sínum í Ráða-
gerði á Seltjarnarnesi.
Jón Freyr var í hlutastarfi
m.a. hjá Örva og Örnefna-
stofnun og nú síðustu árin hjá
Sundlauginni á Seltjarnarnesi
Við Jón Freyr vorum bræðra-
synir. Hann fæddist sumarið
sem afi okkar og amma fórust í
bílslysi og hét í höfuðið á þeim
báðum. Sjálfur fékk hann að upp-
lifa grimmd örlaganna þegar
æxli uppgötvaðist í höfði hans á
fjórða aldursári. Þá hófst barátta
sem átti eftir að standa, með mis-
löngum hléum, til æviloka.
Fyrsta rimman hafðist, en eftir
stóð Jón Freyr með skerta
heyrn. Hann lét það ekki aftra
sér frá því að sinna áhugamálum
sínum, siglingum. Um sautján
ára aldur tók óvinurinn sig upp
aftur, og eftir það átti hann við
hreyfihamlanir að stríða sem
stundum urðu svo slæmar að
hann þurfti að nota hjólastól. Það
varaði þó aldrei lengi áður en Jón
Freyr var kominn á fætur aftur.
En þannig varð það ekki að
þessu sinni.
Jón Freyr frændi minn var
fyndinn strákur, einn af þeim
skemmtilegri sem ég man eftir
úr æsku. Hann kunni ótal brand-
ara, og gat farið með þá hvar og
hvenær sem var – fyrir hvern
sem var. Minni mitt úr bernsk-
unni er skiljanlega gloppótt, en
ég man þó ágætlega þann tíma
sem Grétar Elías, eldri bróðir
Jóns Freys, dvaldist á heimili
okkar á meðan Jón Freyr sótti
bót meina sinna á Ríkissjúkra-
húsinu í Kaupmannahöfn. Það
sem stendur upp úr í minning-
unni er hve vel mæltur á dönsku
frændi minn var þegar hann kom
aftur í Hólminn. Já, hann sletti
dönsku hversdags í bæ þar sem
danska var einungis notuð spari
á sunnudögum. Mestan part æv-
innar þurfti frændi minn að not-
ast við heyrnartæki. Oft var það
til trafala, en þó fannst mér á
köflum sem Jóni Frey þætti
sjálfum stundum ágætt að geta
slökkt á blaðrinu í kringum sig,
kannske þá helst í margmennum
fjölskylduboðum þar sem sumir
höfðu hærra en aðrir. Hann var
þó ætíð viðstaddur, og tilbúinn
að leggja kaldhæðið orð í belg, ef
svo bar undir.
Jón Freyr var mikill baráttu-
maður fyrir betra aðgengi fatl-
aðra alls staðar á Seltjarnarnes-
inu þar sem hann bjó frá 17 ára
aldri. Árið 2003 hjálpaði hann þá-
verandi bæjarstjóra að finna á
eigin skinni hvernig væri fyrir
fatlaða að komast leiðar sinnar í
bænum. Hann unni leiklist og
naut þess að taka þátt í starfi
Halaleikhópsins, steig m.a.s. á
svið Þjóðleikhússins, auk þess
sem hann var mikill umhverfis-
sinni og sá um safnhaug fyrir ut-
an hús foreldra sinna. Þá átti
hann styrktarbörn í útlöndum
frá 17 ára aldri. Ein skemmtileg-
asta sagan af Jóni Frey er þegar
hann tók að sér, u.þ.b. 11-12 ára
gamall, að fylgjast með húsi
Krumma heitins, móðurbróður
míns, í Hólminum. Krummi var
þá sjómaður og þar sem húsið
var nálægt skólanum kom það
fyrir að krakkar hentu snjókúl-
um inn um opinn glugga þegar
hann var á sjó. Jón Freyr tók
hlutverk sitt sem gluggagæslu-
manns mjög alvarlega og snar-
stoppaði alla þá sem miðuðu í átt
að húsinu. En eitt sinn var
Krummi heima, og hver var það
þá sem stóð og kastaði velmið-
aðri snjókúlu inn um gluggann,
annar er Jón Freyr sjálfur. Hann
var ekki alltaf engill, hann
frændi minn.
Ég votta foreldrum og systk-
inum Jóns Freys, Finni og Jon-
nýju, Grétari Elíasi og Freyju og
fjölskyldum þeirra, samúð mína,
og bið algóðan Guð að styrkja
þau í sorginni.
Reynir Þór Eggertsson.
