Morgunblaðið - 19.12.2011, Page 37

Morgunblaðið - 19.12.2011, Page 37
MENNING 37 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. DESEMBER 2011 MIÐASALA Á WWW.SAMBIO.IS MISSION IMPOSSIBLE 4 kl. 5:10 - 8 - 10:50 2D 12 MISSION IMPOSSIBLE 4 kl. 5:10 - 8 - 10:50 2D VIP HAROLD & KUMAR Ótextuð kl.5:502D -83D -10:103D 16 STÍGVÉLAÐIKÖTTURINN Ísl. tal kl. 5:50 3D L STÍGVÉLAÐIKÖTTURINN Ísl. tal kl. 5:50 2D L PUSS IN BOOTS Enskt tal kl. 10:20 2D L AGOODOLDFASHIONEDORGY kl. 10:50 2D 16 HAPPY FEET 2 Ísl. tal kl. 5:40 2D L TWILIGHT:BREAKINGDAWN kl. 8 - 10:50 2D 12 THEHELP kl. 8 2D L TOWERHEIST kl. 8 2D 12 / ÁLFABAKKA MISSION IMPOSSIBLE 4 kl. 8 - 10:50 2D 12 JACK AND JILL kl. 8 - 10 2D L / EGILSHÖLL / KRINGLUNNI / KEFLAVÍK / AKUREYRI / SELFOSSI MISSION IMPOSSIBLE 4 kl. 5:50 - 8:30 - 10:102D 12 HAROLD & KUMAR Ótextuð kl. 8 - 10:10 3D 16 STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN Ísl. tal kl. 5:50 3D L TRESPASS kl. 8 2D 16 HAPPY FEET 2 Ísl. tal kl. 5:40 3D L MISSION IMPOSSIBLE 4 kl. 8 - 10:50 2D 12 HAROLD & KUMAR Ótextuð kl. 5:50 3D 16 TWILIGHT:BREAKINGDAWN kl. 8 2D 12 HAPPY FEET 2 Ísl. tal kl. 6 2D L AGOODOLDFASHIONEDORGY kl. 10 2D 16 SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI OG AKUREYRI SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL OG KRINGLUNNI NÆSTU SÝNINGAR Á ÞRIÐJUDAG SEEKING -MARAREINSTEIN/ USWEEKLY HHHH SÝND Í KRINGLUNNI SÝND Í ÁLFABAKKA KLIKK AÐAS TA GR ÍNMY ND ÁR SINS 100/100 „MERRILY OUTRAGEOUS, OVER-THE-TOP FUN“ -ENTERTAINMENT WEEKLY FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU OKKUR SHREK OG KUNG FU PANDA FRÁBÆR TEIKNIMYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA -BOXOFFICE MAGAZINE HHHH -THE HOLLYWOOD REPORTER HHHHMÖGNUÐ ÞRÍVÍDDARMYND SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL OG KRINGLUNNI 88/100 -CHICAGO SUN TIMES 80/100 -BOXOFFICE MAGAZINE TOM CRUISE, SIMON PEGG, PAULA PATTON OG JEREMY RENNER Í BESTU HASARMYND ÁRSINS! MISSION IMPOSSIBLE 4 kl. 3 - 5:10 - 8 - 10:50 2D 12 HAROLD & KUMAR Ótextuð kl. 3:30 - 5:40 - 8 - 10:10 3D 16 STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN Ísl. tal kl. 3 - 5:50 3D L STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN Ísl. tal kl. 5:50 2D L TWILIGHT: BREAKING DAWN kl. 8 - 10:30 2D 12 HAPPY FEET 2 Íslenskt tal kl. 3:30 3D L THE IDES OF MARCH kl. 8 2D 14 SEEKING JUSTICE kl. 10:20 2D 16 SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL OG AKUREYRI "BESTA MYND SERÍUNNAR." "SVONA EIGA HASARMYNDIR AÐ VERA." H.V.A. - FBL HHHH "FLOTTUR HASAR." H.S.S. - MBL HHH "HLÝTUR AÐ TELJAST SÚ BESTA HINGAÐ TIL" "FJÖRUGASTA OG SKEMMTILEGASTA HASARMYND ÁRSINS" Þ.Þ. - FT. HHH SÝND Í ÁLFABAKKA OG AKUREYRI SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG KEFLAVÍK SÝND Í EGILSHÖLL Morgunblaðið gefur út glæsilegt sérblað um Heilsu og hreyfingu þriðjudaginn 3. janúar 2012. MEÐAL EFNIS: Hreyfing og líkamsrækt. Vinsælar æfingar. Íþróttafatnaður. Ný og spennandi námskeið. Bætt mataræði . Heilsusamlegar uppskriftir. Andleg vellíðan. Bætt heilsa. Ráð næringarráðgjafa. Jurtir og heilsa. Hollir safar. Bækur um heilsurækt. Skaðsemi reykinga. Ásamt fullt af fróðleiksmolum og spennandi viðtölum. –– Meira fyrir lesendur PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 16, miðvikudaginn 21. des. NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir kata@mbl.is Sími: 569-1105 Heilsa & hreyfing SÉRBLAÐ Heilsa & hreyfing Þetta er tíminn til að huga að heilsu sinni og lífstíl og taka nýja stefnu. Ed O’Brien, hinn geðþekki gítar- leikari Uxavaðssveitarinnar Radio- head segir að sveitin æfi nú fjögur til fimm ný lög sem á víst að frum- flytja á viðamiklu tónleika- ferðalagi, en það fer í gang nú á næsta ári. O’Brien sagði þetta í við- tali við bresku útvarpsstöðina XFM. Hann sagði að þeir félagar væru gjarnan til í að halda sköpunar- klónum sæmilega brýndum og að þeim litist vel á það sem væri að fæðast í æfingaplássinu. Ferðalagið atarna er vegna nýjustu plötu sveitarinnar, King of Limbs, sem kom út í ár og fá Ameríkubúar og Evr- ópubúar að berja þessa einstöku lista- rokkssveit augum. Platan fékk afar góða