Elsku frændi minn hann Jón
Freyr hefur fengið hvíldina góðu
eftir hetjulega baráttu við sinn
sjúkdóm sem hann greindist með
þegar hann var þriggja ára. Ekki
var líf hans einn dans á rósum en
alltaf tókst honum að komast á
fætur aftur. Þó ekki í þetta sinn.
Hugurinn reikar og margt
rifjast upp:
Við að teikna myndir með vin-
konum okkar, Dagnýju Láru og
Elísabetu, og svo fórum við hús
úr húsi á Sundabakka og flestir
ef ekki allir keyptu af okkur
myndir.
Þegar okkar elskulegu bræð-
ur Reynir Þór og Grétar Elías
áttu að passa á meðan mamma
fór í búð. Þegar hún kom heim
vorum við búin að tæma dalla af
hveiti, sykri, kakói og ýmsu öðru
góðgæti þar sem við ætluðum að
baka.
Í fermingunni minni þegar þið
Krummi frændi sátuð í eldhúsinu
heima á Sjávarflöt og sögðuð
brandara og sögur. Mikið var
hlegið og flestir komnir í eldhús-
ið að hlusta og hlæja.
Stúkufundir hjá Árna Helga
enda varst þú annálaður bindind-
ismaður. Ég held að þú hafir litið
framhjá því einu sinni á ári þegar
pabbi þinn og aðrir gestir fengu
staup af Álaborgarákavíti með
skötunni hjá ykkur á Þorláks-
messu og hafa foreldrar mínir
verið svo heppin að fá að njóta
þessarar stundar.
Á bekkjarmóti í Stykkishólmi
þegar þið Arndís Halla frænka
okkar og bekkjarsystkini ykkar
voruð að skemmta ykkur á Nar-
feyrarstofu. Þá þurftir þú á kló-
settið og frænka okkar bauðst til
að hjálpa þér en þú varst ekki á
því – hún var búin að drekka eitt
rauðvínsglas. Sóley Hrönn vin-
kona okkar hafði ekki drukkið
neitt og því best að hún hjálpaði
þér. Já, þú varst ekki hrifinn af
áfenginu.
Þú að sigla Hörninni með nýja
mótornum sem þú keyptir þar
sem hinn bilaði og var ekki nógu
kraftmikill. Var það um 11 ára
aldur, en sjómennska var þitt
áhugamál.
Þá var ég svo heppin að fá að
geyma dót í bílskúrnum hjá ykk-
ur þegar við fluttum heim frá
Danmörku. Þó var þér eitthvað
farið að leiðast að hafa gáminn
beint fyrir utan eldhúsgluggann,
hann skemmdi útsýnið út á sjó-
inn, og fékk ég að heyra það
hvort ég hefði gert ráð fyrir að
hafa hann þarna í marga daga.
Ekki þótti þér leiðinlegt að
geta farið upp í brú á Særúnu í
sumar með hjálp pabba míns
þegar systir þín Freyja var að
gifta sig í Flatey.
Við að rífast um það hvort ætti
að fara með Ísleifi frænda í bíl að
dreifa jólakortunum á aðfanga-
dagsmorgun.
Þá ákvaðstu að taka að þér
börn frá SOS barnahjálp þegar
þú varst 17 ára. Þar fetaðir þú í
spor bróður þíns, því fyrst hann
gat átt barn 17 ára gætir þú það
líka.
Þú að leika með Halaleikhópn-
um í Hátúni og í Þjóðleikhúsinu.
Ekki veit ég til þess að annar í
okkar fjölskyldu hafi leikið á fjöl-
um Þjóðleikhússins.
Ekki kom það okkur stórfjöl-
skyldunni á óvart í fyrra í jóla-
boðinu hjá ykkur í Ráðagerði,
þegar okkur var boðið að setjast
til borðs í kjallaranum sem þú
hafðir gengið í að gera upp. Takk
fyrir boðið!
Elsku frændi, ég veit að
Dagný Lára vinkona okkar,
amma og afi taka vel á móti þér
og passa þig.
Elsku Jonný, Finnur, Grétar
Elías, Freyja og fjölskylda, ég
votta ykkur samúð og bið guð að
styrkja ykkur í sorginni.
Elín Freyja Eggertsdóttir.
Dáðadrengurinn og hetjan
okkar, Jón Freyr, er fallinn frá
aðeins 35 ára gamall. Hans er
sárt saknað þótt allir geri sér
grein fyrir því að dauðinn er
stundum líkn og blessun.
Jón Freyr bar höfuðið hátt.
Hann var vel gefinn og dæma-
laus húmoristi og hafði unun af
að ræða málin í þaula. Með fram-
komu sinni og þrautseigju minnti
hann okkur sífellt á hve mikil-
vægt er að njóta augnabliksins
og taka erfiðleikum af æðruleysi
og því hugarfari að ekkert væri
sjálfgefið í lífinu annað en svefn-
inn langi.
Á unga aldri greindist Jón
Freyr með æxli í höfði og í fram-
haldi fór hann í öfluga geislameð-
ferð í Danmörku. Jóni Frey var
bjargað en heyrnin skaddaðist.
Vinstri hluti líkamans náði ekki
fullum mætti og hann varð að
sætta sig við stuðning stafs, jafn-
vel hjólastóls en það kom ekki í
veg fyrir erfið ferðalög. Mesta
gleðin var að komast í Sviðnur á
Breiðafirði þar sem móðir hans
ólst upp í bernsku og fjölskyldan
hafði hreiðrað notalega um sig.
Löngu síðar gekkst hann und-
ir höfuðaðgerðir, sumar mjög
hættulegar og var vart hugað líf.
En hann var einstakur krafta-
karl og þrátt fyrir alla þessa örð-
ugleika sem hefðu bugað margan
manninn stóð Jón Freyr keikur;
gerði að gamni sínu, stríddi,
sendi stjórnmálamönnum og
fjárglæfrafíklum tóninn, var
hrókur fagnaðar og skemmti sér
hvað mest þegar menn tóku á
móti stríðninni og reyndu að
klóra í bakkann. Þetta glaðlega
og óþvingaða hugarfar minnti
okkur hin á gæði lífsins og á þann
hátt hvatti hann okkur til að gera
greinarmun á stóru og smáu, því
mikilvæga og því lítilfjörlega í
tilverunni. Þannig vorum við í
læri hjá Jóni Frey án þess að vita
af því.
Bátar, sjór og eyjalíf voru ást-
ríður Jóns Freys. Hann vissi allt
um skip og báta og hefði án efa
orðið frábær skipstjóri á stórum
bátum hefði lífið verið ögn sann-
gjarnara. Reyndar varð hann
skipstjóri – á Hörninni, lítilli
skektu með utanborðsvél, og
sigldi um alla sjóa við Hólminn á
unglingsaldri. Þá var hann sæll
og glaður. Svo var sú lífsnautn
frá honum tekin. En þá fann
hann ný baráttumál og hugðar-
efni.
Hann var stakur bindindis-
maður og talaði stundum í ávít-
unartóni um víndrykkju enda al-
inn upp í stúkunni hjá Árna
Helgasyni stórtemplara. Hann
tók þátt í Halaleikhópnum ár eft-
ir ár og lék þá oftast róna eða
dópista nema hvort tveggja væri
– og skemmti sér vel. Þá gat
hann tekið rennsli á umræðu um
kvótakerfið og gorkúluauðmenn
og talaði þá tæpitungulaust með
húmorinn að vopni.
Nú er þetta að baki en birtist
samt í huga okkar sem þótti
vænt um Jón Frey sem dásam-
leg, björt minning.
Litið til baka er það ekki að-
eins Jón Freyr sem var afreks-
maður heldur og foreldrar hans,
Jónína og Finnur, og systkinin
Freyja og Grétar Elías sem
veittu honum ómælda ást og um-
hyggju allt til síðustu stundar.
Vorsala-Iðavallafjölskyldan
stóra sendir þeim dýpstu samúð-
ar- og saknaðarkveðjur og vitum
að góðir vinir í Flatey taka undir.
Við sjáum hann fyrir okkur
frjálsan undan fargi lífsins sigla
sinn sjó inn í eilífðina, glaðbeitt-
an og gjörhugulan með báðar
hendur á stýri.
Far vel kæri vinur.
Guðmundur Páll og Ingunn.
Mig setti hljóða þegar fregnir
bárust af andláti kærs vinar,
Jóns Freys Finnssonar, sem lést
um aldur fram þann 13. desem-
ber síðastliðinn.
Ég kynntist Jóni Frey fyrir
tæpum tíu árum þegar ég varð
liðveislan hans í gegnum Sel-
tjarnarnesbæ. Við brölluðum
ýmislegt saman, fórum reglulega
í bíó, á kaffihús, í keilu, á tónleika
og í leikhús. Jón Freyr hafði ein-
lægan áhuga á lífinu – hann var
svo opinn og skemmtilegur, las
mikið og var fróður um ýmis mál-
efni. Hann tók virkan þátt í starf-
semi Halaleikhópsins og það var
sannkölluð unun að sjá sýningar
þeirra. Lífsgleði hans, húmor og
hlýja yljaði hverjum þeim sem á
vegi hans varð. Hann kenndi mér
svo sannarlega margt.