dóma hjá gagnrýnendum að vanda þó að tónlistarlega sé sveitin enn í sæmilegasta sýrubaði. Tvö ný lög, Staircase og The Daily Mail, koma þá út í dag á vefmiðlinum Deezer og einnig á Amazon.co.uk. Lögin voru tekin upp á sama tíma og áðurnefnd King of Limbs var unnin. Geðþekkur Ed O’Brien deilir ekki fúl- lyndi með söngspírunni Thom Yorke. Radiohead æfir upp ný lög Stundum er rætt í hálfkær-ingi um kynslóðina sem varupp á sitt besta um 1900,rifjað upp ýmislegt sem virkar á okkur eins og einfeldnings- leg þjóðremba eða ástæðulaus heift, að ekki sé minnst á Danahatrið sem margir nærðust á (og fóðruðu). En ekki má gleyma að á sama tíma var lognmollan hunsuð, ekki í tísku að yppta öxlum, menn, bæði karlar og konur, tóku afstöðu. Tókust líka af ákefð og heiðarleika á við grundvall- arspurningar um líf og dauða, trú og vísindi. Sjálfan sálarháskann. Einn þeirra var Haraldur Níels- son guðfræðiprófessor og þessi prýðilega ævisaga Péturs Péturs- sonar prófessors varpar ljósi á sjarmörinn sem heillaði svo marga Íslendinga fyrstu áratugi síðustu aldar. Halldór Laxness mun hafa lagt til, þegar farið var að huga að rekstri útvarps, að predikanir í kirkjum yrðu þá aflagðar en látið nægja að Haraldur predikaði á öld- um ljósvakans. Þetta myndi efla kristnina. Fáir hafa haft jafn mikil áhrif á kristni í landinu á 20. öld og Har- aldur sem lést 1928. Hann snerist eftir aldamótin frá upphaflegri íhaldssemi sinni, sem var aðallega andsvar við guðleysi margra andans manna samtímans, og boðaði nýja tíma. Hann hreifst af þeim sem töldu að rétta leiðin væri að sameina vís- indahyggju og trú, þannig yrði kristninni bjargað frá því að veslast upp í kreddum og loðmullu. Þekkt- astur var hann vafalaust fyrir að vera áhrifamesti boðberi spíritism- ans hérlendis, trúarinnar á að við gætum náð sambandi við framliðið fólk með aðstoð miðla. Frásögn Pét- urs af þeim átökum sem fylgdu í kjölfarið og klofningi í kirkjunni er áhrifarík lesning. Haraldur þýddi Biblíuna upp á nýtt og var ekki vanþörf á því, sum- ar ambögurnar í gömlu þýðingunni voru skringilegar. Predikanir hans og blaðagreinar sýna að hann hafði frábært vald á tungunni en röddin var veik og hás vegna sjúkdóms. Pétur getur sér þess til að töfrarnir hafi m.a. falist í þessum veika rómi, fólki fannst eins og Haraldur væri að hvísla að því sannleikanum og lagði við hlustir. Hann hafði einnig útlitið með sér, augun voru svipmikil og maðurinn vörpulegur á velli, handtakið hlýtt enda þótt hann flengdi elstu börnin sín og gæti verið strangur og hrana- legur. En skáldkonan Ólöf frá Hlöð- um, sem aldrei hafði rekist á þann rétta, harmaði á efri árum að hafa ekki fundið svona mann. Bók Péturs er full af hlýju en hann hikar samt ekki við að varpa upp mynd af manni með bresti. Har- aldur hefur oft verið erfiður sínum nánustu, uppstökkur og ráðríkur beturviti sem gleymdi oft auðmýkt- inni. Framan af ævi þurfti hann reyndar að fást við þungbær veik- indi fyrri eiginkonu sinnar, Berg- ljótar Sigurðardóttur, sem dó eftir 15 ára hjónaband. Og sjálfur var hann svo þjakaður af þunglyndi í nokkra mánuði 1918 að hann var óvinnufær. Alvörumaðurinn og bindind- isfrömuðurinn barðist líka við efa- semdir í guðfræðináminu þegar hann velti fyrir sér eymd heimsins. „Mun frelsarinn nokkurn tíma, eftir að hann varð fullorðinn, hafa brosað eða hlegið?“ spyr hann í bréfi 1893. Athyglisverð er frásögnin af því þegar hann verður, fáeinum árum eftir andlát Bergljótar, um skeið hrifinn af annarri konu en verður fyrir geysilegu áfalli þegar hann sannfærist um að hún haldi fram hjá honum í tilhugalífinu – með konu! Og lágstemmd kímni Péturs og sam- úð með söguhetjunni nýtur sín vel þegar hann segir frá því hvernig vin- ir Haralds beinlínis finna handa hon- um nýja konu, Aðalbjörgu Sigurð- ardóttur. 18 árum yngri en með bein í nefinu, þau eignuðust tvö börn og hún tryggði manni sínum hamingju síðustu árin. Einu sinni var hálfvelgja útlæg Trúmaður á tímamótum bbbbm Eftir Pétur Pétursson. Hið íslenska bók- menntafélag gefur út. 372 bls. innb. KRISTJÁN JÓNSSON BÆKUR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.