Undanfarin fimm ár hef ég
verið búsett erlendis og því hafa
fá tækifæri gefist til vinafunda.
Mikið hef ég ávallt hugsað til
hans og glaðst í þau skipti sem
við höfum hist. Vinátta hans var
mér afar dýrmæt og mun ég
minnast hans með þakklæti í
hjarta og bros á vör. Ég kveð
yndislegan vin og þakka sam-
fylgdina. Fjölskyldu Jóns Freys
sendi ég mínar innilegustu sam-
úðarkveðjur,
Guðbjörg Sandholt.
Einn síðsumardag stóð ég
ásamt kunningja mínum, raunar
marghertum skipstjóra, á bakk-
anum við Þýskuvör í Flatey. Það
var stífur vestanþræsingur og
braut á bárum. Okkur verður lit-
ið í átt að Svefneyjum og sáum að
lítilli skektu var siglt í átt að
eynni. Stundum var siglingin
þannig að vel sást í himininn
undir kilinum og lengi vel hvarf
allt sjónum í öldunni.
Okkur leist ekki á blikuna en
hvergi var slegið af og þurftum
við raunar að stökkva til og taka
höggið af bátnum sem siglt var á
fullri ferð upp í vörina.
Við spurðum báðir í einu hvort
ætlunin hefði verið að drekkja
sér en glaðbeittur, rauðbirkinn
og hundblautur unglingur spurði
strax til baka hvurslags kellingar
við værum, hann hefði siglt í
miklu verri veðrum en þessu.
Þetta voru mín fyrstu kynni af
heiðursmanninum Jóni Frey en
þau áttu eftir að verða meiri og
alltaf jafn ánægjuleg. Við stund-
uðum það oft á hverju sumri að
skylmast með orðum um allt milli
himins og jarðar en gættum þess
alltaf að vera á öndverðri skoðun.
Oft bar bindindismál á góma en
Jón Freyr var stífur bindindis-
maður en ég ekki.
Jón Freyr var svo óheppinn að
fæðast með aðskotahlut við heil-
ann sem aldrei tókst að fjarlægja
þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.
Þetta háði honum á ýmsa vegu
en haggaði ekki húmornum sem
var alltaf í lagi.
Jón Freyr var líka heppinn.
Hann var heppinn með systkini
sín, þau Grétar og Freyju, hepp-
inn með Arnar frænda sinn Grét-
arsson og ljónheppinn með for-
eldra sína, þau Finn og Jónínu,
sem sinntu honum alla tíð af um-
hyggju og ástúð.
Það verður fátæklegra að
koma til Flateyjar næsta sumar.
Við í Vegamótum vottum að-
standendum okkar dýpstu sam-
úð.
Sigurmar Albertsson.
Jón Freyr
Finnsson
✝
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
ÓLAFÍA GUÐMUNDSDÓTTIR
frá Böðmóðsstöðum,
Hvassaleiti 58,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum við Hringbraut sunnu-
daginn 11. desember.
Jarðsungið verður frá Grensáskirkju þriðjudaginn 20. desember
kl. 15.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hinnar látnu láti líknarstofnanir njóta þess.
Inga K. Guðmundsdóttir, Bjarni Guðmundsson,
Þórdís K. Guðmundsdóttir,
Pálmar Guðmundsson, Erla Rannveig Gunnlaugsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
HAUKUR DAN ÞÓRHALLSSON
fyrrverandi skipstjóri,
Garðatorgi 7,
Garðabæ,
verður jarðsunginn frá Vídalínskirkju miðviku-
daginn 21. desember kl. 15.00.
Anna Heiðdal,
Sigurður Heiðdal Hauksson, Anna Kristín Hreinsdóttir,
Þórhallur Hauksson, Fanney Helga Hannesdóttir,
Jóhanna Hauksdóttir, Sigurður Skúli Bárðarson,
Knútur Grétar Hauksson, Sigrún Bragadóttir,
Anna Hauksdóttir, Vignir Jakob Sveinsson,
Jóhanna Kristín Hauksdóttir, Örlygur Örn Oddgeirsson,
barnabörn og barnabarnabörn.